ANDRÝMI Í LITUM OG TÓNUM „HVÍTASUNNUDAGUR“

28.4.2016

Íslenski flautukórinn og Listasafn Íslands standa fyrir hádegistónleikaröð í Listasafni Íslands. Síðasta föstudag hvers mánaðar er boðið upp á fjölbreytta tónlist til þess að vinda ofan af vinnuvikunni og endurræsa skilningarvitin. Að tónleikunum loknum býður Kaffistofa listasafnsins upp á hádegisverðartilboð.

Aðgangur er ókeypis.

Efnisskrá:

Pablo De Sarasate (1844 - 1908) - Romanza Andaluza

Dusan Bogdanovic (1955 -) - Prelude

Maximo Diego Pujol (1957 -) - Suite Buenos Aires

Pompeya

Palermo

San Telmo

Microcentro

Flytjendur:Karen Erla Karólínudóttir- flautaSvanur Vilbergsson - gítarTónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)