Fræðslustarfsemi



Listasafn Íslands er stofnað árið 1884 sem fræðslustofnun og hefur safnið helgað sig því hlutverki að vera fremsta safn íslenskrar myndlistar í heiminum. Með stefnuyfirlýsingu í fræðslumálum viljum við skerpa á fræðsluhlutverkinu sem meginhlutverki safnsins.
Hlutverk fræðsludeildar er að ábyrgjast gæði og skipulag þjónustunnar sem tekur til inntaks sýninga og framsetningu, gerð dagskrár og miðlunar upplýsinga um starfsemi og sýningar safnsins með það að leiðarljósi að ná til sem flestra landsmanna og gegna skapandi hlutverki í menningu samtímans. Þetta markmið tekur til allra þátta safnastarfsins, miðlunar, rannsókna og varðveislu. Þannig er safnið miðstöð kynningar og lifandi umræðu um íslenska myndlist og jafnframt leiðandi á sínu sviði.

 

Fræðslugildi sýninga er í fyrirrúmi þar sem stuðst er við nýjustu kenningar um nám, námsaðferðir bæði fullorðinna og barna. Þannig má veita fræðslu og upplifun um sameiginlegan menningararf innlendan sem erlendan. Með starfsemi sinni vill safnið auka þátttöku almennings, óháð þjóðerni, aldri eða kyni og taka virkan þátt í að móta menningarlega sjálfsmynd þjóðarinnar. Endurspegla lífsorku og margslungnar birtingarmyndir nútíma myndlistar með sýningum og fræðsludagskrá sem byggja á rannsóknum á öllum þeim sviðum sem grunnþættir safnastarfsins byggja á. Kjarni fræðslustefnu safnsins er að dýpka skilning og ánægju almennings og þess fjölbreytta og alþjóðlega samfélags sem safnið þjónar. Að móta jákvætt og skapandi umhverfi með virkri dagskrá sem býður safngestum einstaka reynslu þar sem þeir geta aukið við þekkingu sína á myndlist, öðlast innsæi og áttað sig á samhengi nútíðar og fortíðar. Með vandaðri dagskrá er byggir á frjóu og skapandi starfi viljum við höfða til mismunandi menningar og aldurshópa og stuðla þannig að aukinni lífshamingju og sátt í samfélaginu.

 

Með því að nota nýjustu tækni í upplýsingamiðlun eru heimildir um safneignina gerðar aðgengilegri notendum. Sífellt er unnið að því að auka þjónustu við nemendur þar sem gengið er út frá markmiðum myndlistarfræðslu í aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla. Fræðsluvefir með upplýsingum um listaverkaeign safnsins, myndlistarmenn og aðgengilegum verkefnum eru hluti af þeirri viðleitni svo sem Listavefurinn, Listavefur krakka sem unnir voru í samstarfi við Námsgagnastofnun og eru aðgengilegir hér á síðunni.

 

Museum: Fríkirkjuvegi 7 • 101 Reykjavík • Offices: Laufásvegi 12 • Tel +354 515 9600 • list@listasafn.is