Sólarleikur
1999
Hreinn Friðfinnsson 1943-2024
Exhibition text
Hreinn Friðfinnsson er einn af leiðandi listamönnum íslenskrar konseptlistar og tók þátt í stofnun SÚM-hópsins á sjöunda áratugnum. Verk hans mótuðust einnig fljótt af flúxushreyfingunni. Hreinn hefur notað ýmsa miðla í listsköpun sinni, ljósmyndir, teikningar, málverk, skúlptúra, fundna hluti og innsetningar.
Hvítt sólarljósið er í raun blanda af öllum litum og í verkinu Sólarleikur bregður Hreinn á leik með þrístrent gler eða prisma sem brýtur upp sólargeisla svo litróf ljóssins verður sýnilegt og gerir honum í raun kleift að grípa regnbogann. Augnablikið er fest á filmu og gert ódauðlegt. Litrófið í lófanum er heillandi og leiðir hugann að ævintýrum þar sem fjársjóður er falinn við enda regnbogans. Sólarleikur er dæmigert meðal verka Hreins Friðfinnssonar, sem eru í senn ljóðræn og innileg, og hefur þeim verið líkt við heimspekilega könnunarferð um hverfula hversdagslega tilveru. Verkin snúast gjarnan um eitthvað loftkennt og ósnertanlegt eins og ljósið eða vindinn. Verk hans höfða ekki einvörðungu til þess sjónræna, heldur örva þau einnig hugarflug og minningar áhorfenda.
Hreinn Friðfinnsson is a leading Icelandic conceptual artist and was one of the founders of the SÚM group in the 1960s. Early on, his work was influenced by the Fluxus movement. Hreinn has used a range of media in his art: photography, drawing, painting, sculpture, found objects and installations.
White sunlight is essentially a mixture of all colours. In the work Sun Play Hreinn plays with a prism, breaking up sun rays so that the colour spectrum of the light appears as a rainbow. The moment is captured on film and immortalized. The enchanting colour spectrum in the palm of the hand draws the mind to fairy tales in which a treasure is hidden at the end of the rainbow. Sun Play is typical of Hreinn Friðfinnsson´s work, which is by turns lyrical and heartfelt, and has been likened to a philosophical journey of exploration through transitory everyday reality. The works typically center on something airy and intangible, like the light or the wind. His works appeal not only to the visual, but also stimulate the imagination and the viewers’ memories.


LÍ-6165
- Year1999
- TypeLjósmyndun / Litljósmyndir
- Size70 x 108 x 0 cm Stærð með ramma: 78,5 x 116 x 0 cm
- SummaryMaður, Sól, Leikur, Ljós
- Main typeMyndlist/Hönnun
- Secondary TypeAðalskrá
- MaterialLífræn efni / Pappír
- MethodTækni/Ljósmyndun
- Edition / Series1
Description
Myndin sýnir sólargeisla fara í gegnum prisma og lýsa upp lófa listamannsins.
CopyrightHreinn Friðfinnsson, Myndstef
