Bárur

2003

Björg Þorsteinsdóttir 1940-2019

Exhibition text
Björg Þorsteinsdóttur vann með margs konar miðla og var óhrædd að kanna möguleika þeirra. Í upphafi ferilsins var hún þekktust fyrir grafíkverk en vatnslitamyndir Bjargar hafa einnig vakið athygli fyrir frumlega notkun á miðlinum. Í mörgum myndanna birtast endurtekin grunnform sem mynda sjónrænar heildir þar sem leikið er með blæbrigði litarins, gagnsæi vatnslitarins og birtuspil á myndfletinum. Áhersla á einn lit er áberandi í mörgum verka Bjargar og var hún óhrædd að nota skæra liti. Hér er það blái liturinn sem fangar augað og leiðir hugann að hafinu auk þess sem heiti verksins gefur vísbendingu um þau áhrif sem Björg vill kalla fram. Hér málar hún beint á pappírinn með endurteknum hreyfingum sem framkalla bæði flæði og reglufestu í þessu óhlutbundna verki.   Björg Þorsteinsdóttir worked in a range of media, and unflinchingly tested their potential. Early in her career she was best known for her printmaking, while her watercolours also drew attention for innovative use of the medium. In many of her works, repetitions of basic shapes form visual entities in which the artist plays with colour nuances, the transparency of the watercolour and light on the picture plane. In many of her works Björg emphasises a single colour, and she did not hesitate to use bright hues. Here the colour blue catches the eye and gives rise to thoughts of the ocean, while the title also evokes the impression Björg was aiming to achieve. She paints here direct on the paper, in repeated movements that are manifested in both flow and regularity in this abstract work.
LÍ-9451
  • Year2003
  • TypeFlokkun LÍ / Abstraktmyndir, Málaralist / Vatnslitamyndir, Málaralist
  • SizeStærð með ramma: 63 x 79 x 3,3 cm
  • SummaryAbstrakt, Haf
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • Secondary TypeAðalskrá, Gjöf erfingja Bjargar Þorsteinsdóttur
  • MaterialLífræn efni / Pappír, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Vatnslitur
  • MethodTækni/Málun/Vatnslitamálun
  • Donor commentsGjöf frá erfingjum listakonunnar.
Copyright

Björg Þorsteinsdóttir - Erfingjar, Myndstef

Treasures of Icelandic Art

The museum is open every day from 10am - 5pm.