HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR / SHOPLIFTER
TAUGAFOLD VII / NERVESCAPE VII
Hrafnhildur Arnardóttir (f. 1969), einnig þekkt sem Shoplifter, er íslenskur myndlistarmaður sem búsett er í New York. Á undanförnum 15 árum hefur hún á umfangsmikinn hátt kannað notkun og táknrænt eðli hárs, og sjónræna og listræna möguleika þessarar líkamlegu afurðar. Í verkum sínum fæst hún við sögu þráhyggju mannsins gagnvart hári og hvernig má upplifa hár sem birtingarmynd sköpunar í nútíma menningu, sem tekst á við hugmyndir á mörkum þráhyggju eða blætis. List hennar hverfist að mestu um skúlptúra, staðbundnar innsetningar og veggverk, sem fjalla jafnan um hégóma, sjálfsmynd, tísku, fegurð og goðsagnir í almannavitundinni. Hrafnhildur sækir áhrif frá dægurmenningu og fjöldaframleiðslu, auk alþýðulistar, naívisma og handverks, sem hefur mikil áhrif á sköpun hennar.
Fínlegur húmor gegnir stóru hlutverki í list Hrafnhildar og endurspeglast vel í notkun hennar á miklu magni marglits gervihárs, hárlenginga sem hún hnýtir, flækir og fléttar með hinu fallega og gróteska, og teflir saman upplifun á fjöldaframleiddum munum andspænis þeim einstöku. Hún hefur unnið með listamönnum frá öllum heimshornum, þar á meðal íslensku tónlistarkonunni Björk en fyrir umslag plötu hennar Medúlla árið 2004 skapaði Hrafnhildur „hár-hjálm“. Árið 2008 starfaði Hrafnhildur með listahópnum a.v.a.f að verki fyrir framhlið MoMA; Samtímalistasafnsins í New York. Meðal nýjustu verka hennar er röð viðamikilla innsetninga, sem ber heitið Nervescape og hún hefur unnið sérstaklega fyrir stórar stofnanir, s.s. Nervescape IV á Norræna tvíæringnum í samtímamyndlist – Momentum 8, í Moss, Noregi árið 2015, Nervescape V , í Samtímalistasafni Queensland í Brisbane, Ástralíu árið 2016 og Nervescape VI í Fílharmóníunni í Los Angeles, Bandaríkjunum fyrr á árinu árið 2017.
Mynd: Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter, Nervescape VII , 2017. Innsetning í Listasafni Íslands.
Listamaður: Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter
Sýningarstjóri: Birta Guðjónsdóttir
Textaskrif: Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter, Birta Guðjónsdóttir & Alanna Heiss
Þýðandi: Birta Guðjónsdóttir
Framleiðandi verkefna Hrafnhildar Arnardóttur / Shoplifter: Lilja Hrönn Baldursdóttir
Verkstjóri á vinnustofu Hrafnhildar Arnardóttur / Shoplifter: Ragnheiður Káradóttir
Uppsetning sýningar: Baldur Geir Bragason, Geirfinnur Jónsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir & Þröstur Valgarðsson
Sjálfboðaliðar:
Anna Katrín Richter.
Anna María Tómasdóttir
Bryndís Rut Kristófersdóttir
Diljá Þorvaldsdóttir
Elín Rut Bieltvedt
Hjördís Gréta Guðmundsdóttir
Petra Bender
Zara Rún Bieltvedt
Tinna Rún Davíðsdóttir
Una Baldvinsdóttir
Spjall sýningarstjóra við Hrafnhildi Arnardóttir / Shoplifter 28. maí 2017.