GALDRASÝNING Í LISTASAFNI ÍSLANDS

14.1.2019

GALDRASÝNING

 

ÓTRÚLEGUSTU HLUTIR GERAST Í LISTASAFNI ÍSLANDS

Laugardaginn 19. janúar kl. 14.

 

Stórkostleg galdrasýning í Listasafni Íslands í tengslum við sýninguna Véfréttir – Karl Einarsson Dunganon. 

Dunganon kallaði sig galdramann og þú færð að hitta einn slíkan!

 

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í fallegu umhverfi.

Með stofnun þessa nýja krakkaklúbbs viljum við veita börnum og  fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á Listasafninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.Krakkaklúbburinn Krummi er fyrir börn á öllum aldri.

Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands heiðra Ásgerði Búadóttur myndlistarmann með því að nota skemmtilegar og líflegar klippimyndir úr barnabókinni Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði, sem innblástur og merki barnastarfsins. 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)