HÁTÍÐARDAGSKRÁ Í LISTASAFNI SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR

15.10.2018

Vönduð og spennandi hátíðardagskrá í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar helgina 20. - 21. október. Tvær nýjar sýningar opna í safninu, útgáfa sýningarskrár, leiðsögn og tónleikar.Þann 21. október næstkomandi verða liðin 30 ár frá því að Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnesi var opnað almenningi.

Laugardaginn 20. október kl. 15 verða opnaðar tvær sýningar.  Önnur sýningin ber heitið Tengingar – Sigurjón Ólafsson og nokkrir samferðamenn hans. Samferðamennirnir eru Erlingur Jónsson, Gerður Helgadóttir, Gestur Þorgrímsson, Guðmundur Benediktsson, Guðmundur Elíasson, Hallsteinn Sigurðsson, Helgi Gíslason, Jón Benediktsson, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Svava Björnsdóttir, Sverrir Haraldsson, Tove Ólafsson og Örn Þorsteinsson. Öll tengdust þau Sigurjóni og list hans með einum eða öðrum hætti og fer vel á því að verk þeirra eiga samtal við verk eftir Sigurjón í fyrrum vinnustofu hans, nú þegar liðin eru 30 ár frá því að henni var breytt í sýningarsal.

Sýningunni fylgir myndskreytt sýningarskrá með grein eftir Aðalstein Ingólfsson listfræðing, á íslensku og ensku. Hann skoðar verkin í stærra samhengi, en fjallar einnig um persónuleg tengsl Sigurjóns og þessara listamanna. Allir unnu með það að markmiði að skapa rýmisverk, annaðhvort höggmyndir úr steini, eða þrívíð verk úr málmi, tré, pappír eða textíl. Það er því mikill fengur að þessari úttekt á íslenskri höggmyndalist, allt frá árinu 1946 fram til dagsins í dag. Flest verkanna eru úr safneign Listasafns Íslands, en fáein eru fengin að láni úr einkasöfnum. 

Á efri sal safnsins verður sýning á keramík úr steinleir eftir svissnesku listakonuna Sabine Hasler. Sýninguna nefnir hún Ísland – landslag og litir. Sabine Hasler hefur tengst safninu og aðstandendum þess vináttuböndum áratugum saman og árið 1993  hannaði hún og gerði bollastell úr ljósum steinleir fyrir kaffistofuna, prýtt merki safnsins. Síðan hefur hún oft komið til Íslands og á sýningunni birtast hughrif hennar frá íslenskri náttúru í glerjungi og keramík.  Málverk eftir Björgu Þorsteinsdóttur lýsir upp stigaganginn og tengir sýningarnar tvær.

Sunnudaginn 21. október, á afmælisdegi Sigurjóns, verður opið hús í safninu milli klukkan 13  og 17. Klukkan 14 mun Sabine Hasler ganga með gestum um sýninguna Ísland – landslag og litir og segja frá vinnuaðferðum sínum. Leiðsögnin verður á ensku og aðgangur er ókeypis allan daginn. 

Um kvöldið kl. 20 verður haldið upp á 110 ára afmæli Sigurjóns með frumflutningi á tónsmíðum, sem samdar hafa verið við verk hans. Hvatamaður tónleikanna er fiðluleikarinn Hlíf, dóttir Sigurjóns, og eru tónverkin samin fyrir hana. Flutt verða  Gríma eftir Jónas Tómasson, Snót eftir Alexander Liebermann og Fótboltamenn eftir Povl Christian Balslev. Flytjendur eru auk Hlífar þau Þórdís Gerður Jónsdóttir, sem leikur á selló, og Povl Christian Balslev, píanóleikari og organisti.

 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)