Safn Ásgríms Jónssonar

Ásgrímur Jónsson (1876 - 1958) er einn brautryðjenda íslenskrar myndlistar og varð fyrstur íslenskra málara til að gera myndlistina að aðalstarfi.

Ásgrímur fæddist 4. mars 1876 í Suðurkoti í Rútsstaðahverfi í Flóa. Árið 1897 hélt hann til Kaupmannahafnar þar sem hann stundaði nám við Konunglega listaháskólann 1900 - 1903.

Ásgrímur dvaldist ytra til ársins 1909, en síðasta árið hafði hann vetursetu á Ítalíu. Á leið sinni til og frá Ítalíu kom hann við í Berlín og Weimar í Þýskalandi og sá m.a. verk frönsku impressjónistanna sem höfðu djúp áhrif á hann.

Íslensk náttúra var frá upphafi aðalviðfangsefni Ásgríms og með starfi sínu lagði hann grunninn að íslenskri landslagslist. Sýn hans á náttúruna var mótuð af rómantík 19. aldar og henni var hann trúr, þótt áherslur og vinnuaðferðir breyttust á hartnær 60 ára listamannsferli. Ásgrímur vann enn fremur brautryðjandastarf við myndskreytingar íslenskra þjóðsagna og ævintýra og er einn mikilvirkasti þjóðsagnateiknari Íslendinga.

Ásgrímur málaði í náttúrunni og lagði sig sérstaklega eftir að túlka birtu landsins. Hann málaði jöfnum höndum með vatnslitum og olíulitum og skipar sérstakan sess í íslenskri myndlist sem vatnslitamálari. Framan af var hann natúralismanum trúr, en laust fyrir 1930 fór áhrifa impressjónismans að gæta í verkum hans. Eftir 1940 urðu vinnubrögðin sjálfsprottnari en áður og verkin einkenndust af litsterkum expressjónisma.

Ásgrímur Jónsson lést árið 1958 og ánafnaði íslensku þjóðinni öll listaverk sín í eigin eigu ásamt húseign að Bergstaðastræti 74 í Reykjavík. Árið 1960 var Ásgrímssafn opnað í húsi hans. Árið 1988, þegar Listasafn Íslands fluttist í eigið húsnæði, var safn Ásgríms sameinað Listasafninu samkvæmt ákvæðum í erfðaskrá hans. Er það nú sérstök deild í Listasafni Íslands.

Heimili Ásgríms að Bergstaðastræti 74 var opnað að nýju á Íslenska safnadaginn, sunnudaginn 8. júlí. Ókeypis aðgangur var í tilefni Íslenska safnadagsins.
Í safninu eru tvær sýningar á verkum Ásgríms. Fyrri sýningin, í vinnustofu listamannsins, nefnist Fornmenn og inniber verk úr íslenskum fornbókmenntum, en hin kallast Umhverfis landið á fáeinum áratugum. Um er að ræða landslagsmyndir frá ýmsum stöðum, auk Sjálfsmyndar af listmálaranum.
Sími safnsins 515 9625

Vetraropnun
þriðjudaga til fimmtudaga kl. 11-14
sunnudaga kl. 13-16

RÚV - Umfjöllun um Safn Ásgríms Jónssonar í Víðsjá 16. júlí 2012
RÚV - Kvöldfréttir 16. júlí 2012


  

Listaverkagjöf
Safn listamanns

Safnbygging: Fríkirkjuvegi 7 • 101 Reykjavík Skrifstofur: Laufásvegi 12 • Sími 515 9600 • list@listasafn.is