Þróun
1913 - 1914
Einar Jónsson 1874-1954
- Year1913 - 1914
- TypeSkúlptúr
- Size44.5 x 37 x 48 cm
- SummaryMaður, Uxi, Kross, helgitákn + hlutv., Bæn
- Main typeMyndlist/Hönnun
- Secondary TypeEinar Jónsson myndverk
- MaterialÓlífræn efni / Málmur / Eir
- MethodTækni/Afsteypa
Bronsafsteypa. Þróun. Uxi liggur aðframkominn, jötunn sem krýpur fram á annað hné heldur í uxann og í mann, sem stendur uppréttur. Sá heldur á hnetti sem kross kemur upp úr, á krossinum er maður og letrað INRI fyrir ofan. Maður í bæn liggur fram á krossinn. „Þróun (eða Miðtíð) 1913-14. Vöxtur mannsins frá dýrinu í sjálfum honum.“ (Myndir, 1925) „Hér tákna dýrið, jötuninn og maðurinn þrjú andleg tilverustig. Dýrið liggur og hringar sig í makindum. Jötuninn veit fram en hann krýpur álútur. Hann heldur annarri hendi í dýrið, en hinn handleggurinn liggur þungt á herðum mannsins, sem stendur uppréttur. Armur jötunsins log líkami mannsins mynda kross. Jötuneðlið í manninum er honum þung byrði. Og þó heldur hann krossmarki hátt á loft þar sem hann hefur gert það að sigurmarki sínu. FUllkomnum fæst fyrir þjáningar. Sama trú birtist í myndinni Deiglan, þar sem sálin, göfguð af jáningum, stígur í fagnandi lofgerð til himins.“ (Útgefið efni LIstasafnsins) Gifsafsteypa, sjá LEJ-97. Evolution - Évolution - Die Evolution - Evolutionen
CopyrightListasafn Einars Jónssonar
SourceEinar Jónsson: Myndir. Kaupmannahöfn, 1925.
