SUNNUDAGSLEIÐSÖGN: VALTÝR PÉTURSSON

1.11.2016

Dagný Heiðdal, listfræðingur og deildarstjóri listaverkadeildar Listasafns Íslands leiðir gesti um sýninguna VALTÝR PÉTURSSON, sunnudaginn 12. mars kl. 14:00. Dagný er sýningarstjóri sýningarinnar.

Valtýr Pétursson (1919−1988) var brautryðjandi abstraktlistar hér á landi, afkastamikill listmálari, mikilvirkur gagnrýnandi og virkur þátttakandi í félagsstarfi listamanna. Sýningunni er ætlað að gefa yfirlit yfir fjölbreyttan listferil Valtýs.

Síðasta yfirlitssýning á verkum Valtýs Péturssonar var haldin í Listasafni Íslands árið 1986 og er því löngu tímabært að kynna þennan fjölhæfa myndlistarmann fyrir nýjum kynslóðum og veita þeim sem eldri eru tækifæri til að endurnýja kynnin, en margt í verkum Valtýs kallast á við samtíma okkar og gefur tilefni til að skoða þau í nýju ljósi.

Sýningin í Listasafni Íslands er í tveimur sölum safnsins og henni fylgir vönduð bók með fræðilegum greinum um listferil Valtýs og störf hans sem listgagnrýnanda, auk ítarlegs æviferils og ljósmynda af listaverkum.

Sýningin, sem og bókin um Valtý og verk hans, er unnin í samvinnu við Listaverkasafn Valtýs Péturssonar sem var stofnað að honum látnum og varðveitir fjölda málverka og pappírsverka auk bréfa, blaðagreina, ljósmynda og annarra heimilda sem tengjast Valtý Péturssyni og veita ómetanlega innsýn í ævi hans og störf.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)