The Boss Boat

1929 - 1930

Gunnlaugur Scheving 1904-1972

Exhibition text
Bassabátur er opinn árabátur með sérstöku lagi sem þekktist á Austfjörðum og Gunnlaugur Scheving kynntist á uppvaxtarárum sínum á Seyðisfirði. Bassabátinn málaði hann nýkominn úr námi í Danmörku og minnir málverkið um margt á það sem var efst á baugi í danskri list á þeim tíma, bæði hvað varðar tempraða litanotkun og myndefni. Gunnlaugur tilheyrði þeirri kynslóð listamanna sem kom fram um og eftir 1930 og beindi sjónum sínum að vinnandi fólki og hinu hversdagslega umhverfi, ólíkt eldri listamönnum sem fengust fyrst og fremst við landslagsmálverk. Hann vakti ungur að árum athygli með málverkum sínum af lífi íslenskra sjómanna, myndefni sem var fátítt á þeim tíma en átti eftir að verða eitt helsta viðfangsefni hans sem listamanns. Áhugavert að bera þetta verk saman við um 30 árum yngra verk hans, Fiskibát, sem er einnig á þessari sýningu og byggir á ólíku sjónarhorni og efnistökum.   A bassabátur (boss boat) is an open rowing boat of a specific design that was used in the East Fjords of Iceland. Gunnlaugur Scheving was familiar with such vessels in his early years in the fishing village of Seyðisfjörður. He painted The Boss Boat shortly after he returned to Iceland after his art training in Denmark; the painting has much in common with trends in Danish art at the time, both with respect to the muted colour palette and the subject. Gunnlaugur was a member of the generation of artists who emerged in the early 1930s who focussed on working people and the everyday environment, unlike previous generations of artists who had primarily painted landscapes. As a young man he attracted attention for his paintings of the life of Icelandic fishers – a theme which was unusual at that time, but would be one of his principal subjects in his art. It is interesting to compare this painting with Fishing Boat, painted about 30 years later. Also on display here, Fishing Boat exemplifies different perspective and technique.
LÍ 391, Bassabáturinn, The Boss Boat, 
Gunnlaugur Scheving, Atvinnulífsmyndir - Sjómennska, Árabátur, Sjómaður
LÍ-391
  • Year1929 - 1930
  • TypeFlokkun LÍ / Atvinnulífsmyndir / Sjómennska, Málaralist / Olíumálverk
  • Size110 x 200 x 0 cm Stærð með ramma: 129 x 223,5 x 0 cm
  • SummarySjómaður, Árabátur
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • Secondary TypeAðalskrá
  • MaterialÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • MethodTækni/Málun
Copyright

Listasafn Íslands, Myndstef

Source

Björn Th. Björnsson, Ísl. myndlist II, bls. 52-53. (mynd). Bragi Ásgeirsson, "Bassabáturinn", Morgunblaðið, 23.11.1997.

Treasures of Icelandic Art

The museum is open every day from 10am - 5pm.