Arc

2023

Kristín Morthens 1992-

Exhibition text
Um verkið: Sveigja er abstrakt málverk í grunninn en hefur þó sterka skírskotun í landslag og frásögn. Verkið dregur innblástur af sjónum, þara, ryði og ímyndaðri tilfinningu þess að dragast eftir sandi á botni hafs eins og skel eða gamall steinn. Stóra olíu formið fyrir miðju spilar sem aðalpersóna og er í senn þung, létt og gagnsæ. Titillinn Sveigja kemur út frá hreyfingunni í málverkinu en fyrir miðju í neðri hluta verksins kemur armur út frá stóra olíu forminu sem glennir út fingur og virðist draga með sér hluta af myndinni. Fyrir miðju til hægri byrjar annað eins form sem gefur til kynna endurtekningu á frásögninni eða annarri persónu sem heldur áfram út fyrir verkið. Grátóna spreyjuð form sitja í bakgrunni eins og stólpar og vísa í kletta eða kórala neðansjávar en hvernig þau eru máluð svipar í senn til líkama. Litapalletta málverksins eru dempuð með nokkrum augnablikum af skærari tónum í bláum, köldum bleikum og ryðrauðum. Litapallettan ýtir undir togstreitu flata innan málverksins en sú togstreita er endurtekin í uppbyggingu rýmis og ólíkra efnisþátta svo sem sprey málningar, olíu og þurrpastela. Enskur titill verksins Arc kemur einnig út frá myndbyggingu verksins en stóra olíuformið ber þungann á toppnum eins og burðarvirki boga. Verkið var upprunalega sýnt á einkasýningunni Andrými á hafsbotni, í Þulu 2023. Um listamann: Kristín Morthens (f.1992) býr og starfar í Reykjavík en lærði í Torontó í Kanada við OCAD Univeristy og Chicago í Bandaríkjunum við School of The Art Institute of Chicago. Hún útskrifaðist með BFA úr OCAD Univeristy árið 2018. Í málverkum og höggmyndum Kristínar kannar hún nánd, hreyfingu, líkamleika og efniskennd í gegnum lífræn form í óhlutbundnum rýmum sem hafa skírskotun í landslag. Tilfinning fyrir rými og þyngd í verkunum er teygð og minnir þannig á hafsbotn, drauma eða geima. Í verkum Kristínar ríkir ekki tvíhyggja, heldur eru þar fjölmörg dulræn fyrirbæri sem eiga samskipti hvert við annað í heildrænu samlífi. Myndirnar sýna líkamleg form sem eru á sama tíma sjálfstæðir hlutir en eru einnig abstrakt laugar af pensilstrokum sem hægt er að falla ofan í. Hreyfingin í pensilskriftinni er lykilþáttur í verkunum þar sem pensilstrokan verður oft að sjálfstæðu fyrirbæri innan myndflatarins. Í málverkunum notast hún við ólík efni og áferðir eins og olíu, sprey-málningu og þurrpastela í gegnum lagskiptar aðferðir svo sem stensla og mismunandi grunn-aðferðir á yfirborði strigans. Í verkum hennar gætir áhrifa úr ný-efnishyggju og pósthúmanisma þar sem andstæð yfirborð og efni undirstrika hugmyndir um mörk og tilvist. Kristín hefur sýnt verk sín á Íslandi, Evrópu og N-Ameríku og er í safneign hjá Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Seðlabankanum, Eimskipafélaginu og Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
LÍ-12069
  • Year2023
  • TypeMálaralist / Blönduð tækni
  • Size180 x 140 x 0 cm
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • Secondary TypeAðalskrá
  • MaterialÓflokkað (í vinnslu) / Vökvi / Olía, Lífræn efni / Textíll / Ýmis vefjarefni / Strigi, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Pastellitur
  • MethodTækni/Listmálun, Tækni/Spreyað
Copyright

Kristín Morthens, Myndstef

Source

Kristín Morthens, Andrými á hafsbotni/Air Under Water, Þula gallerí, Marshall-húsinu Grandagarði 20, 3. júní - 2. júlí 2023. Sýningarbæklingur.

Treasures of Icelandic Art

The museum is open every day from 10am - 5pm.