Eruption
1964
Nína Tryggvadóttir 1913-1968
Exhibition text
Nína Tryggvadóttir var brautryðjandi í íslenskri myndlist og fyrsti kvenkyns abstraktmálari Íslendinga, einn fárra listamanna síns tíma sem gátu starfað í alþjóðlegu samhengi og eygt von um að setja mark sitt á listastefnur líðandi stundar. Nína hélt ung til Danmerkur til náms við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn og síðar lá leið hennar til framhaldsnáms í París og New York, þar sem hún bjó um nokkurt skeið. Hún nýtti ýmsa listmiðla, málverk, klippimyndir, mósaíkmyndir og glerverk og er verk hennar að finna á söfnum víðs vegar um heim. Nína sýndi verk sín á fjölmörgum einkasýningum og samsýningum á Íslandi, í Bandaríkjunum og Evrópu. List hennar þróaðist stöðugt og endurspeglar forvitni, þar sem hugurinn er leitandi og breytingar fela í sér nýtt upphaf og nýjar leiðir í myndlistinni.
Nína Tryggvadóttir was a pioneer in Icelandic art, Iceland´s first female abstract painter, one of very few artists of her time who managed to work in an international context and who had the potential to impact the current art styles of her time. Nína went to Denmark at a young age to study at the Royal Danish Academy of Fine Arts and studied further in Paris and New York, where she resided for a period of time. She worked in various media including painting, collage, mosaics and glass, and her works can be found in museums around the world. Nína’s career included numerous solo exhibitions and group exhibitions in Iceland, the US and Europe. Her art was in constant development and reflected her relentless curiosity, with changes of direction signalling new ways of approaching art.

LÍ-1383
- Year1964
- TypeFlokkun LÍ / Abstraktmyndir, Málaralist / Olíumálverk
- Size131.5 x 105 x 0 cm Stærð með ramma: 135 x 108,5 x 0 cm
- SummaryAbstrakt
- Main typeMyndlist/Hönnun
- Secondary TypeAðalskrá
- MaterialÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
- MethodTækni/Málun
- Edition / Series1
Copyright
Myndstef, Nína Tryggvadóttir-Erfingjar
