Konur horfa til Heklu

1960

Jón Stefánsson 1881-1962

LÍ-1329
  • Year1960
  • TypeFlokkun LÍ / Mannamyndir, Flokkun LÍ / Landslagsmyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Size73 x 92 x 0 cm
  • SummaryLandslag, Fjall, Kona
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • Secondary TypeAðalskrá
  • MaterialÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • MethodTækni/Málun
Description

Landslagsmyndir Jóns voru mannlausar í fyrstu, en er leið á fjórða áratuginn fær maðurinn þar rúm, oft þar sem hann stendur andspænis stórbrotinni náttúrunni. Þegar Jón málaði mynd sína af konunum tveim, sem horfa til Heklu, hafði orðið breyting á list hans í átt til meiri sundurgreiningar í lit og formi. Myndskipunin virðist hins vegar vera hin sama og áður. Enn er sjónarhornið vítt og myndin byggð á þrem stigum inn í myndrýmið, með fjallið í baksýn. Í forgrunni standa tvær konur, önnur lengst til vinstri, hin til hægri, og snúa baki við áhorfandanum, þar sem þær standa grafkyrrar og horfa í átt til fjallsins eins og heiti verksins gefur til kynna. Mynd landsins er ekki eins formföst og áþreifanleg og í eldri myndum Jóns heldur leyst upp með andstæðum litadeplum. Úr blámanum í fjarska rís draumkennd mynd fjallsins og er sem konurnar horfi á fjallið bergnumdar. Hér skynjar áhorfandinn mátt náttúrunnar, ekki aðeins í stærð hennar heldur einnig seiðmagni sem listamaðurinn hefur laðað fram með skynrænni litameðferð. Í þessu verki má því finna andblæ djúprar íhygli sem leiðir hugann að verkum rómantískra málara á síðustu öld þar sem maðurinn er oft sýndur hugleiða hið mikla sköpunarverk sem náttúran er. Listasafn Íslands keypti málverkið árið 1966. (Júlíana Gottskálksdóttir, „Umfjöllun um tíu meginmyndir Jóns Stefánssonar í Listasafni Íslands“, Jón Stefánsson 1881-1962 (Listasafn Íslands: Reykjavík, 1989).)

Copyright

Jón Stefánsson-Erfingjar, Myndstef

Treasures of Icelandic Art

The museum is open every day from 10am - 5pm.