Eldri fréttir

Styrkhafar Styrktarsjóðs Guðmundu Andrésdóttur 2012.
Úthlutun fór fram í Listasafni Íslands 27. des. kl. 16. Styrkhafar hlutu kr. 950.000 hver, þeir eru:
Anna Rún Tryggvadóttir, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Páll Haukur Björnsson og Sirra Sigrún Sigurðardóttir.

ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Skúla Sverrissonar og Óskars Guðjónssonar í LÍ, föstudaginn 21. sept. kl. 20.
The Box Tree er ný hljómplara þeirra félaga og munu þeir flytja tónlist af plötunni í LÍ. Miðar á tónleikana  seldir í afgreiðslu Listasafns Íslands. Sjá nánar

MÁLÞING -SAMTAL UM LISTAMANNAREKIN SÝNINGARÝMI
25. ágúst 2012- laugardag, kl. 15:00
Listasafn Íslands og Nýlistasafnið standa fyrir opnu samtali um frumkvæði listamanna í reykvísku listalífi frá 1962-2012. Útgangspunktur er tímalína sem Nýlistasafnið hefur látið gera. Niðurstaða rannsóknar um listamannarekin sýningarými kynnt, tímalína skoðuð og velt vöngum yfir eðli og eiginleikum sýningarstaðanna.
Gunnhildur Hauksdóttir, Unnar Örn Auðarson Jónasson, Sigríður Melrós Ólafsdóttir og Karina Hanney leggja öll orðí belg.
Þátttaka er öllum opin.



Gálgaklettur og órar sjónskyns. Kjarvalsstaðir. Sjá nánar.
Samvera í verkum. Gerður Helgadóttir og Svava Björnsdóttir. Gerðarsafn-Listasafn Kópavogs. Sjá nánar.

Síðasta abstraktsjónin. Eiríkur Smith. Hafnarborg, Hafnarfirði. Sjá nánar.
The Spirit of Place. Artepelag, Svíþjóð. Sjá nánar. 

LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR FÆRT LISTASAFNI ÍSLANDS AÐ GJÖF 21. JÚNÍ 2012

Þann 21. júní 2012 var staðfest gjöf sjálfseignarstofnunar Listasafns Sigurjóns Ólafssonar og öðrum eignum safnsins til Listasafns Íslands. Hér er um mjög verðmæta gjöf að ræða til Listasafns Íslands, bæði í listrænu og fjárhagslegu tilliti. Vefsíða safnsins hér.

VERK Í EIGU LISTASAFNS ÍSLANDS Á SÝNINGUM Í ÖÐRUM SÖFNUM

NORRÆN SAMTÍMALIST LEGGUR UNDIR SIG SÝNINGARSTAÐINA Á LISTAHÁTÍÐ 2012 
Listahátíð í Reykjavík í samstarfi við Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Nýlistasafnið, Norræna húsið og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar sýna nú umfangsmikið myndlistarverkefni á Listahátíð 2012. Verkefnið hefur hlotið styrk úr norræna sjóðnum Kultur Kontakt Nord og réð til sín sýningarstjórann Jonatan Habib Engqvist sem stýrði verkefninu ásamt verkefnisstjóranum, Kristínu Scheving. Sjá nánar.

BÓL, KAR OG HULIÐ HJARTA
Verk eftir Tinnu Gunnarsdóttur vöruhönnuð verða sýnd dagana 22.mars til 15. apríl 2012. Sýningin var á dagskrá HönnunarMars 2012.

Ritstjóri ÍSLENSKAR LISTASÖGU, dr. Ólafur Kvaran tilnefndur til viðurkenningar Hagþenkis 2011.
Sjá frétt Hagþenkis.

AFHENDING STYRKJA úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar listmálara og Ástu Eiríksdóttur fór fram í Listasafni Íslands 28. janúar 2012. Styrkhafar eru myndlistarmennirnir, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Sirra Sigrún Sigurðardóttir. Sjá nánar.

STYRKTARSJÓÐUR SVAVARS GUÐNASONAR OG ÁSTU EIRÍKSDÓTTUR óskar
hér með eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum.
Styrkirnir eru tveir að upphæð kr. 400.000, hvor
og veitist tveimur ungum, efnilegum myndlistarmönnum.
Umsóknir sendir fyrir 12. janúar 2012 til Listasafns Íslands. 

að upphæð kr. 500.000 úr Styrktarsjóði Richards Serra við hátíðlega athöfn í Listasafní Íslands, föstudaginn 16. desember. Sjá nánar

LISTASAFN ÍSLANDS ÁRIÐ 2050
Í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands efnir Félagsvísindasvið og námsbraut í safnafræði við Háskóla Íslands til fyrirlestraraðar um
framtíðarsýn safnstjóra höfuðsafna landsins. Fyrsta fyrirlesturinn flytur dr. Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri. Listasafns Íslands. Hann mun flytja erindið "Listasafn Íslands árið 2050" föstudaginn 28. október 2011 kl. 16:00. Fyrirlesturinn er í hátíðasal Háskóla Íslands, Aðalbyggingu. Allir velkomnir! Nánar

LISTAVERK Í EINKAEIGU
Listasafn Íslands fyrirhugar sýningu á árinu 2012 á verkum Magnúsar Kjartanssonar (1949-2006) myndlistarmanns. Vegna undirbúnings óskar safnið eftir upplýsingum um listaverk eftir listamanninn sem til eru í einkaeign. Eigendur listaverka eru beðnir að hafa samband við Guðrúnu Ástu Þrastardóttur á netfangið bokasafn@listasafn.is eða hafa samband við Nínu Njálsdóttur í síma 515 9600.

ÍSLENSK LISTASAGA Á 20.ÖLD - útgáfa áætluð haustið 2011
Ritun íslenskrar listasögu á 20.öld í ritstjórn Ólafs Kvaran fyrrverandi forstöðumanns Listasafns Íslands stendur nú yfir. Áætlað er að ritið komi út í 5 bindum haustið 2011. Forlagið mun gefa ritið út í samvinnu við Listasafn Íslands. Fjórtán rithöfundar koma að verkinu og tveir starfmenn safnsins. Fjallað er um íslenska myndlist frá seinni hluta 19. aldar til ársins 2000.

ÚTHLUTUN ÚR STYRKTARSJÓÐI GUÐMUNDU ANDRÉSDÓTTUR 2010
Úthlutun úr styrktarsjóði Guðmundu Andrésdóttur fyrir árið 2010 fór fram í Listasafni Íslands föstudaginn 29. október. Styrkhafar eru fjórir og hlaut hver þeirra styrk að upphæð kr. 2.000.000. Þeir eru Guðmundur Thoroddsen, Jeannette Castioni, Logi Bjarnason og Ragnheiður Gestsdóttir. 

ÍSLENSKU SAFNAVERÐLAUNIN
Félag íslenskra safna og safnmanna og Íslandsdeild ICOM (Alþjóðaráð safna) standa saman að íslensku safnaverðlaununum sem veitt eru annað hvert ár safni sem með starfsemi sinni þykir skara fram úr. TIlnefnd til íslensku safnaverðlaunanna 2010 eru Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ, Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi og Nýlistasafnið í Reykjavík. Nýlistasafnið hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2010, forseti Íslands afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á Íslenska safnadaginn, sunnudaginn 11. júlí.

SAFNANÆTUR VINNINGSHAFAR
1. verðlaun -
Boð á Safnanótt í Berlín 28. ágúst. Flug með Iceland Express og kr. 100.000 í gjaldeyri frá MP-banka: Steinunn Bragadóttir
2. verðlaun -
Kvöldverður fyrir tvo í Dill Restaurant í Norræna húsinu: Ársæll Jóhannsson
3. verðlaun
- Geirfuglskerti frá Landnámssýningunni 871 +/-2: Þórdís Erlingsdóttir

HönnunarMars2010
19.-21. mars
Bongó Blíða í Listasafni Íslands á veitingastaðnum Marengs. Kynnt er verkefni Sigríðar Sigurjónsdóttur, Þórunnar Árnadóttur og Hreins Bernharðssonar í samvinnu við Áslaugu Snorradóttur veislu- og stemningssérfræðing. - Sjá hér

MÁLÞING UM LISTFRÆÐIRANNSÓKNIR Á SKILUM LISTFRÆÐA OG MYNDLISTAR
Listfræðafélag Íslands stendur fyrir málþingi í samvinnu við Listasafn Íslands miðvikudaginn 17. mars kl. 17-19.
Frummælendur:
Halldór Björn Runólfsson, listfr. og safnstjóri LÍ
Auður Ólafsdóttir, listfr. og lektor við listfræði HÍ
Hlynur Helgason, myndlistarm. og heimspekingur
Þóra Kristjánsdóttir, listfr. Þjóðminjasafni Íslands
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, forstöðum. Rannsóknaþjónustu Listaháskóla Ísl.
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir!

ICELANDIC ART TODAY
Út er komin bókin Icelandic art today sem er fyrsta bók sinnar tegundar á ensku um breiðan hóp íslenskra samtímalistamanna, sem fæddir eru eftir 1950. Þrettán höfundar skrifa um 50 listamenn, sem hafa verið áberandi síðustu áratugina. Bókin er 340 síður, ríkulega myndskreytt. Ritstjórar eru Christian Schoen og Halldór Björn Runólfsson.

ÚTHLUTAÐ ÚR STYRKTARSJÓÐI SVAVARS GUÐNASONAR LISTMÁLARA OG ÁSTU EIRÍKSDÓTTUR
Þann 18. nóv. var tveimur styrkjum úthlutað til tveggja myndlistarmanna úr Styrktarsjóði Svavars og Ástu að upphæð kr. 500.00 hvor. Myndlistarmennirnir eru Sara Riel og Curver. Athöfnin fór fram í Listasafni Íslands á 100 ára afmælisdegi Svavars Guðnasonar.  

STYRKTARSJÓÐUR SVAVARS GUÐNASONAR OG ÁSTU EIRÍKSDÓTTUR
óskar hér með eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum. Styrkirnir eru tveir að upphæð kr. 500.000 hvor og veitist tveimur ungum, efnilegum myndlistarmönnum. Umsóknir sendist fyrir 4. nóvember næstkomandi.

TÓNLEIKAR EDDU ERLENDSDÓTTUR - Á MORGUN 4. NÓV. kl. 20
Edda Erlendsdóttir píanóleikari mun halda tónleika í Listasafni Íslands miðvikudaginn 4. nóv. kl. 20.
Tónleikarnir eru til að minnast 200 ára dánarafmælis Haydns á þessu ári og í tilefni af nýútkomnum geisladiski þar sem Edda leikur 4 píanókonsetra eftir Haydn með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Kurt Kopecky.

MYNDLISTIN OG TUNGUTAKIÐ - MÁLÞING
Laugardaginn 13. júní kl. 11.00 - 13.00 verður haldið málþing í Listasafni Íslands undir heitinu
Myndlistin og tungutakið.
Gunnar J. Árnasson, listheimspekingur, Ragna Sigurðardóttir, listamaður og gagnrýnandi og Halldór B. Runólfsson, listfræðingur munu fjalla um efnið í tengslum við sýningu safnsins á verkum Hrafnkells Sigurðssonar og Kristjáns Guðmundssonar. Báðir listamennirnir hafa skapað sér myndmál, sem lýtur að mörgu leiti svipuðum lögmálum og formgerð tungumálsins. Spurt verður hvernig hægt sé að ræða myndlist viðkomandi og skyldra listamanna, fjalla um hana og tengja tungutaki okkar. Hvaða orðfæri höfum við Íslendingar til að takast á við myndlist yfirleitt; hvernig ræðum við um myndlist og hvernig endurspeglar myndlist þessara listamanna tungutak okkar?
Aðgangur að þinginu er ókeypis.


DEILDARSTJÓRI SÝNINGADEILDAR
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra sýningadeildar Listasafns Íslands.

ÚTHLUTUN ÚR STYRKTARSJÓÐI GUÐMUNDU ANDRÉSDÓTTUR
Föstudaginn 13 júní var úthlutað úr styrktarsjóði Guðmundu Andrésdóttur styrkjum til fjögurra ungra myndlistarmanna, þeirra Berglindar Jónu Hlynsdóttur, Bjarka Bragasonar, Irene Bermudez og Hye Young Park.

FROM ANOTHER SHORE: RECENT ICELANDIC ART

Opnuð var 1. maí sýning á verkum 21 íslensks samtímalistamanns í Scandinavia House í New York.
Sýningin er á vegum American Scandinavian Foundation.
Sjá nánar

DEILDARSTJÓRI SÝNINGADEILDAR
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra sýningadeildar Listasafns Íslands.

STYRKTARSJÓÐUR GUÐMUNDU ANDRÉSDÓTTUR
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2008
Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2008.

ÍSLENSKU SAFNAVERÐLAUNIN 2008
Félag íslenskra safnamanna og Íslandsdeild ICOM (Alþjóðaráð safna) standa saman að íslensku safnaverðlaununum sem veitt eru annað hvert ár safni sem með starfsemi sinni þykir skara fram úr.

Óskað er eftir ábendingum frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum. Til greina koma söfn og einstök verkefni á sviði safna sem þykja til eftirbreytni og íslensku safnastarfi til framdráttar. Bent er á að tilnefna má sýningar, útgáfur og annað sem snýr að þjónustu við safngesti jafnt sem verkefni er lúta að faglegu innra starfi.
Valnefnd velur þrjú söfn eða verkefni sem tilnefnd verða til verðlaunanna og fer afhending fram á alþjóðadegi safna þann 18. maí 2008.
Ábendingum skal skilað til Safnaráðs, Laufásvegi 12, 101 Reykjavík eða á netfangið safnarad@safnarad.is merkt Safnaverðlaun fyrir 25. apríl 2008

JÓLAGJAFIR LISTUNNANDANS fást í Safnbúð Listasafns Íslands.
Opið alla daga kl. 11-17, lokað mánudaga.
Verið velkomin!

OPNUNARTÍMI UM JÓL OG ÁRAMÓT
Opið 27.- 30. desember.
Lokað 23. - 26. des. og 1. janúar 2008.

DRASL TIL SÖLU
Dagana 13.- 21. október var Curver Thoroddsen með raunveruleikagjörning í anddyri Listasafns Íslands í tengslum við Sequences listahátíðina. Gjörningurinn nefndist Drasl til sölu og var stór kompusala / garðsala. Raunveruleikagjörningurinn var haldinn í samvinnu við Rás 2. Á meðan á gjörningnum stóð kom listamaðurinn í útsendingu á Rás 2 og sagði frá framvindu mála. Drasl til sölu var einn stærsti gjörningurinn á Sequences. Sequence
 

STILLUPPSTEYPA KYNNT AF ÖÐRUM VERUM
Í tengslum við Sequences listahátíðina verður hljómsveitin Stilluppsteypa með innsetningu í fræðslumiðstöð Listasafns Íslands sem lýkur sunnudaginn 19. okt. kl. 17.

LISTAVERK EFTIR CARL-HENNING PEDERSEN ÁNÖFNUÐ LISTASAFNI ÍSLANDS

Listaverkagjöf Sidsel Ramson, seinni eiginkonu og ekkju danska listmálarans Carl-Henning Pedersen, var afhent við formlega athöfn í Listasafni Íslands þann 13. maí. Sjá nánar.

STAFRÆN ENDURGERÐ SAMTÍMALISTAR (DCA: Digitising Contemporary Art)
Verkefnið Stafræn endurgerð samtímalistar sem unnið er fyrir menningargáttina Europeana hefst 25. janúar 2011. Sjá nánar

ÚTHLUTUN VIÐURKENNINGAR ÚR STYRKTARSJÓÐI RICHARDS SERRA
Hekla Dögg Jónsdóttir myndlistarmaður hlaut viðurkenningu

COBRA REYKJAVÍK
Sýningin COBRA-REYKJAVÍK var opnuð í sýningarmiðstöðinni SilkeborgBad í Silkeborg í Danmörku 1. sept. síðastliðinn. Sýningin var sérstaklega sett saman fyrir Listasafn Íslands og sýningarmiðstöðina SilkeborgBad. SilkeborgBad er annar áfangastaður sýningarinnar og þar mun hún standa til 2.
desember. Þaðan fer sýningin til Trondheim Kunstmuseum í Noregi og opnar þann 27.janúar 2008. Nánar

VERK Í EINKAEIGN EFTIR KRISTJÁN DAVÍÐSSON
Listasafn Íslands fyrirhugar sýningu með haustinu á verkum Kristjáns Davíðssonar listmálara.
Vegna undirbúnings óskar safnið eftir upplýsingum um listaverk eftir listamanninn frá árinu 1990 til dagsins í dag, sem til eru í einkaeign.
Eigendur listaverka eru beðnir að senda myndir af verkunum með helstu upplýsingum á netfangið nina@listasafn.is eða hafa samband við Nínu Njálsdóttur, í síma 515 9600 fyrir 15. ágúst næstkomandi.

LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 2007 VAR SETT 10. MAÍ Í LISTASAFNI ÍSLANDS OG SÝNINGIN COBRA REYKJAVÍK VAR OPNUÐ.


NÝR FORSTÖÐUMAÐUR VIÐ LISTASAFN ÍSLANDS
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur skipað dr. Halldór Björn Runólfsson listfræðing í embætti forstöðumanns Listasafns Íslands til fimm ára, frá 1. mars 2007. Halldór Björn lauk doktorsprófi frá sjónlista- og fagurfræðideild við Sorbonne-háskóla í París 2006 og hefur gegnt stöðu lektors og yfirmanns listfræða við Listaháskóla Íslands.

FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ og AÐGANGUR AÐ RAFRÆNUM GAGNAGRUNNI UM LISTAVERKAEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS VAR OPNAÐUR ALMENNINGI 15. sept. 2006.

VERK Í EINKAEIGU EFTIR JÓN ENGILBERTS OG JÓHANN BRIEM
Listasafn Íslands fyrirhugar sýningar á næsta ári á verkum listamannanna Jóhanns Briem (1907-91) og Jóns Engilberts (1908-72). Vegna undirbúnings óskar safnið eftir upplýsingum um listaverk eftir listamennina, sem til eru í einkaeigu. Eigendur listaverka eru beðnir um að hafa samband við Nínu Njálsdóttur í síma 515 9600 eða með tölvupósti til
nina@listasafn.is

KRISTALLINN - TÓNLEIKARÖÐ SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS Í LISTASAFNI ÍSLANDS
Tónleikaröðin samanstendur af sex kammertónleikum. Næstu tónleikar eru eftirfarandi laugardaga og hefjast klukkan 17: 21.október, 4.nóvember, 10.mars, 14.apríl, 19.maí.

ÚTHLUTUN ÚR STYRKTARSJÓÐI GUÐMUNDU ANDRÉSDÓTTUR
Föstudaginn 15. sept. var úthlutað úr styrktarsjóði Guðmundu Andrésdóttur styrkjum til tveggja ungra myndlistarmanna, þeirra Þórunnar Maggýjar Kristjánsdóttur og Ragnars Jónassonar. Samkvæmt skipulagsskrá Styrktarsjóðs Guðmundu Andrésdóttur er markmið sjóðsins að styrkja og hvetja unga efnilega myndlistarmenn til náms. Stjórn sjóðsins ákvað að úthluta tveimur styrkjum að upphæð kr. 1.500.000. Þórunn Maggý fær styrkinn til framhaldsnáms við Listaháskólann í Kaupmannahöfn og Ragnar til framhaldsnáms við Glasgow School of Arts. Það er von stjórnar sjóðsins að þessi stuðningur komi þeim að góðum notum í námi þeirra og starfi og óskar þeim velgengni í framtíðinni.

KAFFITÁR
Kaffitár hefur hafið rekstur á kaffistofu Listasafns Íslands, opið er á opnunartíma safnsins.
Sjá nánar

ÓKEYPIS AÐGANGUR
Listasafn Íslands ákvað að fella niður aðgangseyri að safninu.Þetta var gert með stuðningi SAMSON
eignarhaldsfélags sem undirritaði samstarfssamning við Listasafnið 20. febrúar 2006. Aðgangur í safnið varð ókeypis frá og með 24. febrúar síðastliðnum. Samson eignarhaldsfélag er aðalstyrktaraðili Listasafnsins til ársins 2008.
 

 

Safnbygging: Fríkirkjuvegi 7 • 101 Reykjavík Skrifstofur: Laufásvegi 12 • Sími 515 9600 • list@listasafn.is