ANDRÝMI Í LITUM OG TÓNUM - „HOMAGE TO ENRIQUE GRANADOS"

26.1.2017

Íslenski flautukórinn og Listasafn Íslands standa fyrir hádegistónleikaröð í Listasafni Íslands. Síðasta föstudag hvers mánaðar er boðið upp á fjölbreytta tónlist til þess að vinda ofan af vinnuvikunni og endurræsa skilningarvitin. Að tónleikunum loknum býður kaffistofan í Listasafni Íslands - Mom's Secret Café upp á hádegisverðartilboð.

Aðgangur er ókeypis.

„Homage to Enrique Granados“

Flytjendur:Pamela De Sensi- flautaPáll Eyjólfsson - gítar

Efnisskrá:

Enrique Granados (1867-1916) Valsos poétics

- Vivace Molto- I Melodico- II tempo di vals noble-III Tempo de vals lento-IV Allegro humoristico-V Allegretto elegante-VI Quasi ad libitum-VII VivoEnrique Granados (1867-1916) Danza espanola n. 5Carlos Radaelli (1961-) Petite MilongaTónleikarnir eru stkyrktir af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytistins.Ferilskrá:Pamela De Sensi lauk einleikaraprófi 1998 frá "Conservatorio di Musica L. Perosi” í Campobasso á Ítalíu og svo lokaprófi í kammertónlist frá "Conservatorio di Musica S.Cecilia" í Róm 2002 . Einnig hefur hún sótt tíma hjá heimskunnum flautuleikurum s.s. C. Klemm, M.Ziegler, F. Reengli, T. Wye, M. Larrieu. Hún hefur tekið þátt í mörgum keppnum sem sólisti og utan Ítalíu og alltaf orðið í efstu sætum. Pamela hefur spilað á fjölda tónleika víðs vegar bæði sem einleikari sem og í kammertónlist og má þar nefna í Frakklandi, Spáni, Englandi, Kasakstan, Mexíkó, Íslandi, Færeyjum, Finnlandi, í Bandaríkjunum og víðsvegar á Ítalíu. Hún er stjórnandi Töfrahurð bókaútgáfu, og kennir við Tónlistarskóla Kópavogs og Tónskóla Sigursveins.Páll Eyjólfsson lauk einleikaraprófi á gítar frá Gítarskólanum, Eyþóri Þorlákssyni og í hliðargreinum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Páll fór í framhaldsnám til Alcoy á Spáni þar sem hann nam í einkatímum hjá José Luís González, sem var einn af nemendum Andrés Segovia. Fjölmargir tónlistarnemar hafa sótt gítartíma til Páls í ýmsum tónlistarskólum í Reykjavík, en hann hefur samhliða kennslunni haldið tónleika víðsvegar um landið og í nokkrum Evrópulöndum. Ríkisútvarpið hefur gert upptökur með leik hans, m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, gítarkonsert eftir John A. Speight, og áður hafa komið út geisladiskar þar sem Páll spilar með öðrum hljóðfæraleikurum. 2009 kom út einleiksdiskur þar sem Páll leikur verk eftir spænska tónskáldið Tárrega og brasilíska tónskáldið Villa-Lobos.

Hugmyndin með Andrými í litum og tónum er að fólki gefist kostur á að eiga nærandi stund við samtal milli sjónlistar og tónlistar.

Við verðum að endurheimta tímann sjálfan. Slíta hugsunina um hámarks afköst, „tíminn er peningar“ og gefa tímanum rými til að streyma í öfuga átt - til okkar. Við verðum að taka tímann aftur inn í okkur til að leyfa meðvitundinni að anda og óreiðukendum hugum okkar að staldra við og hljóðna. Þetta getur listin gert og söfn í nútímanum rúmað.

 - Bill Viola

Hér finnið þið Íslenska flautukórinn á Facebook.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)