FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR, VALIN VERK ÚR SAFNEIGN

5.4.2017

Í fórum Listasafns Íslands eru á tólfta þúsund verka af ýmsum gerðum, frá ýmsum löndum og ýmsum tímum. Á sýningunni Fjársjóður þjóðar er dágott úrval verka úr þessari safneign, sem gefur yfirlit yfir þróun myndlistar á Íslandi frá öndverðri nítjándu öld til okkar daga. Sýningin er í tveimur sölum safnsins og dregur fram fjölbreytni þeirra miðla og stílbrigða sem einkenna þessa stuttu en viðburðaríku sögu. Fyrstu áratugina byggðist safneign Listasafns Íslands einvörðungu upp á gjöfum, málverkum eftir höfðinglega erlenda listamenn, einkum danska og norræna, en upp úr þarsíðustu aldamótum urðu listaverk eftir Íslendinga æ meira áberandi. Þá má þakka rausnarskap ýmissa einstaklinga, listamanna og annarra, hversu hratt listaverkaeign safnsins jókst á síðustu öld. Margir frumherjar íslenskrar myndlistar arfleiddu þjóðina að verkum sínum en upp úr miðri öldinni óx innkaupasjóður Listasafns Íslands og við það stækkaði safneignin ört. Frá fínlegum teikningum Helga Sigurðssonar (1815–1888) af skáldinu Jónasi Hallgrímssyni (1807–1845) á dánarbeði til viðkvæmra samsetninga Margrétar H. Blöndal (f. 1970) úr fundnu efni er langur vegur og merkilegur. Þessa sögu og langtum lengri má lesa úr Fjársjóði þjóðar , þessum knappa hluta af safneign Listasafns Íslands. Sýningarstjórn skipa: Halldór B. Runólfsson, Birta Guðjónsdóttir og Steinar Ö. Atlason.Mynd: Svavar Guðnason, Íslandslag,  1944. Í eigu Listasafns Íslands.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)