Stórisjór og Vatnajökull

1921

Þórarinn B. Þorláksson 1867-1924

Exhibition text
Þórarinn B. Þorláksson var einn af frumkvöðlum nútímamyndlistar á Íslandi og fyrstur íslenskra málara til að halda einkasýningu hér á landi árið 1900. Þórarinn hélt til Kaupmannahafnar til náms í myndlist árið 1895 og þótti mörgum hann þá vera fullgamall til að leggja út á þá varhugaverðu braut. Í námi kynntist Þórarinn síðrómantísku landslagsmálverki, sem hann tileinkaði sér og endurómaði þá þjóðernisrómantík er ríkti í íslenskri menningarumræðu á ofanverðri 19. öld. Í verkum Þórarins er landið gjarnan hjúpað svalri birtu sumarnætur og speglanir á sléttum vatnsfleti auka á andrúmsloft kyrrðar og vekja tilfinningu fyrir hinu háleita. Þetta málverk af stórbrotnu og eyðilegu landslagi vestur af Vatnajökli vann Þórarinn út frá mynd sem hann gerði í ferð sinni að Langasjó og inn í Veiðivötn á Landmannaafrétti árið 1906. Uppbyggingin er dæmigerð fyrir verk Þórarins, sjóndeildarhringurinn er víður og leitar augað inn í myndrýmið, stig af stigi frá dökkum forgrunni að bláum fjöllum og yfir á bjarta jökulröndina sem ber við himin í bakgrunni.   Þórarinn B. Þorláksson was a pioneer of modern art in Iceland at the beginning of the 20th century. During his studies in Copenhagen, Þórarinn became acquainted with late romantic landscape painting, which he made his style. His interest in landscape is also believed to have arisen from the national-romanticism that dominated Iceland’s cultural discourse in the late 19th century. In 1900 Þórarinn held the first solo exhibition by an Icelandic painter in Iceland. In his paintings the land is often veiled with the cool light of summer nights; the reflection on the smooth surface of the lake enhances the air of tranquillity and instils in the spectator a sense of the sublime. Þórarinn based this painting of the sublime and bare landscape west of Vatnajökull  on a drawing he made on his trip to Langisjór and into Veiðivötn in Landmannaafrétt in 1906. The visual structure is typical of Þórarinn´s works; the horizon is wide and the eye searches out the picture plane, passing step by step from the dark foreground to the blue mountains and over the bright rim of the glacier outlined against the sky.
LÍ-4731
  • Year1921
  • TypeFlokkun LÍ / Landslagsmyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Size46.5 x 89 x 0 cm Stærð með ramma: 63,2 x 106 x 0 cm
  • SummaryLandslag, Stöðuvatn, Jökull
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • Secondary TypeAðalskrá
  • MaterialÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • MethodTækni/Málun
  • Donor commentsGjöf Guðrúnar Þórarinsdóttur og sr. Sigurjóns Guðjónssonar
  • Edition / Series1

Treasures of Icelandic Art

The museum is open every day from 10am - 5pm.