Summer Night

1929

Jón Stefánsson 1881-1962

Exhibition text
Íslenskar sumarnætur einkennast af einstakri birtu og kyrrð. Margir listamenn hafa reynt að fanga þessa seiðandi stemningu þegar kvak fugla berst langar leiðir og við liggur að hægt sé að heyra grasið gróa. Þetta málverk eftir Jón Stefánsson, einn af frumkvöðlum íslenskrar málaralistar, er líklega eitt af þekktustu verkunum af þessu tagi en Listasafn Íslands keypti það árið 1930. Eins og Jóns var háttur er myndin byggð upp á láréttum línum. Fremst er árbakki með tveimur fuglum, þá áin spegilslétt og loks fjall, sem rís eins og klettaborg í bakgrunni. Spegilmynd fjallsins eykur mátt þess og jafnframt dýpt myndarinnar, en bjarminn yfir því gæðir myndina vídd og endurkast hans frá vatninu lýsir allan flötinn. Svöl birtan og speglunin í vatninu ljá verkinu afar djúphugulan blæ og áhorfandinn skynjar þá kyrrð sem er tjáð. Í forgrunn þessarar kyrrðarmyndar af landinu hefur listamaðurinn sett tvo fugla sem mynda lóðréttar og hallandi línur til mótvægis við láréttar línur landsins. Fuglarnir leita inn í mynddýptina, í átt til tignarlegs fjallsins, og augu áhorfandans fylgja þeim eftir.   Icelandic summer nights are distinguished by their unique light and stillness. Many artists have tried to capture this haunting atmosphere where bird sounds are carried over large distances and one can almost hear the grass grow. This painting by Jón Stefánsson, one of the pioneers of Icelandic painting, is probably one of the most famous works of this kind, bought by the National Gallery in 1930. As was Jón´s habit, the image is based on horizontal lines. At the forefront is a river bank with two birds, behind them the perfectly calm river, and finally a mountain that rises like a cliff from the background. The mountain reflected on the still surface of the river adds to the power and depth of the image, while its brightness endows it with perspective and its reflection in the water illuminates the whole plane. The crisp light and the reflection in the water endow the work with mystical overtones and the viewer senses the stillness being interpreted. In the foreground of this still image of the land, the artist has placed two birds that form vertical and perpendicular lines to balance out the horizontal lines of the land. The birds look into the display depth, in the direction of the noble mountain, and the eyes of the viewer follow their gaze.
Jón Stefánsson, Sumarnótt, LÍ 366, Sumarnótt , Summer Night, (Lómar við Þjórsá)
LÍ-366
  • Year1929
  • TypeFlokkun LÍ / Landslagsmyndir, Flokkun LÍ / Dýramyndir / Fuglamyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Size100 x 130 x 0 cm Stærð með ramma: 113,5 x 143,5 x 0 cm
  • SummaryFjall, Sumar, Fugl, Landslag, Á, vatnsfall
  • Main typeMyndlist/Hönnun
  • Secondary TypeAðalskrá
  • MaterialÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • MethodTækni/Málun
Description

Hér túlkar Jón kyrrð íslenskrar sumarnætur. Að venju er myndin byggð upp á láréttum línum í þrem stigum inn í myndrýmið. Fremst er árbakki með tveim fuglum, þá áin spegilslétt og loks fjall, sem rís eins og klettaborg í bakgrunni. Spegilmynd fjallsins eykur mátt þess og jafnframt dýpt myndarinnar, en bjarminn yfir því gæðir myndina vídd og endurkast hans frá vatninu lýsir allan flötinn. Svöl birtan og speglunin í vatninu ljá verkinu afar djúphuglan blæ og áhorfandinn skynjar þá kyrrð sem er tjáð. Í forgrunn þessarar kyrrðarmyndar af landinu hefur listamaðurinn fellt inn tvo fugla sem ber við ljósan flötinn og mynda lóðréttar og hallandi línur til mótvægis við láréttar línur landsins. Ávalir búkar þeirra eru mótaðir með hlýjum litum andstætt hinum svölu litatónum, sem eru ríkjandi, og skapa þannig nálægð í þeirri víðáttu sem við blasir. Fuglarnir leita inn í mynddýptina, í átt til tignarlegs fjallsins, og augu áhorfandans fylgja þeim eftir. Návist þeirra eykur enn á hinn djúphugula andblæ verksins þar sem þeir verða eins konar staðgenglar mannsins í náttúrunni, en nátengdari henni. Þeir eru hið eina kvika í myndinni og í huga þess, sem á horfir, verður hún ímynd íslenskrar sumarnætur þar sem ekkert heyrist nema kvak fugla. Listasafn Íslands keypti málverkið árið 1930. (Júlíana Gottskálksdóttir, „Umfjöllun um tíu meginmyndir Jóns Stefánssonar í Listasafni Íslands“, Jón Stefánsson 1881-1962 (Listasafn Íslands: Reykjavík, 1989).)

Copyright

Myndstef, Jón Stefánsson-Erfingjar

Treasures of Icelandic Art

The museum is open every day from 10am - 5pm.