SAMSKEYTINGAR UPPBYGGING VERKA SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR

2.9.2016

Næstkomandi laugardag 3. september, kl. 14, verður opnuð ný sýning í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar  undir heitinu  SAMSKEYTINGAR  - uppbygging verka Sigurjóns Ólafssonar.

Sigurjón Ólafsson er þekktur sem myndhöggvari af gamla skólanum. Auk þess að höggva í stein, tré og jafnvel málm var hann ötull við að móta í leir og gifs og sjóða saman listaverk úr málmi. Stóran hluta verka hans frá sjöunda og áttunda áratug liðinnar aldar má einnig flokka undir það sem kallað hefur verið samskeytingar „assemblage“. Þá er viðarbútum, tilsniðnum eða eins og þeir koma fyrir, skeytt utan á tiltekinn kjarna  svo úr verður heildstætt listaverk. Með þessari aðferð opnaði Sigurjón  enn nýjar leiðir til að víkka tjáningarsviðið í list sinni.

Á þessari sýningu gefur að líta úrval verka af þessum toga, sem Birgitta Spur hefur valið. Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, ritar aðfaraorð í sýningarskrá.

Fram til 27. nóvember verður sýningin í Listasafni Sigurjóns opin um helgar milli klukkan 14 og 17. Hin vistlega kaffistofa safnsins er opin á sama tíma.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)