Um heimildasafnið

Á heimildasafni Listasafns Íslands er lögð áhersla á varðveislu og miðlun efnis sem tengist rannsóknarsviði stofnunarinnar, þ.e. íslenskri myndlist. 
Heimildasafnið er meðlimur í Arlis/Norden (www.arlisnorden.org) - samtökum listbókasafna á Norðurlöndum.

Aðsetur
Heimildasafnið er í skrifstofubyggingu Listasafns Íslands við Laufásveg 12, 101 Reykjavík. Sími: 515 9603, 515 9604  Fax: 515 9601. Opnunartímar: Mánudaga - föstudaga kl. 9-12 og 13-15.

Safnkostur
Á heimildasafninu er að finna bækur, sýningarskrár og úrklippusafn um íslenska myndlist, en einnig myndasafn sem hefur að geyma stafrænar myndir af listaverkum í eigu Listasafns Íslands.

 

Safnbygging: Fríkirkjuvegi 7 • 101 Reykjavík Skrifstofur: Laufásvegi 12 • Sími 515 9600 • list@listasafn.is