BÓKA- OG heimildasafn
aðsetur og safnkostur
Á bóka- og heimildasafni Listasafns Íslands er lögð áhersla á varðveislu og miðlun efnis sem tengist rannsóknarsviði stofnunarinnar, það er íslenskri myndlist. Á heimildasafninu er að finna bækur, sýningarskrár og úrklippusafn um íslenska myndlist, en einnig myndasafn sem hefur að geyma stafrænar myndir af listaverkum í eigu Listasafns Íslands.
Bóka- og heimildasafnið er í skrifstofubyggingu Listasafns Íslands við Laufásveg 12, 101 Reykjavík.
Bóka- og heimildasafnið er opið mánudaga - föstudaga kl. 9 - 12 og 13 - 15.
Sími 515 9603 / 515 9604.
Bóka- og heimildasafnið er meðlimur í Arlis/Norden - samtökum listbókasafna á Norðurlöndum.