Fish-Processing Work

1944

Gunnlaugur Scheving 1904-1972

Exhibition text
Fólk við vinnu sína var Gunnlaugi Scheving alla tíð mjög hugleikið og frjótt umfjöllunarefni. Gunnlaugur sagði sjálfur að hann hefði mest gaman af að mála fólk, einkum að vinnu úti í náttúrunni, en sagðist vara sig á fjöllunum, þar sem stór fjöll gerðu manninn lítinn. Honum fannst samt gaman að hafa landslag á myndunum en manneskjan var aðalatriðið. Árið 1944 vann Gunnlaugur Scheving röð gvassmynda af fólki við vinnu sína bæði til sjávar og sveita og sjáum við hér tvær af þessum myndum sem beina athyglinni að fiskvinnu. Annars vegar saltfiskverkun á stakkstæði þar sem verið er að breiða fisk til þerris undir berum himni. Hins vegar sjáum við tvo menn gera að fiski í einhvers konar hjalli eða skúrbyggingu. Gvasslitir eru þekjandi vatnslitir sem gefa sérstaka matta áferð og eru oft notaðir við skissugerð fyrir olíumálverk. Þó að myndirnar sé dregnar upp með grófum dráttum ná þær að fanga verklag, vinnufatnað og kynjahlutverk við fiskvinnslu um miðja síðustu öld.   Gunnlaugur Scheving always had a keen interest in people at work, which was a source of abundant inspiration. The artist himself remarked that he most enjoyed painting people, especially at their work outside in nature; but he said he avoided mountains, as big mountains made human figures small. But he liked to include landscape in his paintings, although the focus was on the human figure. In 1944 he made a series of gouaches of people at work, both by the sea and in the countryside. We see here two of the paintings that focus on fish-processing work. One depicts saltfish processing, where the salted fish is spread to dry in the open air. In the other we see two men gutting and cleaning fish in some kind of shed. Gouache is an opaque form of watercolour with a matte texture; it is often used in preliminary sketches for oil paintings. While the images are roughly drawn, they vividly capture the tasks in hand, clothing and gender roles in fish-processing in the mid-20th century.
Lí 3600, Gunnlaugur Scheving, Fish Processing
LÍ-3600
  • Year1944
  • TypeFlokkun LÍ / Mannamyndir, Flokkun LÍ / Atvinnulífsmyndir / Sjómennska, Málaralist / Gvassmyndir
  • Size76 x 97 x 0 cm Stærð með ramma: 81 x 103 x 0 cm
  • SummaryAtvinnulífið, Mannamynd, óþ. myndefni, Sjávarútvegur
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • Secondary TypeAðalskrá
  • MaterialÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Þekjulitur, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Gvasslitur, Lífræn efni / Pappír
  • MethodTækni/Málun
  • Donor commentsGefandi Guðrún Hvannberg og synir, 1976
Copyright

Myndstef, Listasafn Íslands

Treasures of Icelandic Art

The museum is open every day from 10am - 5pm.