ANDRÝMI Í LITUM OG TÓNUM

25.4.2018

31. ÁGÚST KL. 12:10

Íslenski flautukórinn og Listasafn Íslands standa fyrir hádegistónleikaröð í Listasafni Íslands. Síðasta föstudag hvers mánaðar er boðið upp á fjölbreytta tónlist til þess að vinda ofan af vinnuvikunni og endurræsa skilningarvitin.Aðgangur er ókeypis.

Hafdís Vigfúsdóttir

J.S. Bach (1685 - 1750): Partita í a-moll I. Allemande II. Corrente III. Sarabande IV. Bourrée Anglaise Luciano Berio (1925 - 2003): Sequenza I (1958) Þorkell Sigurbjörnsson (1938 - 2013): Níu (samhverfar) rissur 

Hugmyndin með Andrými í litum og tónum er að fólki gefist kostur á að eiga nærandi stund við samtal milli sjónlistar og tónlistar. 

 „Við verðum að endurheimta tímann sjálfan. Slíta hugsunina um hámarks afköst, „tíminn er peningar“ og gefa tímanum rými til að streyma í öfuga átt - til okkar.

 

 Við verðum að taka tímann aftur inn í okkur til að leyfa meðvitundinni að anda og óreiðukendum hugum okkar að staldra við og hljóðna. Þetta getur listin gert og söfn í nútímanum rúmað.“

 - Bill Viola

  Tónleikaröðin er styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins.   Það er tími til að hægja á taktinum í deginum og gefa sér næði til að njóta gersema og gloría.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)