NÝ VEFSÝNING Á SARPUR.IS

8.10.2018

Ný vefsýning á Sarpur.is - Karl Einarsson Dunganon í safneign Listasafns Íslands.  Hér má skoða sýninguna - njótið vel!Nú stendur einnig yfir sýningin Véfréttir - Karl Einarsson Dunganon í Listasafni Íslands. Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10 - 17. 

Karl Kerúlf Einarsson fæddist á Íslandi árið 1897 en flutti barnungur til Færeyja og síðar til Danmerkur þar sem hann bjó lengst af ævinnar og lést þar árið 1972. Hann tók sér ungur nafnið Dunganon en gekk einnig undir öðrum nöfnum sem þjónuðu því hlutverki sem hann lék hverju sinni. Líklegast er hertoginn af St. Kildu þekktasti titillinn sem Karl tók sér. Þó hann kæmi aldrei til þessa skoska eyjaklasa, sló hann eign sinni á hann og lýsti sig æðsta stjórnanda, útbjó sér vegabréf, ríkisstimpil, póststimpil og útdeildi riddaraskjölum.

Karl Einarsson Dunganon, hertogi af St. Kildu, var lífskúnstner og ljóðskáld sem ferðaðist víða og bjó um lengri og skemmri tíma í helstu borgum Evrópu. Dunganon gaf út sína fyrstu ljóðabók árið 1931 en upp úr 1946 hóf hann að teikna og mála og myndskreytti hann mörg ljóða sinna. Dunganon var sjálflærður á sviði myndlistar en verk hans bera þó vott um þekkingu á yngri og eldri list frá ýmsum menningarsvæðum. Hann taldi sig sjá inn í aðra og huldari heima og tjáir oft í myndum sínum eins konar sýnir eða drauma, þó einnig séu hversdagsleg störf og athafnir viðfangsefni hans. Skreytið er aldrei langt undan og myndirnar ávallt litríkar, frásagnakenndar og ævintýralegar.

Á vefsýningunni má meðal annars sjá tæplega 200 verk úr myndröðinni Oracles (Véfréttir) sem Dunganon gerði við ljóðabálk sinn Oracles of St. Kilda sem telur 320 ljóð. Myndefnið er fjölbreytt, meðal annars ýmiss konar dýr og furðuverur, spúandi eldfjöll, fagrar konur og fengsælir veiðimenn. Verkin eru unnin á tímabilinu 1946–1960, öll svipuð að stærð, unnin á pappír með fjölbreyttri gerð lita og lökkuð. 

Karls Einarssonar Dunganons hafði alla tíð sterkar taugar til Íslands og arfleiddi íslensku þjóðina að verkum sínum. Varðveitir Listasafn Íslands rúmlega tvö hundruð myndverk, en ljóð hans, úrklippubækur og önnur gögn eru geymd í Þjóðskjalasafni Íslands.  

 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)