Water and Blood
2019
Eirún Sigurðardóttir 1971-, Jóní Jónsdóttir 1972-, Gjörningaklúbburinn
Exhibition text
Vatn og blóð er vídeóverk eftir Gjörningaklúbbinn, sem sækir innblástur í líf og list Ásgríms Jónssonar listmálara. Í verkinu mætir fortíðin nútímanum þar sem sköpunarkrafturinn, innsæið og náttúran skipa stóran sess í óræðum heimi. Við undirbúning verksins var sjáandi fenginn til að komast í tengsl við Ásgrím sem tjáði sig um orkuna sem býr í listinni og sameiginlega þörf listamanna fyrir að skapa. Þetta er í annað sinn sem Gjörningaklúbburinn nýtur aðstoðar miðils við undirbúning á verki, en fyrst var það við gerð þátttökugjörningsins Sálnasafn (2016), og heitið sem myndlistarkonurnar í Gjörningaklúbbnum hafa gefið aðferðinni er miðill-miðill.


LÍ-11865
- Year2019
- TypeNýir miðlar / Vídeóverk, Nýir miðlar
- SizeTímalengd: 00:23:00
- SummaryListasafn, Náttúra, Málverk, + mótív, Dans, Andi, Safn, Vatn, Miðill, Samtal, Listamaður
- Main typeMyndlist/Hönnun
- Secondary TypeAðalskrá
- MaterialÓflokkað (í vinnslu) / Vídeó, Hljóð
- Edition / Series1 / 3
Copyright
Gjörningaklúbburinn, Myndstef
