From Hornafjörður
1912
Ásgrímur Jónsson 1876-1958
Exhibition text
Ásgrímur Jónsson var einn okkar helsti landslagsmálari og af þeirri kynslóð sem mótaði þjóðarvitund Íslendinga snemma á síðustu öld með myndum af einstakri náttúru landsins. Ásgrímur var undir miklum áhrifum frá rómantískri ljóðlist 19. aldar skálda og í landslagsmálsverkum hans birtist hin brothætta fegurð náttúrunnar. Þrátt fyrir að hann hafi málað með olíu á striga allan sinn feril voru það vatnslitamyndir hans sem höfðu einna mest áhrif til framtíðar. Ótrúlegt vald Ásgríms á vatnslitatækninni gerði honum kleift að draga á næman hátt upp bæði smáatriði náttúrunnar og þær hárfínu breytingar á landslaginu sem síbreytileg birtan kallar fram.
Ásgrímur ferðaðist ríðandi meðfram suðausturströnd landsins árið 1910 og aftur 1912. Á ferðum sínum hreifst hann af mikilfengleika náttúrunnar, stórbrotnu útsýni og birtunni sem endurkastaðist af jöklunum. Á meðan á dvölinni á Suðausturlandi stóð málaði hann nokkur af þeim vatnslitaverkum sem seinna rötuðu í safneign Listasafns Íslands. Sum verkanna voru keypt þegar þau voru fyrst sýnd í Reykjavík en önnur rötuðu í safnið sem hluti af dánargjöf listamannsins. Þetta verk sem keypt var úr einkasafni telst meðal bestu vatnslitamynda Ásgríms.
Ásgrímur Jónsson was one of Iceland’s foremost landscape painters and a part of the generation that shaped a sense of national identity through the depiction of the country’s singular landscape in the early 20th century. Strongly influenced by 19th century Romantic poetry, his landscapes show the fragile beauty of nature. Though he painted in oil on canvas his entire career, it was in watercolour that he left his most lasting influence. His mastery of the medium gave him an ability to express his sensitivity to both topographical detail with precision and the subtle changes in the landscape brought about by shifting conditions of light.
Ásgrímur travelled on horseback to the southeast coast of Iceland in 1910 and 1912. While there he was struck by the monumentality of nature, the sweeping panoramic views and the light reflecting off the glaciers. During his time in the southeast, he painted several of the watercolours that eventually became part of the National Gallery’s collection. Some were acquired when they were first shown in Reykjavík, others came into the collection through the artist’s bequest. This work, acquired from a private collector, is considered one of Ásgrímur’s major works in the watercolor medium.


LÍÁJ-1977
- Year1912
- TypeFlokkun LÍ / Landslagsmyndir, Málaralist / Vatnslitamyndir
- Size38 x 133.5 x 0 cm Stærð með ramma: 70 x 163 x 0 cm
- SummarySjór, Ský, Fjall, Himinn
- Main typeMyndlist/Hönnun
- Secondary TypeAðalskrá, Safn Ásgríms Jónssonar
- MaterialÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Vatnslitur, Lífræn efni / Pappír
- MethodTækni/Málun/Vatnslitamálun
Copyright
Myndstef, Listasafn Íslands
