LEIÐSÖGN Í SAFNI ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA

22.11.2016

Sunnudaginn 27. nóvember kl. 14.00 verður leiðsögn um sýninguna  Ógnvekjandi náttúra   sem nú stendur yfir í Safni Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti 74.Rakel Pétursdóttir sýningarstjóri mun fjalla um verk listamannsins út frá myndefni einstakra verka með hliðsjón af æviminningum listamannsins og frásögnum af eldgosum er finna má í Eldritunum svonefndu. Jafnframt mun hún skoða þróun tjáningarforms listmálarans út frá straumum og stefnum í alþjóðlegri myndlist.Á sýningunni er að finna 23 verk; olíumálverk, vatnslitamyndir og teikningar er spanna allan feril listamannsins.Sýningin verður opin á laugardögum og sunnudögum frá kl. 14.00 - 17.00 fram til 27. nóvember.Safn Ásgríms Jónssonar og Listasafn Sigurjóns Ólafssonar er lokað í desember og janúar.Sýningin verður opnuð aftur laugardaginn 4. febrúar og mun standa til 7. maí 2017.Hægt er að panta leiðsögn fyrir hópa utan opnunartíma samkvæmt samkomulagi alla mánuði ársins.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)