SAFNANÓTT

1.2.2017

Opið verður frá kl. 18 til 23 í öllum söfnum. Verið velkomin! Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7

Kl. 20.00 leiðsögn um sýninguna Valtýr Pétursson. Dagný Heiðdal, sýningarstjóri og deildarstjóri listaverkardeildar, leiðir gesti um sýninguna. Tilvalið tækifæri til að kynnast þessum áhrifamikla listamanni. NÁNAR

Kl. 20.45 Listamaðurinn Ina Otzko verður með kynningu á verkum sínum fyrir framanVasulka-stofu. NÁNAR

Kl. 21.15 Næturljóð að kvöldi. Hvíld við kvöldtóna. Flytjendur munu bjóða gestum og gangandi upp á íslenskar vögguvísur í bland við erlend kvöldljóð í safninu.NÁNAR

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70Kl. 20:30 og kl. 21.30 Tónleikar Dúó Landon. Á gömlum merg. Dúó Landon leikur tónlist þriggja alda í Listasafni Sigurjóns á safnanótt. Elstu verkin eru frá 17. öld, en það yngsta frá liðnu ári.Safnanætur-strætó, leið C ekur að Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. NÁNAR

Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti 74Kl. 19:00-23:00 Kveikjan og frásögnin - Eldgosamyndir Ásgríms Jónssonar. Rakel Pétursdóttir sýningarstjóri sýningarinnar Ógnvekjandi náttúra ræðir við gesti um tilurð og kveikjur eldgosamynda Ásgríms Jónssonar. Heitt á könnunni.NÁNAR

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)