Hommage à Grieg

1971

Sigurður Guðmundsson 1942-

Exhibition text
Sigurður Guðmundsson hóf listrænan feril sinn á sjöunda áratugnum og er einn helsti fulltrúi hugmyndalistar hér á landi. Hann var meðlimur í framúrstefnuhópnum SÚM sem var stofnaður árið 1965, og hélt sína fyrstu einkasýningu í Gallerí SÚM árið 1969. Sigurður hefur lengst af starfað í Hollandi og Kína. Hann vinnur í fjölda miðla, ljósmyndir, höggmyndir, teikningar, grafík og gjörninga, auk þess sem hann hefur samið tónverk og skrifað bækur. Í ljósmyndaverkum frá upphafi áttunda áratugarins skoðar hann samsvörun tungumáls og hlutveruleika út frá frásagnarmöguleikum ljósmyndarinnar. Ljósmyndaverkið Hommage à Grieg frá 1971 er dæmigert verk fyrir þau skáldlegu frásagnartilþrif sem einkenndu verk hans á áttunda áratugnum. Listamaðurinn stendur við borð úti í náttúrunni sem á er ferðaplötuspilari, og beinir spenntum boga með ör í átt til himins. Myndinni fylgdi skýringartextinn: While I listened to music by Edvard Grieg I shot ten arrows into the sky, eins og til að undirstrika takmarkaða frásagnarmöguleika ljósmyndarinnar sjálfrar. Hér er inntak verksins samtvinnað framsetningu þess, ólíkt því sem var í fyrri verkum þar sem ekkert mátti skyggja á sjálft innihaldið.     Sigurður Guðmundsson is one of Iceland’s best-known representatives of Conceptual Art. He was an important member of the vanguard SÚM collective founded in 1965 and had his first solo exhibition in 1969 at Gallerí SÚM in Reykjavík. He has since spent most of his career in the Netherlands and China. His works span several mediums, including photography, sculpture, drawings, engravings and performance. He has also composed music and written books. In his photographic work from the early seventies, he explored the resonance between language and objective reality through the narrative power of photographs. Hommage à Grieg from 1971 represents the lyrical and dramatic style characteristic of Sigurður’s work from that time. The artist stands in an open field next to a table that holds a portable turntable, pointing an arrow on a drawn bow up to the sky. The text accompanying the picture is: While I listened to music by Edvard Grieg, I shot ten arrows into the sky. The text seems intended to draw attention to the limited narrative powers of the photograph itself. Here, the subject of the work has become intertwined with the presentation of it, unlike in Sigurður’s earlier work, where the content of the work was central.
LÍ-5537
  • Year1971
  • TypeFlokkun LÍ / Mannamyndir, Ljósmyndun / Svarthvítar ljósmyndir
  • Size110 x 80 x 0 cm
  • SummaryMaður, Ör, í vopn, Tónlist, Bogi, sem vopn
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • Secondary TypeAðalskrá
  • MaterialLífræn efni / Pappír
  • MethodTækni/Ljósmyndun
  • Edition / Series1 / 1
Copyright

Sigurður Guðmundsson

Source

Sigurður Guðmundsson, Zsa-Zsa Eyck ritstj., Mál og menning, 1991, bls. 17, 64 (mynd).

Treasures of Icelandic Art

The museum is open every day from 10am - 5pm.