Um bókasafnið

Bókasafn Listasafns Íslands er rannsóknabókasafn er leggur áherslu á varðveislu og miðlun efnis sem tengist rannsóknarsviði stofnunarinnar, þ.e. íslenskri myndlist. 
Bókasafnið er meðlimur í Arlis/Norden (www.arlisnorden.org) - samtökum listbókasafna á Norðurlöndum.

Aðsetur
Bókasafnið er í skrifstofubyggingu Listasafns Íslands við Laufásveg 12, 101 Reykjavík. Sími: 515 9603, 515 9604  Fax: 515 9601. Opnunartímar: Mánudaga - föstudaga kl. 9-12 og 13-15.

Safnkostur
Á bókasafninu er að finna úrklippusafn, heimildasafn, myndasafn, innlendar og erlendar bækur, þar á meðal handbækur, uppflettirit og listamannatöl. Flestar bækur sem komið hafa út um íslenska myndlist og einnig er lögð  áhersla á bækur og sýningarskrár um norræna myndlist og 20. aldar myndlist. Á bókasafninu eru myndbönd, geisladiskar, bókverk og smáprent. 

Úrklippusafn
Í úrklippusafni bókasafnsins hefur verið safnað efni um íslenska myndlist úr íslenskum dagblöðum frá árinu 1950.

Heimildasafn
Heimildasafnið hefur að geyma sýningarskrár og annað smáprent yfir íslenska myndlist, sem safnað hefur verið frá árinu 1950.

Myndasafn
Myndasafnið hefur að geyma ljósmyndir, litskyggnur og stafrænar myndir af listaverkum í eigu Listasafns Íslands.









Safnbygging: Fríkirkjuvegi 7 • 101 Reykjavík Skrifstofur: Laufásvegi 12 • Sími 515 9600 • list@listasafn.is