SUNNUDAGSLEIÐSÖGN: ELINA BROTHERUS - LEIKREGLUR

29.1.2018

Pétur Thomsen leiðir gesti um sýninguna Elina Brotherus - Leikreglur, í Listasafni Íslands, sunnudaginn 25. febrúar kl. 14.Listasafn Íslands sýnir ný verk eins þekktasta ljósmyndara samtímans, Elinu Brotherus.

Elina Brotherus (f. 1972 í Finnlandi) fæst að mestu við gerð sjálfsmynda og landslagsmynda. Í verkum Elinu má skynja sterka nálægð hennar sjálfrar en hún kemur fyrir í öllum ljósmynda- og vídeóverkum sýningarinnar, berskjölduð og hispurslaus. Verkin eru unnin á árunum 2014-2017 og einkennast af marglaga frásögnum sem sveiflast á milli kímni og trega. Í mörgum þeirra setur Elina sér leikreglur og fer eftir þeim innan ramma myndavélarinnar, sem er í senn leikfélagi hennar og sálarspegill.

Verk Elinu vöktu snemma athygli vegna nálgunar hennar á notkun ljósmiðla til endurspeglunar á tilfinningalífinu og leikriti hins daglega lífs. Hún kannar persónulegar en í senn sammannlegar upplifanir, sjálfsmyndina, tímahugtakið, nærveru og fjarveru ástarinnar.Elina Brotherus nam ljósmyndun í Helsinki og býr í Finnlandi og Frakklandi. Hún hóf að sýna verk sín í lok 10. áratugarins sem hluti af hinum þekkta Helsinki School hópi ljósmyndara í Finnlandi og hafa verk hennar síðan verið sýnd víða, s.s. í Centre Pompidou í París; Neue Berliner Kunstverein í Berlín; Þjóðarlistasafni Finnlands Ateneum í Helsinki og Louisiana nútímalistasafninu í Danmörku. Verk Elinu voru sýnd í i8 Gallery í Reykjavík árið 2000 og á samsýningu í Gerðarsafni í Kópavogi árið 2006.

Sýningarstjóri: Birta Guðjónsdóttir

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir meðlimi Selmuklúbbsins. 

Sýningin er á dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2018Ljósmynd: Elina Brotherus, Orange Event, 2017. Úr myndaröðinni Règle du Jeu / Leikreglur.

Courtesy Elina Brotherus and gb agency, Paris / carte blanche PMU 2017

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)