 | Reykjavíkurmyndir Ásgríms Jónssonar listmálara (1876 – 1958) |
 |  |
 |  |  |
Ásgrímur Jónsson var fyrsti íslenski málarinn sem gerði listina að ævistarfi og hélt hann sína fyrstu sýningu í Reykjavík árið 1903. Íslenskt landslag var meginviðfangsefni hans en auk þess sótti hann oft myndefni í íslenskar þjóðsögur. Í upphafi einkenndist myndlist hans af rómantískri náttúrusýn en er leið á ferilinn leitaðist Ásgrímur við að túlka birtuna og litbrigðin í náttúrunni. Jafnhliða olíumálverkum málaði Ásgrímur vatnslitamyndir. Yfirlitssýning var haldin á verkum Ásgríms í Listasafni Íslands 1956. Ásgrímur gaf íslenska ríkinu allar eigur sínar eftir sinn dag, m.a. rúmlega 2000 verk, bæði olíumálverk, vatnslitamyndir og teikningar.
Smelltu á mynd til að stækka
|
 |
 |
 | |
|