Þróun

1913 - 1914

Einar Jónsson 1874-1954

LEJ-341
  • Year1913 - 1914
  • TypeSkúlptúr
  • Size16.5 x 13.5 x 19 cm
  • SummaryMaður, Uxi, Kross, Bæn
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • Secondary TypeEinar Jónsson myndverk
  • MaterialÓlífræn efni / Málmur / Kopar
  • MethodTækni/Bronssteypa
Description

Skúlptúr. Þróun. Smækkuð koparafsteypa af gifsmyndinni Þróun (sjá LEJ-97). Stendur á hvítmáluðum stöpli á skrifborði, fest með krókum sem koma niður úr köntum verksins. Á stöplinum er mynd af Önnu, konu listamannsins, í nisti (sjá LEJM-70). Stöpulinn er hluti af innréttingu skrifstofunnar, stendur fyrir miðju á skrifborði Einars. Uxi liggur á síðunni, jötunn sem krýpur fram á annað hné heldur í uxann og í mann, sem stendur uppréttur. Sá heldur á hnetti sem kross kemur upp úr, á krossinum er maður og letrað INRI fyrir ofan. Maður í bæn liggur fram á krossinn. „Þróun (eða Miðtíð) 1913-14. Vöxtur mannsins frá dýrinu í sjálfum honum.“ (Myndir, 1925) „Hér tákna dýrið, jötuninn og maðurinn þrjú andleg tilverustig. Dýrið liggur og hringar sig í makindum. Jötuninn veit fram en hann krýpur álútur. Hann heldur annarri hendi í dýrið, en hinn handleggurinn liggur þungt á herðum mannsins, sem stendur uppréttur. Armur jötunsins log líkami mannsins mynda kross. Jötuneðlið í manninum er honum þung byrði. Og þó heldur hann krossmarki hátt á loft þar sem hann hefur gert það að sigurmarki sínu. Fullkomnum fæst fyrir þjáningar. Sama trú birtist í myndinni Deiglan, þar sem sálin, göfguð af jáningum, stígur í fagnandi lofgerð til himins.“ (Útgefið efni LIstasafnsins) Stærri bronsafsteypa (LEJ-214) í Höggmyndagarðinum við Listasafn Einars Jónssonar. Evolution - Évolution - Die Evolution - Evolutionen

Copyright

Listasafn Einars Jónssonar

Treasures of Icelandic Art

The museum is open every day from 10am - 5pm.