GONG-SLÖKUN Í LISTASAFNI ÍSLANDS

5.12.2017

Guðrún Darshan leiðir Gong-slökun í fallegu umhverfi Listasafns Íslands laugardaginn 9. desember kl. 12.

Gong-slökun er mjög eflandi og nærandi upplifun sem opnar fyrir flæðið innra með okkur. Í annríkinu sem einkennir nútímalíf er lífsnauðsynlegt að kunna listina að slaka á.

Guðrún Darshan er  jógakennari, markþjálfi, bowentæknir og hómópati. Hún rekur jóga- og heilsustöðina Andartak, kennir jóga í Bústaðakirkju og stendur fyrir jógakennaranámi á sama stað. Auk þess býður hún upp á tíma í einstaklingsmiðaðri ráðgjöf, hómópatíu og markþjálfun. Guðrún hefur mikla ástríðu fyrir jóga og hugarrækt og því hvernig við getum skapað okkur líf í jafnvægi þar sem allir fá að blómstra.   

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)