SUNNUDAGSLEIÐSÖGN: <br>T E X T I -- VALIN TEXTAVERK ÚR SAFNI PÉTURS ARASONAR OG RÖGNU RÓBERTSDÓTTUR

19.10.2016

Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, verður með leiðsögn um sýninguna TEXTI – VALIN TEXTAVERK ÚR SAFNI PÉTURS ARASONAR OG RÖGNU RÓBERTSDÓTTUR, sunnudaginn 23. október kl. 14. Sýningastjóri er Birta Guðjónsdóttir deildarstjóri sýningadeildar Listasafns Íslands.

Á sýningunni T E X T I eru sýnd textaverk um fimmtíu íslenskra og alþjóðlegra myndlistarmanna. Verkin á sýningunni eru valin úr um 1000 verka safneign listsafnaranna Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur en þau hafa safnað íslenskri og erlendri samtímamyndlist frá því á sjöunda áratugnum.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)