Sýningar framundan
MEMENTO MORI – Sara Riel - 5.7. - 25.8. 2013
Sara Riel lýkur upp frumspekilegum heimi náttúruminjasafnsins í sýningu sinni Memento mori. Hvernig horfir náttúruminjasafn við listinni? Uppstoppaðir fuglar, köld egg og uppgert umhverfi mynda umgjörð um veröld sem eitt sinn var lifandi en er orðin steinrunnin. Hvað segir náttúruminjasafnið okkur um myndlistina? Þetta eru hinar stóru spurningar sem Sara Riel veltir fyrir sér með safnlægri samanburðarfræði sinni.
UPS AND DOWNS - Kees Visser - 6.9. - 27.10. 2013
Langur og gifturíkur ferill Kees Visser tengist náið þróun íslenskrar listar á 8. og 9. áratugnum þegar strauma hugmyndlistar og póstmódernisma gætti hvað mest. Yfirveguð og marksækin nálgun hans hefur að undanförnu aflað honum mikils álits í evrópskri list, þar sem hann er álitinn einn af eftirtektarverðustu fulltrúum geómetrískrar og hugmyndalegrar aðferðafræði. Sýning Listasafns Íslands veitir yfirgripsmikla innsýn í feril þessa margslungna listamanns.
LEIÐANDUR 2011 - 6.9. - 27.10. 2013
Sýningin Leiðandur 2011 fjallar um Sísyfosarþraut tveggja þýskra listamanna – Thomasar Huber og Wolfgangs Aichner – þegar þeir draga rauðan bát yfir ríflega þrjú þúsund metra hátt fjallaskarð – Nevessattel – í Zillertal Ölpunum niður á sléttur Ítalíu handan fjallgarðsins. Ásamt farkostinum fylgja heimildir um þessa raun sem telja verður einstætt listrænt afrek, enda vakti það sérstaka athygli á listamönnunum á Tvíæringnum í Feneyjum. Sýningin er undir stjórn Christians Schoen og er um sameiginlegt sýningarverkefni að ræða milli Kunsthalle Emden og Listasafns Íslands.
KRISTÍN GUNNLAUGSDÓTTIR - 8.11. 2013 - 19.1. 2014
Hið óvænta við list Kristínar Gunnlaugsdóttur er hið djarfa, erótíska yfirbragð sett fram með miðaldalegum hætti og kirkjulegri tækni sprottinni af veflist og gylltri undirstöðu, í ætt við trúarlist gotneska stílsins. Teiknikunnátta hennar og fínleg meðferð efnisins er í hróplegri mótsögn við umbúðalausa, jafnvel hneykslanlega framsetningu verkanna.
GERSEMAR ÚR SAFNEIGN - 8.11. 2013 - 19.1. 2014
Listasafn Íslands heldur áfram að kynna ríkidæmi safneignar sinnar. Bæði arfurinn frá 19. öld og nýlegri safnkostur eru til sýnis í ýmsum sölum safnsins. Þessar gersemar gefa góða mynd af fjölbreytni íslenskrar nútíma- og samtímalistar og vitna um grósku hennar og margháttaðan kraft. Þá er einnig brugðið upp glefsum úr erlendum safnkosti Listasafns Íslands, einkum verkum eftir Edvard Munch, en hans verður sérstaklega minnst 12. desember 2013, þegar 150 ár eru liðin frá fæðingu listamannsins.
 

Safnbygging: Fríkirkjuvegi 7 • 101 Reykjavík Skrifstofur: Laufásvegi 12 • Sími 515 9600 • list@listasafn.is