Selmuklúbburinn
Selmuklúbburinn er tileinkaður velunnurum Listasafns Íslands.
Klúbburinn er fyrir áhugafólk um myndlist og menningu og fá meðlimir klúbbsins boð á sérstaka og fjölbreytta viðburði á vegum safnsins. Selmuklúbburinn á sér nokkuð langa sögu.
Hann var stofnaður árið 2002 og nafn listaklúbbsins var valið með það fyrir augum aðheiðra minningu fyrsta safnstjóra safnsins, dr. Selmu Jónsdóttur listfræðings (1917-1987) sem var öflugur frumkvöðull í kynningu á myndlist og uppbyggingu safnastarfsemi á Íslandi.
Með því að gerast velunnari Listasafns Íslands og skrá þig í Selmuklúbbinn veitist þér tækifæri til að njóta einstakra fríðinda.
Hægt er að skrá sig í Selmuklúbbinn í móttöku Listasafns Íslands við Fríkirkjuveg 7.
Selmuklúbbsaðild felur í sér:
- Boðskort á sýningaropnanir safnsins
- Aðgengi að öllum sýningum safnsins
- Aðgengi að öllum auglýstum viðburðum
- Sérstök dagskrá verður gefin út tvisvar sinnum á ári fyrir Selmuklúbbsfélaga
- Skipulagðar heimsóknir á vinnustofur listamanna og áhugaverða staði sem tengjast myndlist
- Leiðsagnir listamanna og fyrirlestrar sem tengjast yfirstandandi sýningum safnsins
- Rafrænt fréttabréf með upplýsingum um dagskrá Selmuklúbbsins og aðra starfsemi safnsins
- Safnbúð Listasafns Íslands býður velunnurum 20% afslátt af vörum sem tengjast útgáfum safnsins, ásamt einstökum sértilboðum
- Vegleg bókagjöf við inngöngu í klúbbinn
Verð
Selmuklúbbsaðild: 20.000 kr.
Selmuklúbbsaðild + gestakort: 25.000 kr.
Selmuklúbbsaðild fyrir eldri borgara og öryrkja: 15.000 kr.
Selmuklúbbsaðild fyrir skólafólk: 15.000 kr.
Verð
Selmuklúbbsaðild
20.000 kr.
Selmuklúbbsaðild + gestakort
25.000 kr.
Aðild fyrir eldri borgara
15.000 kr.
Aðild fyrir örykja
15.000 kr.
Aðild fyrir skólafólk
15.000 kr.
Nýjustu fréttir af Selmuklúbbi
Skráðu þig á póstlista Listasafnsins og fáðu upplýsingar um allt það nýjasta sem er framundan hjá okkur í viðburðum, sýningum og tilboðum í verslun.