Mountain

Um 1982

Hildur Hákonardóttir 1938-

LÍ-9050

Sígildur myndvefnaður og vald listakonunar yfir miðlinum birtist hér í klassískri landslagsmynd þar sem teikningin nýtur sín með fjölbreyttum hætti. Láréttar línur, lóðréttar og skálínur spila fallega með mýkri línum í brún fjallsins og hæðum og hólum við rætur þess. Samhverfa skálínur á ljósum himninum mynda geisla sem lýsa af fjallinu. Litapallettan er hófstillt þar sem brúnir jarðlitir í forgrunni spila á móti gráfjólubláum og brúnum litum í fjallinu og grátónuðum himninum. Hér dregur Hildur upp sígilda mynd af fjalli þar sem efniviðurinn er ull og eðli vefjarins kemur berlega í ljós og spilar með myndbyggingunni. Forgrunnur myndarinnar skipaður reglubundnum reitum, ferhyrningum og þríhyrningum minna á málverk Þorbjargar Höskuldsdóttir, þar sem flísalagt manngert landslagið kallast á við fjöllin eða fjallið á ljósmynd Sigurðar Guðmundssonar frá 1980 - 1982, þar sem listamaðurinn er skurðpunktur náttúru og menningar.

  • YearUm 1982
  • TypeFlokkun LÍ / Landslagsmyndir, Textíllist, Textíllist / Myndvefnaður
  • Size122 x 96.5 x 0 cm
  • SummaryFjall
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • Secondary TypeAðalskrá
  • MaterialLífræn efni / Dýraríki / Hár / Ull
  • MethodTækni/Textíltækni/Vefnaður
Copyright

Hildur Hákonardóttir, Myndstef

Treasures of Icelandic Art

The museum is open every day from 10am - 5pm.