Landlit

1967 - 1970

Valgerður Þorsteinsdóttir Briem 1914-2002

Exhibition text
Landlit er röð fimmtíu og átta verka sem Valgerður skapaði á árunum 1967–1970. Listasafn Íslands keypti átta verk úr röðinni á yfirlitssýningu verka hennar í Gerðarsafni árið 2006. Verkin eru unnin með blandaðri tækni á pappír og eru abstrakt en eiga í skýrum hugrenningatengslum við náttúru og landslag. Hér notaði listakonan ólíkar aðferðir til að framkalla áferð náttúrunnar, þar á meðal að stimpla á blautan pappír með náttúrulegum formum og nota litaduft, vatn og olíu til þess að fanga fjölbreytileika náttúrunnar, líkt og við sjáum í lífrænni áferð plantna, jarðvegs og hrauns. Valgerður sýndi sjálfstæði í tækni sinni og beitti þeim aðferðum sem hentuðu hverju verkefni fyrir sig. Viðhorf hennar til manns, náttúru og listar kallast á við aðra kynslóð súrrealista sem höfðu mikil áhrif á abstrakt-expressjóníska list á árunum eftir seinna stríð.   Face of Earth (Landlit) is a series of fifty-eight works made by Valgerður between 1967 and 1970. The National Gallery purchased eight works from the series at a comprehensive exhibition of her work in Gerðarsafn in 2006. Composed of mixed media on paper, the works are abstract but have a clear connection to nature in their evocation of matter. Here the artist employed various techniques to achieve the texture of nature, including imprinting with natural forms on wet paper, as well as incorporating coloured powder, water, and oil to capture a sense of nature’s diversity, as might be found in the organic texture of plants, soil, and lava. She was independent in her technique and chose the methods that suited each project. Her attitude towards man, nature, and art connects her to the second generation of surrealist artists who were influential in shaping abstract expressionism in the years after the Second World War.
LÍ-8013
  • Year1967 - 1970
  • TypeTeiknun, Teiknun / Blönduð tækni
  • Size56.7 x 88.5 x 0 cm
  • SummaryAbstrakt, Landslag
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • Secondary TypeAðalskrá
  • MaterialLífræn efni / Pappír
  • MethodTækni/Teiknun
Description

Í þessari risastóru myndröð virðist það vera áferðin á gróðrinum og laufskrúðið, sem endurspeglar bergmyndanir landsins. Eitt endurspeglar annað og myndar samsvörun. Það er erfitt að geta sér til um aðferðir Valgerðar í þessum verkum en hún virðist meðal annars nota náttúrulega stensla til að þrykkja með á rakan pappír. Þá virðist hún stundum nota olíu og vatn til að sprengja lífræna áferð formanna, til að ná fram náttúrulegri ásýnd með náttúrulegum miðlum. Áhrifin eru líkust því að horft sé ofan í mosagróið hraun, sundurskorið af sprungum og gjótum. [Halldór Björn Runólfsson, “Síbreytileikinn í list Valgerðar Briem”, Andlit (sýningarskrá) 2006, bls. 13.]

Copyright

Myndstef, Valgerður Briem - erfingjar

Source

Andlit. Valgerður Briem. Teikningar. Listasafn Kópavogs. Gerðarsafn. 2006. (Sýningarskrá)

Treasures of Icelandic Art

The museum is open every day from 10am - 5pm.