Georg Guðni Georg Guðni Hauksson (f. 1961) er einn eftirtektarverðasti listamaður yngri kynslóðarinnar á Íslandi í dag. Hann hefur alla tíð sótt sér innblástur í íslenska náttúru og verið mikilvirkur í því að færa íslenska landslagsmálverkið inn í nýja tíma og nýja hugsun.
EFNI:
Dr. Ólafur Kvaran safnstjóri: Aðfararorð.
Gunnar J. Árnason heimspekingur: "Skoðun Georgs Guðna Haukssonar á landinu".
Gertrud Sandquist listfræðingur og forstöðumaður Listaháskólans í Malmö: "Málverk sem vefur".
Æviágrip.
Heimildaskrá.
Bókin var gefin út í tilefni yfirlitssýningar á verkum Georgs Guðna í Listasafni Íslands í mars-maí 2003.