TVEIR SAMHERJAR - ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON

15.10.2017

Tveir samherjar - Asger Jorn og Sigurjón Ólafsson

Sigurjón Ólafsson (1908–1982) og Asger Jorn (1914–1973) voru báðir áhrifavaldar í framúrstefnulistinni í Danmörku á fjórða og fimmta áratug liðinnar aldar og áttu í nánum tengslum þar til Sigurjón hvarf til Íslands að stríði loknu. Báðir tóku þeir þátt í tímamótasýningunum Linien 1937, Skandinaverne 1939 og Teltudstillingen 1941.

Sumarið 1967 kom Asger til Íslands og var hann þá að undirbúa hið mikla bókverk um fornnorræna myndlist. Hann hafði meðferðis nokkur grafísk verk sem hann, að tillögu Sigurjóns, gaf Félagi íslenskra myndlistarmanna til að afla tekna fyrir fyrirhugaðan sýningarsal. Listasafn Íslands keypti verkin. Síðar var Listasafninu gefið málverkið Tron II sem Asger hafði gefið Sigurjóni á Danmerkurárum hans.

Með því að stilla saman þeim listaverkum eftir Asger Jorn sem eru í eigu Listasafns Íslands og völdum verkum Sigurjóns frá svipuðum tíma, er efnt til samtals sem ætlað er að varpa ljósi á ókönnuð tengsl milli þessara áhrifamiklu listamanna. 

Sýningarstjóri, Birgitta Spur

 

Safnið er opið alla daga frá 13 - 17. 

Jón Proppé listheimspekingur flytur erindið „Skapandi andspyrna: Framsæknir listamenn í skugga fasismans“ í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 12. nóvember 2017.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)