Fimmtudagurinn langi
Í sumar býður fjöldi safna og sýningarstaða í miðbænum upp á lengdan opnunartíma síðasta fimmtudagskvöld í júní, júlí og ágúst. Þá er tilvalið að bregða sér af bæ og skoða fjölbreyttar listasýningar, kíkja við á vinnustofum listamanna, heimsækja listamannarekin rými, gallerí og söfn – og upplifa líflega myndlistarsenu miðborgarinnar! Enginn aðgangseyrir og boðið verður upp á ýmsar óvæntar uppákomur. Að auki verða sérstök tilboð á ýmsum kaffi- og veitingahúsum þessi fimmtudagskvöld. Dagskrána er að finna hér að neðan. Verið öll velkomin!
DAGSKRÁ fyrir 27. ÁGÚST:
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir
Yfirstandandi sýningar: Allt sem sýnist – Raunveruleiki á striga 1970-2020 og Jóhannes S. Kjarval: Hér heima.
Kl. 20:00: Leiðsögn um Allt sem sýnist – athugið að vegna fjöldatakmarkana er skráning nauðsynleg á heimasíðu safnsins
Núllið Gallerý, Bankastræti 0
Sýningaropnun: Anika L. Baldursdóttir, MENDA II.
Wind and Weather Window Gallery, Hverfisgata 37
Yfirstandandi sýning: Freyja Elíf, Millihlustargátt.
Gallerí Port, Laugavegur 23
Lokahóf sýningar: Elli Egilsson, Efnisþættir
Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegur 7
Kl. 18:00 Listaganga um sunnanvert Skólavörðuholt
https://www.facebook.com/events/579907576227876/
Samband Íslenskra myndlistarmanna, Hafnarstræti 16
Sýningaropnun:Samsýning listamanna sem hafa dvalið og starfað í gestavinnustofum SÍM í Ágúst 2020.
Listamenn: Yuki Nakamura, Chris Dake-Outhet, Takashi Hokoi, Sandra Kazlauskaite, Terhi Nieminen, Wolf von Kries, Janna Kangas, Tamara Hernandez Ledesma.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús, Tryggvagata 17
Yfirstandandi sýning: Gilbert & George: The Great Exhibition, og Erró: Sæborg
Kl. 17:00 og 20:00: leiðsagnir um Gilbert & George sýninguna í Hafnarhúsi – – Athugið að vegna fjöldtakmarkana er skráning nauðsynleg á heimasíðu safnsins.
Marshallhúsið, Grandagarður 18:
– Nýlistasafnið
Yfirstandandi sýning: Ásta Ólafsdóttir – Hjartsláttur, yfirlitssýning
Kl. 19:00: Myndmál III, ljóðaleiðsögn með Hallgrími Helgasyni og Anton Helga Jónssyni.
– Kling & Bang
Yfirstandandi sýningar: Aniara Omann, Porous Tomorrow, og María Rún Þrándardóttir, Hverfandi
Kl. 20:00: Aniara Omann: Performatíft listamannaspjall og leiðsögn.
– Studio Ólafur Elíasson
Yfirstandandi sýning á verkum Ólafs Elíassonar.
Hverfisgallerí er með opið til kl. 21:00.
Langir fimmtudagar eru styrktir af Sumarborginni, Reykjavíkurborg.
#fimmtudagurinnlangi