Í tilefni 80 ára afmælis Woody Vasulka (f. 20.01.1937) efnir Vasulka-stofa til sérstakrar sýningar á vídeóverkinu Art of Memory, en 30 ár eru liðin síðan verkið var frumsýnt, 1987.
Verkið er viðeigandi á þessum tímamótum þar sem áhorfandinn er með áhrifaríkum hætti leiddur inn í fortíðina, þar sem ferðast er um draumkennt og víðáttumikið landslag með skírskotunum til sögunnar.
Á sýningunni má einnig sjá brot úr gagnasafni Vasulka-stofu.
Steina og Woody Vasulka hafa haldið vel utan um arfleifð sína og varðveitt þau gögn sem tengjast list þeirra og starfi. Við stofnun Vasulka-stofu, undir lok árs 2014, gáfu þau Listasafni Íslands stóran hluta af gagnasafni sínu til varðveislu, en í því er meðal annars að finna upprunaleg listaverk, skissubækur, heimildarmyndir, bókasafn, ljósmyndir, sýningarskrár, viðurkenningar, greinar, plaköt og persónuleg skjöl.Sýningin stendur yfir til 1. september 2017. nánar