 | Liðnar sýningar
 |
 |  |
 |  |  |
Gamlar gersemar - 8.2. - 5.5. 2013 salir 1 og 2 |
 |
Listasafn Íslands býr yfir margbreytilegri list í safneign sinni, verkum sem alltof sjaldan ber fyrir augu vegna takmarkaðs húsnæðis. Oftastnær verður eldri list úr safneign fyrir barðinu á þessari rýmisþurrð, en meðal hennar er að finna verk eftir horfna listamenn sem ekki eru lengur bundin höfundarrétti. Af nógu er að taka, bæði innlendum og erlendum listamönnum sem héldu yfir móðuna miklu fyrir miðbik heimsstyrjaldarinnar síðari. Hluti af þessum gersemum er nú tekinn fram til að sýna eina hliðina á safneign Listasafns Íslands.
Sýningastjóri Halldór Björn RunólfssonViðtal við Halldór Björn í Víðsjá, RUV 7. febr.: HÉR
Viðtal við Halldór Björn í DV 8. febr. 2012: Grafið eftir gersemum
Gestagangur hjá Randver, á ÍNN 15. febr. viðtal við Halldór Björn: HÉR
Umfjöllun um sýninguna í Fréttablaðinu, 14. mars: HÉR
Halldór Björn segir frá sýn. Gömlum gersemum í Djöflaeyjunni 26. mars: HÉR
Halldór Björn segir frá verki eftir Giulio Romano Halldór Björn segir frá verki Benedikts Gröndal - Goðafoss
Halldór Björn segir frá verki Jóhanns Jónssonar - Án titils Halldór Björn segir frá verki Sigríðar H. Magnússon - Fríða |
 |
 |
 |  |
Erlendir áhrifavaldar - 8.2. - 5.5. 2013 Salir 3 - 4 |
 |
Tíundi hluti safneignar Listasafns Íslands er eftir erlenda listamenn og má segja að þeir komi að hvaðanæva, frá Norðurlöndunum, meginlandi Evrópu, Bretlandseyjum, Norður-Ameríku og Austurlöndum, svo eitthvað sé nefnt. Það er að sjálfsögðu mikil fylgni milli þeirra verka sem finna má í fórum Listasafns Íslands og þeirra stílrænu áhrifa sem voru í hávegum höfð í landinu. Á sýningunni Erlendir áhrifavaldar er einungis staldrað við verk gerð eftir heimsstyrjöldina síðari, og þótt mörg verkanna hafi verið keypt en önnur gefin, áttu þau hljómgrunn meðal innlendra listunnenda. Brugðið er upp úrvali þessara verka, þrívíðra í sal 3, en tvívíðra, málverka og ljósmynda, í sal 4.
Sýningarstjóri Halldór Björn Runólfsson Svipmyndir frá sýningunni í fréttatíma RÚV, 13. mars: HÉRGestagangur hjá Randver á ÍNN, 22. febr. viðtal við Halldór Björn: HÉR
Umfjöllun Hlyns Helgasonar um sýninguna í Víðsjá 4.apríl HÉR |
 |
 |
 |  |
REK - 10.11. 2012 – 27.1. 2013
|
 |
Sýningin Rek er samstarfsverkefni myndlistarkvennanna Önnu Hallin og Olgu Bergmann sem starfað hafa bæði saman og hvor í sínu lagi frá því að námi lauk á tíunda áratug síðustu aldar. Rek er lítið ævintýri þar sem aðalsöguhetjuna, Ísland, rekur á fjörur ýmissa Evrópulanda. Innblástur sækja myndlistarkonurnar í náttúruna og jarðsöguna og nota brenglanir og tilfærslur á tíma til þess að nálgast hugmyndir og viðfangsefni. Sem dæmi má nefna að jarðflekana rekur (samkvæmt landrekskenningunni) á sama hraða og neglur mannsins vaxa eða um 2 cm á ári.
Olga og Anna nýta sér landrekskenninguna til að skoða og gaumgæfa hluti svo sem þjóðernishyggju, sjálfsmynd og þróun. Með því að smækka eilífðina niður í örsögu sjá þær sitthvað nýtt.REK Í VÍÐTÆKARI MERKINGU, Halldór Björn Runólfsson safnstjóri Sjá hér |
 |
 |
 |  |
VETRARBÚNINGUR - 10.11. 2012 - 27.1. 2013
|
 |
Vetrarbúningur er ekki aðeins öðruvísi klæði náttúrunnar við heimskautsbaug, heldur fylgir honum náttmyrkur, þegar sólin nær vart að hefja sig upp yfir sjónarröndina og skuggar verða óvenjulangir. Það er ákveðin breyting, sem á sér stað þegar landslagið fer undir frostmark í skammdeginu. Ef snjóar verður jörðin gjarnan miklu bjartari en himininn, sem er viðsnúningur hins venjulega, og jörðin geislar rétt eins og væri hún lýst neðan frá. |
 |
 |
 |  |
HÆTTUMÖRK, framlengd - 1.12. 2012 – 27.1. 2013
|
 |
 Í sal 4 eru til sýnis fimm verk eftir Rúrí sem öll tengjast vatni. Núna, 2012 – á ári vatnsins í Evrópu áminna þau okkur um þverrandi auð hins dýrmæta vökva og vara okkur við misnotkun á þessari lífsnauðsynlegu höfuðskepnu. Verkin eru eftir listamenninga Rúrí, Ólaf Elíasson og Pétur Thomsen en þau hafa látið sig náttúruna varða og gjarnan bent á inngrip mannsins í viðkvæma náttúru landsins í verkum sínum.
|
 |
 |
 |  |
HÆTTUMÖRK, Rúrí - 19.5. – 9.12. 2012
|
 |
Hin áhrifamikla innsetning Rúríar, Archive – Endangered Waters, 2003, hefur verið til sýnis í Listasafni Íslands frá því í marsbyrjun 2012, sem hluti af magnaðri yfirlitssýningu hennar. Núna, 2012 – á ári vatnsins í Evrópu – heldur verkið áfram að áminna okkur um þverrandi auð hins dýrmæta vökva og vara okkur við misnotkun á þessari lífsnauðsynlegu höfuðskepnu.
Nánari upplýsingar um Rúrí má finna á vefsíðu hennar: www.ruri.is |
 |
 |
 |  |
MUSÉE ISLANDIQUE - 14.9. – 4.11. 2012
|
 |
Ólöf Nordal er kunn fyrir athuganir sínar á sérkennilegum náttúrufyrirbrigðum þar sem hefðin mætir hugarfluginu og skáldskapur hótar að ganga fram af raunsæinu. Afsteypur úr gifsi af íslensku fólki á 19. öld, sem fundust á Kanaríeyjum, kveiktu með henni löngun til að rannsaka fundinn um nokkurra mánaða skeið á Mannfræðisafninu í París. Útkoman er sláandi, og hefur sig upp yfir list og mannfræði í milliveröld á mörkum beggja greina.
olofnordal@com
Viðtal við Ólöfu Nordal í Víðsjá 13. sept. 2012
Viðtal við Ólöfu Nordal í Fréttablaðinu 15. sept. 2012
Viðtal við Ólöfu Nordal og Sigurð Örn Guðbjörnsson í Samfélagið í nærmynd 27. sept. 2012 |
 |
 |
 |  |
ÖLVUÐ AF ÍSLANDI - 19.5. – 4.11. 2012
|
 |
Sýningin er byggð á samnefndu þjóðarátaki þar sem Ísland, í kjölfar bankahrunsins 2008, var kynnt sem náttúruleg paradís. Hún er tilraun til að kafa ofan í hið rómantíska Ísland, sem er betur þekkt fyrir ómálga eldfjallanáttúru en frásagnarhefð sína. Enn er þjóðfræðum og munnlegri geymd lítt haldið á lofti þegar landið er kynnt en brátt kemur að því að íslensk menning veiti íslenskri náttúru verðuga samkeppni sem óaðskiljanlegur hluti tilverunnar á mörkum hins byggilega heims. |
 |
 |
 |  |
DÁLEIDD AF ÍSLANDI - 19.5. – 4.11. 2012
|
 |
Sem umgjörð um hina mikilfenglegu Fallvatnaskrá Rúríar eru til sýnis fossar úr safneign Listasafns Íslands á árlegri sýningu úr fórum stofnunarinnar. Fossar eru ekki einasta í hættu heldur eru þeir meðal hættulegustu fyrirbæra í náttúrunni sökum hrífandi seiðmagns. Ekki aðeins íslenskir listamenn heldur annarra þjóða hafa verið heillaðir af þessum töfrandi náttúrufyrirbærum, sem hvarvetna er að finna í landinu þótt þeim hafi fækkað sorglega það sem af er öldinni. |
 |
 |
 |  |
[I]NDEPENDENT PEOPLE / „SJÁLFSTÆTT FÓLK“ - 19.5. – 2.9. 2012
|
 |
Sjónrænn hluti Listahátíðar í Reykjavík 2012 snýst um þýðingu norrænnar og baltneskrar jaðarlistar og óháðrar starfsemi sem á sér stað á mörkum viðurkennds sköpunarstarfs og tilraunalistar í þeim heimshluta. Sýningarnar verða í mörgum helstu söfnum og listamiðstöðvum höfuðborgarsvæðisins og nágrennis. Yfirumsjón verkefnisins er á hendi sænska sýningastjórans og fagurfræðingsins Jonatan Habib Engqvist en um framkvæmd sér Kristín Scheving, menningarstjóri. Í Listasafni Íslands munu No Gods, No Parents [UKS]; Box; AIM Europe; Sofia Hultén & Ivan Seal og IC-98 [Mikael Brygger & Hendriika Tavi] – allt vel þekktir hópar tilraunalistamanna – kynna verk sín og starfsemi, ásamt Nýlistasafninu [Nýló] + Arkíf um listamannarekin rými. |
 |
 |
 |  |
RÚRÍ - YFIRLITSSÝNING - 3.3. - 6.5. 2012 Salir 1-4 |
 |
Í nær fjóra áratugi hefur Rúrí staðið framarlega í fylkingu íslenskra listamanna í gjörningalist, innsetningum, rafrænum miðlum og höggmyndagerð. Dirfska hennar sem tilraunalistamanns hefur birst í gjörningum sem hafa þótt ganga undrum næst. Eftir að hafa brotið með sleggju gullna Mercedes-bifreið á Lækjartorgi, klæddist hún íslenskum kvenbúningi, ísaumuðum bandaríska fánanum, á fjölmennum hátíðarfundi í Háskólabíói. Þessir gjörningar höfðu sterka pólitíska skírskotun en mörkuðu samt upphaf að fínlegri og persónulegri verkum þar sem náttúra og óendanleiki, örskotsstund og tímaleysi voru skilgreind með nýjum hætti með hverfulum verkum. Þar má nefna verk eins og Regnbogi I, 1983, þar sem himinhá bambusstöng með marglitum línfána í ljósum logum markaði hápunkt langs gjörnings sem festur var á filmu sem helgileikur tileinkaður lífi og náttúru.
Verkið Archive - Endangered Waters (Vötn í útrýmingarhættu) frá 2003, áhrifamikill og gagnvirkur járnstrúktúr var til sýnis í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum árið 2003. Í þessu járnvirki voru 52 gegnsæjar litskyggnur sem sýndu íslenska fossa sem allir voru í hættu vegna áætlana um virkjanir á hálendi Íslands í þágu stóriðju. Þegar myndirnar voru dregnar út úr járnvirkinu mátti heyra að hver foss hafði sinn einstaka og ómetanlega hljóm. Hvort sem hinir snilldarlegu strúktúrar Rúríar eru margbrotnir eða einfaldir þá hreyfa þeir iðulega með afgerandi hætti við áhorfandanum og forða honum frá því að verða merkingarsnauðu hlutleysi að bráð.
Á sýningunni gefur að líta helstu verk Rúríar auk mynda af mörgum þekktustu gjörningum hennar, um 100 verk, bæði stór og smá. Sýningarstjóri er þýski listfræðingurinn Christian Schoen. Fyrir skemmstu gaf þýska bókaforlagið Hatje Cantz út veglega bók um Rúrí og verk hennar. www.ruri.is
RUV-SAMFÉLAGIÐ Í NÆRMYND, 2.MARS 2012 Í LISTASAFNI ÍSLANDS
RUV - VÍÐSJÁ, 9. MARS 2012 UM SÝNINGUNA, RÚRÍ-YFIRLITSSÝNING
RUV - LISTRÆNINGINN, 10, MARS 2012, UM SÝNINGUNA
RUV - DJÖFLAEYJAN, 20. MARS 2012, VIÐTAL VIÐ RÚRÍ
RÚRÍ - YFIRLITSBÓK Bókin vann verðlaun í flokki bókahönnunar í FÍT 2012 – Grafísk hönnun á Íslandi verðlaununum. Hönnuðir: Atli Hilmarsson & Hörður Lárusson, Vinnustofa Atla Hilmarssonar Yfirlitsbókin RÚRÍ er til sölu í Safnbúð á kynningartilboði kr. 7.600 (kr. 8.990).
|
 |
 |
 |  |
ÞÁ OG NÚ - 22.9. 2011 - 19.2. 2012 1 og 2 |
 |

ÞÁ OG NÚ 22.9. 2011 - 19.2. 2012 Sýningin ÞÁ OG NÚ er sjálfstætt framlag Listasafns Íslands tengt ritröðinni Íslensk listasaga, frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar sem gefin var út af Listasafni Íslands og Forlaginu í október 2011. Sýningin stiklar á þeirri list og þeim atburðum sem tengjast núningi milli ólíkra kynslóða íslenskra listamanna, ólíkum áherslum, stefnum og straumum, en ágreiningur af þeim toga er gjarnan vendipunktur í framvindu listasögunnar, ekki aðeins hér á landi, heldur hvarvetna. Verkum er spanna tímabilið frá sjöunda áratug síðustu aldar fram til okkar daga hefur verið endurraðað í sal 2 með hliðsjón af rýminu. Vegna fræðslugildis sýningarinnar hefur hún verið framlengd til 19. febrúar 2012.
|
 |
 |
 |  |
BÓL, KAR OG HULIÐ HJARTA - 22.3.-15.4. 2012
|
 |
Listasafn Íslands sýnir ný verk eftir Tinnu Gunnarsdóttur vöruhönnuð.
Tinna er afkastamikill hönnuður sem hefur vakið athygli fyrir vandaða og nýstárlega hönnun. Meðal þess sem einkennir verk hennar er áhrifamáttur þeirra í hversdagslegu umhverfi okkar, sem lifnar við í nálægð þeirra, auk þess sem þau búa yfir ómældum tækninýjungum og nýstárlegri efnisnotkun.
Á undanförnum árum hefur Tinna sýnt hönnun sína á öllum helstu hönnunarsýningum heims og jafnframt verið sýningarstjóri á slíkum stórsýningum. Tinna hefur staðið fyrir framleiðslu og dreifingu á eigin hönnun jafnt innanlands sem utan. Í Listasafni Íslands verða ný verk eftir Tinnu sem hún hefur unnið sérstaklega í tilefni af Hönnunarmars.
http://www.honnunarmars.is/wp-content/themes/designmarch/a.php?event=3078 |
 |
 |
 |  |
Í AFBYGGINGU, Libia Castro & Ólafur Ólafsson - 13.1. - 19.2. 2012
|
 |
 Síðan á ofanverðum 10. áratugnum hafa Libia & Ólafur þróað sundurgreinandi nálgun sína í listum með hjálp alls konar aðferða, svo sem innsetningum, inngripum í almenningsrými og hljóð- og myndbandsverkum. Á hverju stigi vinna þau náið með ólíkum einstaklingum og hópum, þvert á faglega sérhæfingu, til þess að hámarka ólík áhrif útfærslunnar. Sýningin „Í afbyggingu“ kannar tilvistarlegar, ríkjandi efnahagslegar og pólitískar áherslur á Íslandi og víðar, með aðstoð myndbanda, gjörninga, skúlptúra, hljóðs og tónlistar. Sýningin er samþætting nýsköpunar og áframhaldandi verka á borð við Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands (2008/2011), Landið þitt er ekki til (2003 og áfram) og Niðurkvaðning fornra drauga (2011).
Sýningin Under Deconstruction var skipulögð af Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar fyrir 54. Feneyjatvíæringinn - La Biennale de Venezia og sýningarstjóri var Ellen Blumenstein
Sjá vefsíða Libiu & Ólafs frá Feneyjatvíæringnum: http://libia-olafur.com/?p=680
Myndir frá Feneyjum á vef Kynningarmiðstöðvar ísl. myndlistar: http://www.icelandicartcenter.is/Projects/Venicebiennale/Images2011/
Umboðsaðilar Libiu og Ólafs í Berlín: http://www.galerieopdahl.de/?i=9&j=6&k=1&l=
Viðtal við Libiu og Ólaf í Víðsjá RUV, 12. janúar.
Viðtal við Libiu og Ólaf í Kastljósi, RUV, 19. janúar. |
 |
 |
 |  |
KJARVAL, Úr fórum Jóns Þorsteinssonar og Eyrúnar Guðmundsdóttur - 27.5.-11.9. 2011 Salur 3 |
 |
 Listasafn Íslands opnaði sýningu á úrvali málverka og teikninga eftir Jóhannes Sveinsson Kjarval úr safni Jóns Þorsteinssonar (1898–1985) íþróttakennara og konu hans Eyrúnar Guðmundsdóttur (1898–1996) þann 27. maí næstkomandi. Á sýningunni er lögð áhersla á kúbíska abstraksjón og fígúrur í lifandi landi. Þetta eru mikilfengleg verk þar sem hið smáa og fínlega í náttúrunni er þó ekki langt undan. Jón var alla tíð einlægur listunnandi og náinn vinur margra þekktustu myndlistarmanna þjóðarinnar. Það mun hafa verið árið 1937 sem hann eignaðist sitt fyrsta verk eftir Kjarval og var það upphafið að stóru listaverkasafni þeirra hjóna. Í safni Jóns og Eyrúnar er meðal annars að finna verk eftir Ásgrím Jónsson, Jón Stefánsson, Svavar Guðnason og fleiri, en verk Kjarvals eru þó meginuppistaðan. Hjónin voru ötul við að deila safninu með samborgurum sínum, ýmist með því að lána verk á sýningar eða í formi gjafa til Listasafns Íslands og Kjarvalssafns í Listasafni Reykjavíkur. |
 |
 |
 |  |
KONA / FEMME - LOUISE BOURGEOIS - 27.5.-11.9. 2011 Salir 1, 2 og 4 |
 |
 Louise Bourgeois (1911–2010) er meðal fremstu listkvenna sögunnar. Hún fæddist í Frakklandi en settist að í New York 1938 og gerðist bandarískur ríkisborgari. Bourgeois hóf feril sinn sem málari en sneri sér að höggmyndalist í stríðslok. Í framhaldinu uppgötvaði hún mátt innsetninga um 1950, þar sem aðskilin listaverk eru tengd innbyrðis. Bourgeois mátti bíða alþjóðafrægðar til ársins 1982. Með Documenta 9, í Kassel 1992, varð mönnum ljóst að hún var meðal fremstu listamanna ofanverðrar 20. aldar. Öðrum fremur er Louise Bourgeois hyllt sem sá listamaður sem best tengir saman nútíma- og samtímalist, þ.e. list fyrir og eftir 1965. Til loka ævinnar var Louise Bourgeois framúrskarandi myndhöggvari, innsetningalistamaður, teiknari, grafíklistamaður, vefari og rithöfundur. Á sýningunni KONA í Listasafni Íslands verða 28 verk eftir Louise Bourgeois, einkum innsetningar eða „klefar“ og höggmyndir, en jafnframt málverk, teikningar og vefmyndir. Verkin eru úr Einkasafni Ursulu Hauser í Sviss, Hauser & Wirth, Louise Bourgeois Trust í New York og úr einkasöfnum. Aðalsýningarstjóri er Laura Bechter, sýningarstjóri Einkasafns Hauser & Wirth. Bók í tengslum við sýninguna er til sölu í safnbúð Listsafnsins, sjá hér Verndari sýningarinnar var frú Vigdís Finnbogadóttir.
|
 |
 |
 |  |
HLJÓÐHEIMAR - 26.2. – 22.5. 2011 Salur 2 |
 |
 Sýningunni HLJÓÐHEIMAR er ætlað að fjalla um myndlist sem sprottin er upp úr hljóði eða tónlist. Útgangspunktur allra verkanna er hljóð í einhverju formi. Sýningin samanstendur af innsetningum, uppákomum, tónleikum, gjörningum og fræðsluerindum sem dreifast yfir tæplega þriggja mánaða tímabil. Þar eð sýningin verður í formi dagskrár – verkin verða ekki sýnd öll í einu, heldur hvert af öðru – sköpum við betra rými fyrir hvert verk. Margir listamenn eru kynntir til sögunnar og hver þeirra tekst með sínum hætti á við hljóðið. Flestir þeirra koma úr myndlistargeiranum en hafa á ferli sínum farið mislangt inn í heim hljóðs og tækni.
Þeir listamenn og hópar sem koma við sögu eru: Áki Ásgeirsson, Curver Thoroddsen, Darri Lorenzen, Dodda Maggý, Egill Sæbjörnsson, Guðmundur Vignir Karlsson, Hafdís Bjarnadóttir, Halldór Úlfarsson, Hallvarður Ásgeirsson Herzog, Hekla Dögg Jónsdóttir, Helgi Þórsson, Hilmar Örn Hilmarsson, Jesper Pedersen, Kira Kira, Ólafur og Libia, Parabólur, Rafmagnssveitin, Ragnar Helgi Ólafsson, Sigtryggur Berg Sigmarsson, Sigurður Guðjónsson, Skyr Lee Bob.
26. FEB. – 13. MARS SKRUÐ - Innsetning eftir Sigurð Guðjónsson

Skruð er titillinn á innsetningu Sigurðar Guðjónssonar sem sýnd er dagana 26. febrúar - 13. mars í Hljóðheima sýningarröðinni. Verkið sýndi hann fyrst í sýningarýminu Suðsuðvestur, Reykjanesbæ. Við gerð verksins og undirbúning þeirrar sýningar fór hann margar ferðir í Reykjanesbæ og verkið tók á sig mynd eftir þessar heimsóknir. Pattersson svæðið, bærinn Keflavík, húsið sem hýsir sýningarrýmið Suðsuðvestur, fundnir hlutir, hljóð og tilfinning Sigurðar fyrir staðnum, allt hafði þetta mótandi áhrif á verkið. Eða eins og segir á heimasíðu Suðsuðvestur: „Sigurður vefur saman ósamfelldum myndum, tónlist og hljóði sem öll hljóta sama vægi og umhyggju í meðförum hans og er því ef til vill betur við hæfi að kalla Sigurð tónskáld en vídeólistamann. Stundum eru það hljóðin sem Sigurður finnur innan rýmis sem leggja línurnar og hafa áhrif á aðra formlega og fagurfræðilega þætti, á meðan í öðrum tilfellum er það andrúmsloftið með öllum sínum möguleikum á skynjun sem keyrir verkið áfram. Það er engin fyrirfram gefin formúla sem hann styðst við. Nema hvað að hann leyfir alltaf samlífi myndar og hljóðs að móta endanlega útkomu verka sinna.“
Sigurður hefur endurgert innsetninguna fyrir sal 2 á Listasafni Íslands og hefur hún því tekið töluverðum breytingum þar sem aðstæður og rými er allt annað en gamalt tvílyft timburhús í Keflavík. Skruð nýtur sýn vel í rýminu enda á engan hátt bundið upprunalegu staðsetningunni þó verkið hafi orðið til þar og undir áhrifum frá staðnum.
Sigurður Guðjónsson hóf feril sinn sem tónlistarmaður í hinum ýmsum hljómsveitum og á sunnudaginn eftir opnun voru tónleikar með Rafmagnssveitinni en Sigurður er einn af meðlimum sveitarinnar. Rafmagnsveitin var stofnuð árið 2000 og samanstendur af myndlistamönnunum Sigurði Guðjónssyni, Magnúsi Árnasyni, og rithöfundinum Ófeigi Sigurðsyni.
Nánar um Sigurð Guðjónsson 26. FEB. KL 15.00 UPS AND DOWNS - Gjörningur eftir Curver Thoroddsen Nánar um Curver Thoroddsen
27. FEB. KL. 14.00 TÓNLEIKAR - Rafmagnssveitin Sjá myndband
12. MARS KL. 14.00 HLJÓÐGJÖRNINGUR eftir Hilmar Örn Hilmarsson
15. MARS – 27. MARS ROCK´N ROLL (Innsetning) OG FJÖLSKYLDUKVINTETTINN frá 2003 (vídeóverk) eftir Curver Thoroddsen.

Hljóðinnsetningin Rock n' Roll frá árinu 2000 og myndbandsgjörningurinn Fjölskyldukvintettinn frá árinu 2003 eftir Curver Thoroddsen eru til sýnis dagana 15. - 27. mars í sýningaröðinni Hljóðheimar.
Í báðum verkunum er leitast við að slá saman heimi framúrstefnulegrar tón- og hávaðalistar við dægurmenningu og leikgleði. Hvort á sinn hátt eru verkin tilraun til að beisla ringulreið og koma henni í ákveðið form. Hljóðinnsetningin Rock n' Roll samanstendur af sjö þekktum rokkgítarriffum sem eru síendurtekin, öll í einu og spilast út úr jafnmörgum hátölurum í rýminu. Við þetta myndast mikið og ókyrrt hljóðhaf þegar ósamstillt rokkriffin hljóma um salinn en áhorfandinn/hlustandinn getur einnig gengið um og hlustað á hvert riff fyrir sig.
Fjölskyldukvintettinn var framlag Curvers til Grasrótarsýningar Nýlistasafnsins árið 2003. Þar leika listamaðurinn og fjölskylda hans af fingrum fram á klassísk strengjahljóðfæri sem þau hafa aldrei snert á áður. Verkið er fjölskylduportrett og jafnframt spunahljóðverk. Við það að setja fjölskylduna í framandi hlutverk verður til nýtt samskiptamunstur og persónueinkenni fjölskyldumeðlima koma vel fram. Í febrúar síðastliðnum sýndi Curver framhaldsútgáfu af verkinu í Listasafni ASÍ.
Curver Thoroddsen er myndlistar- og tónlistarmaður og hefur verið ötull verkmaður í báðum listgreinum síðastliðinn áratug. Í myndlistinni notar hann gjörninga, vídeó, innsetningar og venslalist til að kanna hugmyndir um sjálfið, dægurmenningu og samfélagið, gjarnan með húmorísku ívafi.
Með svonefndum "raunveruleikagjörningum" leitast hann við að endurspegla sinn eigin hversdagsheim. Sem dæmi má nefna þegar hann tók íbúðina sína í gegn, borðaði hamborgara í hvert mál í viku eða fór í mánaðarlanga megrun. Veruleikinn eins og hann blasir við flestum okkar fær nýja merkingu þegar hann er yfirfærður á vettvang myndlistar og fjölmiðla. Þá hefur Curver unnið markvisst með eigin ímynd, eins og sú ákvörðun ber vitni að afnema á fullorðinsárum skírnarnafn sitt og taka þess í stað upp heiti alþjóðlegs plastfyrirtækis, „Curver”. Hann er fæddur 1976 og lauk framhaldsnámi í myndlist í New York árið 2009.
Samhliða BA-námi við LHÍ stundaði Curver nám í raftónlist og einnig hljóðupptökufræðum auk þess sem hann hefur kappkostað að sækja námskeið í tónlistarsögu. Hann starfrækir hljómsveitina Ghostigital með Einari Erni Benediktsyni. Ghostigital hefur komið fram um allan heim og unnið m.a. með David Byrne, Björk, Mark E. Smith, Dälek og Sensational. Curver hlaut nýlega styrk úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur.
Nánar um Curver Thoroddsen
29. MARS – 10. APRÍL REGNBOGI - Innsetning eftir Doddu Maggý
Þriðji kaflinn í sýningaröðinni Hljóðheimar hefst þriðjudaginn 29. mars kl. 11.00 með nýju verki eftir myndlistar- og tónlistarkonuna Doddu Maggý. Verkið heitir Regnbogi og er hljóðinnsetning. Það samanstendur af mörg hundruð upptökum af rödd listakonunnar sem syngur eða hummar í einum tón í hverri upptöku fyrir sig og allt í allt er sunginn hver einasti tónn sem raddsvið hennar leyfir. Ef hægt er að ímynda sér raddsviðið sem litróf eða regnboga þá syngur hún hvern einasta lit sem býr í líkamanum. Þegar raddupptökurnar eru settar saman í lög hver ofan á aðra hættir hljóðið að hljóma eins og rödd og verður að þykkum hljóðmassa.
Dodda Maggý (1981) hefur fengist við video, hljóð og gjörninga frá því hún lauk námi en hún er með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands og MFA gráðu frá The Royal Danish Academy of Fine Arts og hljóðlistarnáminu Nordic Sound Art. Það má segja að hún sameini þetta allt í innsetningum sínum þar sem hún skapar ljóðræn verk sem fjalla um ósýnilega eða huglæga þætti eins og skynræna reynslu og breytilegt ástand meðvitundar. Hvort sem er í formi vídeó / hljóð innsetninga, hreinum hljóðverkum eða þöglum vídeóverkum gerir Dodda Maggý tilraun til að formgera innri víddir drauma, minninga og ímyndunaraflsins. Rainbow (2011) is a sound installation consisting of hundreds of recordings of my voice singing in a monotone hum. I covered every note I could reach, and if a musical note can be imagined to represent a colour, I used the full colour spectrum I have available in my body. The fragile voice gains strength as the tones are layered on top of each other, one by one, gradually increasing in volume and tension. The sound becomes a terrifying thick mass of sound no longer recognizable as voice, as if the imaginary colours, half-transparent on top of each other, create a rainbow fog, moving like rain across the space. The rainbow is a reoccurring element in my work. I like the contrasting elements of kitsch and spirituality with its connotation to the Bible and Greek mythology and the unearthly quality of the projected colours formed by light reflecting through water. I'm inspired by things that exist in the outer world, that are immaterial and ethereal, and resemble elements of the inner world.
Nánar um Doddu Maggý
2. APRÍL KL. 14.00 TÓNLEIKAR - Fimm verk fyrir dórófón
Laugardaginn 2. apríl verða frumflutt fimm verk fyrir dórófón í Listasafni Íslands. Tónskáldin sem sömdu verkin eru þau Áki Ásgeirsson, Hafdís Bjarnadóttir, Hallvarður Ásgeirsson Herzog og Jesper Pedersen. Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir leikur á dórófóninn í öllum verkunum en það koma einnig önnur hljóðfæri við sögu í þeim öllum. Dagskráin er svohljóðandi: Áki Ásgeirsson - 295°. Tónverk fyrir dórófón og básúnu, flytjandi Ingi Garðar Erlendss. Hafdís Bjarnadóttir - Tónverk fyrir dórófón og harmonikku, flytjandi Paula Engel (DE). Hallvarður Ásgeirsson Herzog - Miniature nr.6. Tónverk fyrir dórófón og flygil, flytjandi Tinna Þorsteinsdóttir. Jesper Pedersen - Amsterdam. Tónverk fyrir dórófón og hörpu, flytjandi Katie Buckley (US). Tónskáldin hlutu öll styrk úr Tónskáldasjóði RÚV til að semja verkin sem flutt verða á tónleikunum. Dórófónar (e. Halldorophones) eru rafhljómræn strengjahljóðfæri sem Halldór Úlfarsson hefur þróað undanfarinn áratug. Hljóðfærið byggir á endurómun hljóðs og hefur verið útfært í nokkrum mismunandi myndum. Dórófónar hafa komið víða við, verið sýndir á hönnunar- og listasýningum víðs vegar um Evrópu. Þeir hafa m.a. verið notaðir í tónsmíðum Stephen O´Malley í hljómsveitinni Sunn 0))) og af hljómsveitinni The Knife. Hildur Guðnadóttir tónskáld og sellóleikari hefur töluvert notað dórófón í sellólíki í tónlistariðkun sinni undanfarin tvö ár sem hefur gefið innsýn í hvernig ákjósanlegt er að þróa hljóðfærið áfram. Dórófónninn vakti töluverða athygli í uppfærlsu Þjóðleikhússins á Lé konungi í vetur en þar lék Sólrún Sumaliðadóttir á hljóðfærið,tónlist Hildar Guðnadóttur. Halldór er nú með í þróun og vinnslu sjöundu útgáfu dórófóns og sem verður kynnt á tónleikunum í safninu. Nánar um dórófóna á heimasíðu Halldórs Úlfarssonar.
10. APRÍL, SUNNUDAG KL. 21.00 HANDANLEIKAR - Hljóðsóló Kiru Kiru

„Ýmis ljósfyrirbæri áttu sér einnig stað, fyrst eins og lýsandi neistar hér og þar um fundarsalinn, sumir smáir, aðrir stórir og í ýmsum litbrigðum. Haraldur taldi einu sinni 58 þeirra á einum fundi. Undanfari þessara ljósfyrirbrigða var oft sterkur vindgustur þannig að hár á höfði manna hreyfðist til sem í háaroki væri.“ Þessi orð sem er að finna í skýrslu af einum fyrsta fundi Tilraunafélagsins eru kveikjan að hljóðsólói sem tónskáldið og myndlistarmaðurinn Kristín Björk Kristjánsdóttir, Kira Kira, flytur í Listasafni Íslands sunnudagskvöldið 10. apríl. Tilraunafélagið var starfrækt á Íslandi á árunum 1905 til 1912 og var það skipað uppátækjasömum skáldum og vísindamönnum sem notuðu ýmis vísindi til að sanna líf eftir dauðann. Á fundum þeirra svifu trompetar í lausu lofti, sjálflýsandi spiladósir snéru sér sjálfar og óræðir smellir og hvellir heyrðust úr öllum áttum. Kristín Björk starfrækti sjálf hreyfingu með svipuðu nafni, Tilraunaeldhúsið, á árunum 1999-2007 í félagi við tónlistarmennina Hilmar Jensson og Jóhann Jóhannsson. Sú hreyfing kuklaði einnig með líf og dauða; tilraunakennda tónlist og samruna hennar við aðra listmiðla. Sólóverkefni Kristínar Bjarkar, Kira Kira, spratt upp úr Tilraunaeldhúsinu árið 1999. Hún hefur síðan þá verið iðin við tónleikahald ásamt því að semja tónlist og hljóðmyndir fyrir leikhús og dansverk eða í samhengi við eigin innsetningar. Andi Tilraunaeldhússins svífur enn yfir vötnum því Kristín Björk vinnur mikið í samstarfi við ólíka listamenn. Á Handanleikunum verður hún þó ein síns liðs, nema ef vera skyldi að hún fengi heimsókn að handan. Nánar um Kiru Kiru og Tilraunaeldhúsið. 12.–27. APRÍL ORIGINAL HANDBAGS - Innsetning eftir Egil Sæbjörnsson

Fjórði hluti sýningaraðarinnar Hljóðheimar hefst þriðjudaginn 12. apríl kl. 11 þegar sýning á verkinu Original Handbags eftir Egil Sæbjörnsson verður opnuð í Listasafni Íslands. Original Handbands er innsetning frá árinu 2008 þar sem átta handtöskur af ólíkum stærðum, lit og lögun koma við sögu. Þær dansa og syngja saman „We are all of the same origin,“ „We are all still, but we move.“ Stundum hreyfast töskurnar allar saman, stundum aðeins ein í einu. Sýningin stendur til 24. apríl en þetta er í fyrsta sinn sem verkið er sýnt á Íslandi.
Egill Sæbjörnsson er fæddur árið 1973 og býr og starfar bæði í Reykjavík og Berlín. Hann lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1997 og stundaði einnig nám við Université Paris, St. Denis, árin 1995-1996. Verkum Egils má lýsa sem ákveðinni nálgun við reynslu, hegðunarmynstur eða leik. Innsetningar hans eru oft allt í senn; vettvangur fyrir gjörninga, samansafn skúlptúra og teikningar í þrívídd. Í sumum verka sinna vinnur Egill með hversdagslega hluti á hátt sem er bæði kómískur og ljóðrænn. Tónlistin gegnir jafnan mikilvægum þætti í listsköpun Egils en hann starfar jafnhliða sem tónlistarmaður og myndlistarmaður.
Nánar um Original Handbags Nánar um Egil Sæbjörnsson
16. APRÍL - kl. 13.00 OG 15.00 FYRIRLESTRAR OG TÓNLEIKAR - Meðlimir S.L.Á.T.U.R.

Laugardaginn 16. apríl munu meðlimir S.L.Á.T.U.R. (samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík) láta að sér kveða á sýningunni Hljóðheimum sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands. Tónskáldin flytja bæði fyrirlestra um tónsmíðaaðferðir og miðlun hljóðupplýsinga í myndrænu formi til hljóðfæraleikara og áheyrenda og halda tónleika þar sem verk þeirra verða flutt. Fyrirlestrarnir hefjast kl.13:00 og tónleikarnir kl.15:00. Laugardagurinn 16. apríl – Dagskrá kl. 13:00-14:30 - Fyrirlestrar Þráinn Hjálmarsson: Umfjöllun um hvernig tónsmíðaaðferðin getur verið afleiða nótnaskriftarinnar. Í því samhengi verður fjallað lauslega um verkin KOSKO [2009] og Sculpture #3 [2011]. Magnús Jensson: Náttúrutónar Jesper Pedersen: “*Reaction time is a factor in this so please pay attention. Answer as quickly as you can*”. A sightseeing tour through different notation systems for conveying musical information in realtime. Guðmundur Steinn Gunnarsson: Hreyfinótur-frá klisju til erkitýpu: Frá Jung til Marshall McLuhan eða „Hlutverk endurtekningar og staðla í gerð nótnamyndar“. Áki Ásgeirsson: Um verkið 295° frá janúar 2011. Tæknileg útfærsla og hugmyndir. kl 15:00-15:45 - Tónleikar Þráinn Hjálmarsson – Koskó Páll Ivan Pálsson - Fretfet Jesper Pedersen - Amsterdam Hallvarður Ásgeirsson - Miniature#6 - Frost Guðmundur Steinn Gunnarsson - Kvartett nr. 8 Áki Ásgeirsson - 295° Samtökin S.L.Á.T.U.R. voru stofnuð árið 2005 og hafa þau staðið fyrir fjölmörgum tónleikum og viðburðum til að vekja athygli á listrænt ágengum tónsmíðum og efla samræðu á milli tónskálda. Nánari upplýsingar um S.L.Á.T.U.R.
16. APRÍL - 8. MAÍ HLJÓÐBERG v.3.0 Innsetning eftir Ragnar Helga Ólafsson.

Laugardaginn 16. apríl kl.15:00 verður opnuð sýning á verkinu HLJÓÐBERG (PetSounds) v.3.0 eftir Ragnar Helga Ólafsson. Verkið er unnið á árunum 2001-2011 og er þetta í fyrsta sinn sem það er sett upp á Íslandi. Hljóðberg (PetSounds) v.3.0 er einskonar hellir með eilífðarbergmáli. Sýningargesturinn stígur inn í rökkvað rými þar sem búið er að smíða hljóðhelli úr sérskrifuðu tölvuforriti, hljóðnema og átta hátölurum. Með þeirri hljóðveru sem hver og einn ber með sér (tali, andardrætti, hósta, fótataki osfrv.) vekur gesturinn upp bergmál frá heimsóknum annarra í verkið. Þetta gerist með þeim hætti að hljóðunum sem gestir salarins gefa frá sér er safnað í stöðugt stækkandi hljóðgagnabanka þar sem þau eru flokkuð og þeim raðað eftir ákveðnu kerfi útfrá lengd, tónhæð og hljóðmagni. Þegar nýr gestur stígur inn í verkið þá rannsakar tölvuforritið hljóðvist hans og dregur síðan fram úr gagnabankanum þau hljóðskjöl sem það telur passa og varpar þeim út um hátalarana. Verkinu Hljóðbergi má lýsa sem einskonar hljóðrænum speglasal þar sem tilraunir eru gerðar með tímaskynjun sem tekur stökk eða fer í hringi frekar en að ferðast á jöfnum hraða eftir beinni línu. Úr verður staður þar sem þráðurinn sem bindur saman andartökin virðist gerður úr teygjanlegu og frekar óáreiðanlegu efni. Í verkinu er fátt að sjá enda snýst það um eyrun ekki augun en verkið gefur sér sem útgangspunkt að rými skynjum við með augunum en tímaskyn okkar sé aftur á móti bundið heyrninni. PetSounds er úr röð innsetninga eftir Ragnar Helga sem hugsuð eru sem leiktæki fyrir óvinsæla og yfirgefna heimspekilega skemmtigarða. Önnur verk úr þessari röð eru m.a. Baskýnisspegill (fyrir Walt Disney og Martin Heidegger) frá árinu 2006, Echo Homo frá 2001 og Immigrant Song frá 2004. Fyrsta útgáfa PetSounds (v.1.0) var sýnd í Steim, í Amsterdam árið 2002. Ragnar Helgi Ólafsson (1971) lauk B.A.-próf í heimspeki frá HÍ 1997 og útskrifaðist frá l'Ecole des Beaux Arts d'Aix-en-Provence vorið 2001. Hann hefur áður gert stuttar leiknar kvikmyndir og hreyfimyndir en vinnur nú mest með tölvur og forritun í virkum hljóð- og videóinnsetningum og netlistaverkum þar sem verkin hverfast um hugmyndir eins og uppsöfnun og gagnabanka, frásögn og leik, nostalgíu, minni og tíma. Ragnar Helgi hefur haldið sýningar víða um heim og hefur m.a. nýlega sýnt í KIASMA: The Museum of Contemporary Art (Helsinki), Museet for Samtidskunst (Danmörku), La Villette Numerique (París), STEIM-gallery (Amsterdam), Espace Sextius (Aix-en-Provence, Frakklandi) og Möbius International (Montréal, Kanada). Hann fékk Prix Möbius Nordica verðlaunin í Helsinki vorið 2006 og sérstök verðlaun dómnefndar í Prix Möbius International, í Montreal þá um haustið.
17. APRÍL KL. 14.00 GLÓPERA - Tónlistargjörningur í flutningi Parabólu
Á sunnudaginn kl.15:00 mun hópurinn Parabólur flytja tónlistargjörninginn „Glópera“ í Listasafni Íslands. Tónlistargjörningurinn er eftir Guðmund Vigni Karlsson og er hluti af dagskrá sýningaraðarinnar Hljóðheimar sem stendur nú yfir í safninu. Verkið Glópera er samið árið 2010. Í þessum tónlistargjörningi er leikið á endurvarpsloftnet, svonefndar parabólur, sem slagverkshljóðfæri í bland við tölvur og ljós sem hópurinn hefur smíðað. Verkið er óður til glóperunnar sem á undir högg að sækja. Innviðum glópera er varpað um rýmið og þær látnar stíga desibiladans. Guðmundur Vignir Karlsson (1978) er betur þekktur undir listamannsnafni sínu Kippi Kaninus. Kippi vakti strax mikla athygli þegar hann gaf út sína fyrstu plötu, „Í síðdegiskaffinu sígild hljómlist“ árið 2000 en þá plötu fullvann hann og framleiddi sjálfur. Í framhaldinu kom út platan Huggun sem fékk dreifingu um alla Evrópu og Bandaríkin. Kippi Kaninus hefur síðan þá unnið að og í fjölbreyttum verkum með mörgum þekktum íslenskum tónlistarmönnum, svo sem Amiinu, Sigtryggi Baldurssyni, Sigurrós og Björk Guðmundsdóttur. Parabólu hópurinn samanstendur af Guðmundi Vigni, Sigtryggi Baldurssyni og Steingrími Guðmundssyni.
Nánar um Kippa Kaninus 30. APRÍL–8. MAÍ GENERAL FACTORS eftir Darra Lorenzen

Laugardaginn 30. apríl kl. 15.00 verður opnuð sýningin General Factors, innsetning eftir Darra Lorenzen sem unnin er sérstaklega fyrir sýninguna Hljóðheima sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands. Darri Lorenzen hefur á umliðnum árum virkjað rými með því að höfða bæði til sjónrænnar upplifunar og tóneyra áhorfandans, með myndum, hreyfingu og hljóði sem beina athyglinni að stað og stund. Verkið General Factors verður til með gjörningi sem haldinn er degi fyrir sýningaropnunina þar sem fimleikastjörnur, ljósmyndarar og gestir skapa andrúmsloft sem listamaðurinn fangar.
Darri Lorenzen (1978) er rísandi listamaður á sviði hljóð-, mynd- og rýmisverka og hefur list hans meðal annars vakið verðskuldaða athygli í Berlín þar sem hann býr og starfar. Darri lauk námi frá Listaháskóla Íslands árið 2000 og stundaði framhaldsnám við Royal Academy of Art & Royal Conservatoire í Haag og við Kunsthochschule Berlin-Weißensee. Hann hefur verið iðinn við sýningahald hér heima og erlendis og árið 2009 var gefin út bók um verk listamannsins í tengslum við sýningu hans í Krome Gallery í Berlín.
Fimleikastúlkurnar Arna Pedra Sveinsdóttir, Hildur Karen Jónsdóttir og Kristín Sóla Þórðardóttir tóku þátt í gjörningi Darra.
Nánar um Darra Lorenzen
10.–22. MAÍ
STÓR SKUGGI MONTANA eftir Stilluppsteypu

Stór skuggi Montana (2011) er síbreytilegt mynd- og hljóðverk þar sem blandað er saman af handahófi hljómum, drunum rafeindatækja og undarlegum mannsröddum. Um leið verður til fullkomið tónlistarrými fyrir kvikmynd frá sjöunda áratugnum, kvikmynd sem aldrei varð neitt úr. Tónlistin í verkinu er eftir meðlimi Stilluppsteypu og sænska hljóðlistamanninn BJ Nilsen.
Stilluppsteypa hefur unnið að gerð tilraunkenndrar tónlistar í næstum tvo áratugi. Hún er skipuð þeim Helga Þórssyni og Sigtryggi Berg Sigmarssyni sem báðir starfa sem myndlistar- og tónlistarmenn. Helgi Þórsson (1975) stundaði nám við The Royal Conservatory í Haag og Rietveld Academy í Amsterdam og lauk meistaragráðu frá The Sandberg Institute í Amsterdam. Sigtryggur Berg Sigmarsson (1977) stundaði einnig nám við The Royal Consvervatory í Haag á árunum 1997-1998 og nam hljóðlist við Fachhochschule í Hannover á árunum 1998-2003. Þeir Helgi og Sigtryggur hafa báðir verið virkir í sýninga- og tónleikahaldi hér heima og erlendis og hafa gefið út fjölda verka, m.a. undir merkjum hljómsveitarinnar Stilluppsteypu.
Sunnudaginn 22. maí heldur Stilluppsteypa tónleika í tengslum við sýninguna sem verða auglýstir nánar síðar.
Nánar um Sigtrygg Berg Sigmarsson hér og hér. Nánar um Helga Þórsson
22.MAÍ KL. 15.00 TÓNLEIKAR - Stilluppsteypa |
 |
 |
 |  |
VIÐTÖL UM DAUÐANN, Magnús Pálsson og Helga Hansdóttir - 26.2. – 15.5. 2011 Salur 1 |
 |
 Árið 1999 fékk Helga Hansdóttir, öldrunarlæknir, Magnús Pálsson myndlistarmann til að taka þátt í verkefni með sér sem þau kölluðu Viðtöl um dauðann og tengdist samstarfsverkefninu Listir og vísindi. Árið 2003 leit svo sýning með sama heiti dagsins ljós í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Um var að ræða stóran sal, hálfmyrkvaðan, með teppum, veggfóðri, myndum og húsgögnum, en ljós barst frá röntgenmyndvarpa og skjáborði á hjúkrunarstofnun. Gamaldags símaborð voru eins og leiðarstef í þessari umfangsmiklu innsetningu og úr heyrnartólum mátti heyra frásagnir fólks af upplifun sinni, lesnar með ljóðrænum áherslum af fagfólki úr leikarastétt. Sýningin stóð ekki nema í fáeina daga. Viðtöl um dauðann er nú í eigu Listasafns Íslands og má búast við því að verkið veki ekki síður athygli nú, en yfir því hvílir vissulega dramatískur þungi þótt jafnframt sé það lífsbætandi því það fjallar á nærfærinn hátt um hinstu rök tilverunnar, sem enginn fær umflúið. Rannsókn Helgu Hansdóttur um dauðann Grein Önnu Jóa, Viðtöl um lífið á vefsíðu Hugvísindasviðs Háskóla Íslands um verkið Viðtöl um dauðann
|
 |
 |
 |  |
ÁFANGAR, úr safneign - 15.5. 2010 - 15.5. 2011 Salir 3 og 4 |
 |
 Fastasýning Listasafns Íslands á verkum frá 20. og 21. öld. Lengi hefur verið beðið eftir yfirlitssýningu á listaverkum úr safneign Listasafns Íslands, en örstutt þróunarsaga nútímalistar frá lokum 19. aldar til fyrsta áratugar hinnar 21. gefur innsýn í þær breytingar sem átt hafa sér stað frá aldamótunum 1900. Með úrvali á sjötta tug verka er reynt að koma til móts við þörf safngesta, innlendra jafnt sem erlendra, sem kalla á slíkt listsögulegt yfirlit.
|
 |
 |
 |  |
ÞAÐ BLÆÐIR ÚR MORGUNSÁRINU, Jónas E. Svafár - 22.1. – 13.2. 2011 Pallur 2. hæð |
 |
 Sýning á teikningum og ljóðabókum Jónasar E. Svafár (1925–2004) í Listasafni Íslands. Jónas vann jöfnum höndum sem dráttlistarmaður og ljóðskáld. Fyrstu ljóð og myndir Jónasar verða til um miðja síðustu öld þegar nýjar tjáningarleiðir ljóð- og myndlistar ryðja sér til rúms, atómskáldskapur og abstraktlist. Jónas E. Svafár hefur einkum öðlast sess innan íslenskrar menningarsögu sem ljóðskáld. Myndverkum Jónasar hefur síður verið veitt eftirtekt en ljóðlist hans enda þótt Jónas hafi litið á verk sín sem eina heild. Jónas var af samferðamönnum sínum kallaður grallari, sérvitringur, galgopi og hrekkjalómurinn með orðaleikina. Listasafn Íslands hefur nýverið eignast nokkrar af teikningum Jónasar og verða þær til sýnis ásamt ljóðabókum Jónasar, þar á meðal hinni fyrstu, Það blæðir úr morgunsárinu, sem skáldið gaf út í 37 handgerðum eintökum árið 1952. |
 |
 |
 |  |
LANDSLAG Í LISTASAFNI - 5.-20.2. 2011 Fræðslumiðstöð, jarðhæð |
 |
 Sýning á verkum nemenda barnadeildar Myndlistaskólans í Reykjavík sem unnin voru í tengslum við sýninguna Áfangar – Verk úr safneign. Landslagið hefur löngum verið Íslenskum myndlistarmönnum hugleikið. Það er kannski ekki skrýtið í landi þar sem náttúran er alls staðar nálæg og á sér vísan stað í hjörtum fólks. Það er sama hvar í veröldinni Íslendingurinn velkist, alltaf er hann með fjöllin á bakinu. Frumherjarnir, fyrstu íslensku málararnir, voru uppteknir af landslaginu, eins og við þekkjum í Þingvallamyndum Þórarins B Þorlákssonar og hrauninu hans Kjarvals. En landslag í myndlist er ekki bara málverk af fjalli. Landslagið á sér fjölbreyttar birtingarmyndir á ólíkum tímum og í ólíkum miðlum, eins og sjá má á sýningunni Áfangar – Verk úr safneign í efri sölum safnsins. Eggert Pétursson málar til dæmis ofurfínlega mynd af blómum, Hrafnkell Sigurðsson tekur mynd af snjófjalli sem orðið hefur til þegar snjónum er rutt af götum Akureyrar, Ólafur og Libia stilla sér upp á íslenskum búningi fyrir framan manngert landslag álversins í Straumsvík og svo eru það auðvitað landslagsmálverk Þórarins og Kjarvals. Í vetur gerðu nemendur Myndlistaskólans í Reykjavík sér ferð á Listasafn Íslands og skoðuðu sérstaklega ólíkar birtingarmyndir landslags í verkunum á sýningunni. Í framhaldinu unnu þau verk þar sem þau tókust sjálf á við landslagið. Á sýningunni gefur að líta afrakstur þriggja hópa úr barnadeildinni. Kennararnir sem tóku þátt voru: Ástríður Magnúsdóttir, Björk Guðnadóttir, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Guðbjörg Káradóttir, Hildur Steinþórsdóttir og Ína Salóme, ásamt 6-12 ára nemendum þeirra. |
 |
 |
 |  |
KARL KVARAN - 17.11. 2010 - 13.2. 2011 Salir 1 og 2 |
 |
 Karl Kvaran var meðal helstu forvígismanna geómetrískrar abstraktlistar á Íslandi upp úr miðri síðustu öld. Hann hélt tryggð við einfalda, markvissa formbyggingu verka sinna og telst því meðal helstu tengiliða franskættaðrar abstraktlistar og mínimalískrar tjáningar sem leysti fyrri skyldar liststefnur af hólmi. Eftir á að hyggja skar Karl sig úr hópi samferðamanna sinna sökum einstæðrar samkvæmni í verklagi og myndhugsun. Þótt hann hyrfi frá beinum línum hreinflatastefnunnar og hneigðist til sveigðrar og hringlaga formmótunar varð málaralist hans æ hreinni og beinni þótt tilfinning hans fyrir samspili vídda yrði að sama skapi margslungnari eftir því sem á leið. Litanotkun hans var sérkapítuli enda tefldi hann óragur saman gagnkvæmum litflötum með skærum skala sem rífur í sjóntaugarnar. Að þessu leyti brúaði Karl bilið milli abstraktmálverks og popplistar, en bak við þá leikni með litrófið bjó einstök teiknikunnátta. |
 |
 |
 |  |
MOLDARLJÓS - 19. -20.2. 2011 Salur 1 |
 |
Sýningin byggir á myndheimi Eggerts Péturssonar myndlistarmanns og hljóðheimi Hauks Tómassonar tónskálds þannig að úr verða listaverk sem kallast á, Moldarljós. Gunnlaugur Sigfússon, læknir, átti sinn þátt í tilurð Moldarljóss með því að leiða saman hesta beggja listamanna. Þeir hittust reglulega, mánuðum saman, áður en samstarfsverkefnið varð að veruleika. Haukur fylgdist með Eggerti mála og Eggert hafði tóna Hauks í eyrunum á meðan hann vann. Þannig fléttaðist verkið saman, eða verkin, því málverk Eggerts urðu fjögur og tónverk Hauks er í fjórum hlutum, sem kallast á við hverja mynd. Bygging tónverksins og myndanna fylgist því að í fleiri en einum skilningi. Hvert blóm eða tegund fékk sitt hljóðfæri og þannig er hægt að fylgjast með framvindu tónverksins í myndunum – og öfugt.
CAPUT tónlistarhópurinn flutti verkið MOLDARLJÓS undir stjórn Guðna Franzsonar.
|
 |
 |
 |  |
Borð - 20.5. 2010 - 20.1. 2011
|
 |
Sýning á verkefninu BORÐ eftir grafísku hönnuðina, Bergþóru Huld Birgisdóttur, Björn Jónsson, Finn Malmquist, Rán Flygenring og Örn Smára Gíslason.
Sýning var samvinnuverkefni Listasafns Íslands, veitingastaðarins Marengs og hönnunarteymisins Hunangs.BORÐIN voru til sýnis og notkunar á veitingastaðnum Marengs. |
 |
 |
 |  |
Aðflutt landslag PÉTUR THOMSEN - 16.9.-7.11. 2010 Salur 1 |
 |
 Pétri Thomsen (1973) hlotnuðust hin virtu og eftirsóttu LVMH-verðlaun, sem veitt eru ungum listamönnum, þegar þau voru afhent í tíunda sinn, árið 2007. Imported Landscape eða Aðflutt landslag er mögnuð syrpa ljósmynda sem lýsir hrikalegri umbreytingu landslagsins við Kárahnjúka þegar tæknimenningin með allri sinni nákvæmni og skipulagi ræðst gegn óspilltri náttúrunni umhverfis Hafrahvammagljúfur og brýtur landið undir sig miskunnarlaust. Risastórar jarðýtur fara um landsvæðið og skilja eftir sig svöðusár líkt og bit í holdi eftir fiðlukönguló. Pétur lýsir þessum ójafna leik með dramatískri hlutlægni sem skilur áhorfandann eftir í uppnám. |
 |
 |
 |  |
Cars in rivers ÓLAFUR ELÍASSON - 16.9.-7.11. 2010 Salur 2 |
 |
 Sýning á sex ljósmyndaröðum eftir Ólaf Elíasson. Cars in rivers, 2009 lýsir barningi mannsins við óútreiknanlega náttúru, um leið og myndröðin gæti með táknrænum hætti lýst efnahagshremmingum þeim sem við Íslendingar höfum lent í síðustu misserin og mætti líkja við kafsiglingu torfærubíla í straumhörðum vatnsföllum. Jökla Series, 2005 er skrásetning listamannsins á Jökulsá á Dal (Jöklu) frá jökulrótum að svæðinu þar sem Kárahnjúkastífla rís, en reyndar var gerð stíflunnar langt komin þegar myndröðin var unnin. Síðan fylgdi listamaðurinn ánni töluvert áleiðis í átt að ósi. Hér er því um einstæða heimild að ræða því Jökla hefur algjörlega breytt um svip. Auk þessara myndraða eru sýndar Green river series og þrjár nýjar ljósmyndaraðir frá 2010 sem sýna auðnir Íslands og náttúruöfl sem þó fóstra gróður og menningarleg ummerki þar sem síst skyldi ætla. |
 |
 |
 |  |
ÓNEFND KVIKMYNDASKOT; Cindy Sherman - 15.5. - 12.9. 2010 Salur 1 |
 |
Ónefnd kvikmyndaskot er ein þekktasta myndröð bandarísku listakonunnar Cindy Sherman, 69 svarthvítar ljósmyndir þar sem listakonan stillir sér upp sem leikkonu í ímynduðum kvikmyndum sem bera keim af gullöld kvikmyndanna í kringum miðja síðustu öld. Hún er ýmist stödd í ótilgreindri B-mynd, Hollywood-stórmynd eða evrópskri film noir-ræmu. Myndirnar voru unnar á árunum 1977–1980 og skutu henni kornungri upp á stjörnuhimin myndlistarinnar ásamt því að opna augu myndlistarheimsins fyrir möguleikum ljósmyndarinnar.
Ferilskrá Cindy Sherman Verk eftir Cindy Sherman |
 |
 |
 |  |
EDVARD MUNCH - 15.5. - 12.9. 2010 Salur 2 |
 |
Grafíkverk úr fórum Listasafns Íslands.
Edvard Munch gerði sínar fyrstu þrykkmyndir síðla árs 1894 en fram til vorsins 1895 sótti hann í sig veðrið varðandi ýmis tæknibrögð og aðferðir. Listasafn Íslands á hrífandi úrval 18 verka sem kalla má frumraun listamannsins á þessu sviði. Það var góðvinur listamannsins, hagfræðingurinn og skipulagsfræðingurinn Christian Gierløff, sem af rausnarskap sínum færði íslensku þjóðinni 15 grafíkverk að gjöf árið 1947. Þrjú verk bárust skömmu síðar eða 1951 að gjöf frá Ragnari Moltzau útgerðarmanni og formanni stjórnar norska listiðnaðarsafnsins, en þau voru hluti af stórri gjöf grafíkverka eftir norska listamenn. Á þessari sýningu gefst gestum Listasafns Íslands einstakt tækifæri til að kynnast fjölbreytilegri og harla sérstæðri grafíktækni þessa þekktasta myndlistarmanns Norðurlandanna fyrr og síðar.
Grafíkverk Edvards Munch í safni Edvards Munch í Ósló
Grein um grafíkverk Edvards Munch |
 |
 |
 |  |
DYNDILYNDI - verði gjafa gagnstreymi -
|
 |
DYNDILYNDI - VERÐI GJAFA GAGNSTREYMI
Listahátíð barna / Myndlistarskólinn í Reykjavík
17.4. - 2.5. 2010
|
 |
 |
 |  |
ANGURVÆRÐ Í MINNI - 11.3. - 2.5.2010 Salir 1, 3 og 4 |
 |
Amelie von Wulffen
Birgir Snæbjörn Birgisson
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson
Helgi Þorgils Friðjónsson
Á sýningunni Angurværð í minni eru verk eftir fjóra listamenn sem fjalla um ásælni minninganna. Ef til vill er það vegna þess hve minningar eru bókmenntalegar sem við gleymum sjónhendingunni, myndinni sem birtist minninu eins og dauft leiftur, milliliða- og frásagnarlaust. Þannig augnablik virðast vera uppistaðan í verkum Amelie von Wulffen og fyrirferðin ryður sér braut inn í raunveruleikann og skekkir rýmið með svipuðu offorsi og Carl Fredrik Hill brenglaði víddirnar í teikningum sínum eða Leonardo leyfði sér í hvarfpunktaleiknum í Vitringateikningu sinni sem var skilin eftir ókláruð, eins og ætla mætti að væri tilfellið í svo mörgum málverkum von Wulffen. Hins vegar gengur Birgir Snæbjörn bókmenntunum bókstaflega á hönd með því að endurrita, orð fyrir orð, upplýsingar um vændiskonur Parísarborgar á 19. öld. Helgi Hjaltalín nemur staðar við minni sem hann hefur alltaf fyrir augunum og setur ógleymanlegan svip á nánasta umhverfi hans um leið og það er nær ósýnilegt þeim sem ekki þekkja til staðhátta. Fyrir nafna hans, Helga Þorgils Friðjónssyni, er angurværð í minni fólgin í kraftbirtingu hversdagsins; til dæmis gnægtaborðinu sem opinberast í hollenskri málaralist 17. aldar í formi kyrralífsmynda af hlöðnum matborðum, en koma fram í útvarpsfréttum okkar tíma sem afla- og gæftafregnir. Þannig verður hversdagshugdettan með tíð og tíma að angurværum gleðileik.
Þýska sendiráðið styrkta sýninguna. |
 |
 |
 |  |
VINNUSTAÐIR ALVÖRU KARLA - 11.3. - 11.4. 2010 Salur 2 |
 |
VINNUSTAÐIR ALVÖRU KARLA
Ívar Brynjólfsson
Ívar Brynjólfsson á sér margslungnari feril sem ljósmyndari en flestir kollega hans. Hann hefur lengi tekið skarpar og undurfagrar myndir fyrir Þjóðminjasafn Íslands og því hljóta margir að reka upp stór augu þegar þeir sjá myndir hans af vinnustöðum karla. Van Gogh málaði Sólblóm sín, beggja vegna Madame Roulin, sem rjátlar við talnabandið í ruggustólnum. Þannig hugsaði hann sér þrískipta altaristöflu sem prentuð yrði fyrir bretónska sjómenn á Íslandsmiðum til að hafa í lúkarnum. Allir karlar virðast þurfa sínar altaristöflur og þær finnur Ívar í skotinu við skrifborðið á verkstæðum smiða og bifvélavirkja. Þetta eru ekki guðhræddar konur með talnaband, en konur engu að síður.
|
 |
 |
 |  |
CARNEGIE ART AWARD 2010 - 9.jan. - 21.febr. 2010 Salir 1-4 |
 |
Carnegie Art Award eru meðal veglegustu myndlistarverðlauna heims. Aðalverðlaunin, sem nema um einni milljón sænskra króna, voru í ár veitt íslenska listamanninum Kristjáni Guðmundssyni. Verk hans verða til sýnis ásamt verkum tuttugu og tveggja annarra norrænna listamanna í Listasafni Íslands frá 9. janúar til 21. febrúar 2010.
Carnegie Art Award er ætlað að kynna norræna nútímalist. Á sýningunni eru verk kunnra listamanna ásamt verkum nýliða á listasviðinu. Dómnefnd valdi tuttugu og þrjá þátttakendur úr hópi hundrað fjörtíu og átta listamanna sem voru tilnefndir. Önnur verðlaun, að upphæð sex hundruð þúsund sænskar krónur, hlaut Kristina Jansson og þriðju verðalun, að upphæð fjögur hundruð sænskar krónur, komu í hlut Felix Gmelin. Styrkur til ungs listamanns, að upphæð eitt hundrað þúsund sænskar krónur, kom í hlut Marie Søndergaard Lolk.
LISTAMENN
Kjersti G. Andvig -NO, Kristján Guðmundsson-IS, Torben Ribe-DK, Anastasia Ax-SE, Kristina Jansson-SE, Sigrid Sandström-SE, Tone Kristin Bjordam-NO, Sergej Jensen-DK, Astrid Sylwan-SE, Milena Bonifacini-DK, Camilla Løw-NO, Egill Sæbjörnsson-IS, A K Dolven-NO, Jukka Mäkelä-FI, Marie Søndergaard Lolk-DK, Saara Ekström-FI, Ylva Ogland-SE, Marianna Uutinen-FI, Mads Gamdrup-DK, Jorma Puranen-FI, Hannu Väisänen-FI, Felix Gmelin-SE, Seppo Renvall-FI
Carnegie Art Award 2010 var opnuð þann 17. september 2009 í Kunsthall Charlottenborg í Kaupmannahöfn, þar sem verðlaunin voru afhent. Sýningin fer síðan til Stokkhólms, Óslóar, Peking, Lundúna og Helsinki og henni lýkur í Carros/Nice vorið 2011.
DÓMNEFND - Sjá hér VINNINGSHAFAR 2010 - SJÁ HÉR LISTAMENN SÝNINGARINNAR - Sjá hér SJÁ FRÆÐSLUDAGSKRÁ SÝNINGARINNAR
EFTIRLÆTIS LISTAMAÐUR SÝNINGARINNAR Safngestir Listasafns Íslands höfðu tækifæri til að kjósa sinn eftirlætislistamann á sýningunni, CARNEGIE ART AWARD 2010 ,eftir að hafa skoðað hana.
TONE KRISTIN BJORDAM varð hlutskörpust meðal safngesta LÍ. Videoverk hennar má sjá í sal 2 í safninu og ber heitið, Coral, unnið 2009. Verkið er 12 mínútna langt í flutningi. Sjá meðfylgjandi mynd úr verkinu. Hér má lesa nánar um listakonuna, Tone Kristinu Bjordam:
Í nóvember 2009 í Kunsthal Charlottenborg í Kaupmannahöfn kusu einnig safngestir sýningarinnar Tone Kristinu Bjordam sem eftirlætis listamann sýningarinnar, sjá hér |
 |
 |
 |  |
REYKJAVÍKURMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR -
|
 |
 VEFMYNDASÝNING |
 |
 |
 |  |
SVAVAR GUÐNASON - 31.10. 2009 - 03.01. 2010 Salir 1-4 |
 |
Sýningin er yfirlitssýning á verkum Svavars Guðnasonar (1909-1988) sem er meðal þekktustu listmálara Íslands og er það ekki síst að þakka nánum tengslum hans við danska abstraktlist á árunum 1936 til 1946, en á þeim árum voru danskir abstraktmálarar í fararbroddi sjálfsprottinnar myndlistar í Evrópu. Á sýningunni eru verk úr eigu Listasafns Íslands, einkaeign, úr dánarbúi listamannsins og frá ýmsum stofnunum. Eitt verk kemur erlendis frá, Veðrið frá 1963, sem Listasjóður danska ríkisins gaf Árósarháskóla 1964, ári eftir að Svavar hafði lokið við þrekvirkið.
Sýningin varpar ljósi á þróun Svavars frá miðjum fjórða áratug liðinnar aldar til þess níunda. Meginmarkmið með sýningunni á list Svavars er að kynna hana fyrir þeim kynslóðum sem fórú á mis við listamanninn í lifanda lífi en þekkja til hans af orðspori. Með ferskleik sínum og splundrandi krafti náði Svavar að heilla langtum fleiri kynslóðir Íslendinga en samferðamanna sinna einna.
Sýningarstjóri, Sigríður Melrós Ólafsdóttir
Ráðgjafar, Kristín Guðnadóttir, Björg Erlingsdóttir
Aðstoð við uppsetningu sýningar, Ólafur Ingi Jónsson, Erling Klingenberg, Anna Hallin, Olga Bergmann |
 |
 |
 |  |
FALINN FJÁRSJÓÐUR: GERSEMAR Í ÞJÓÐAREIGN? - 10.7.-18.10. 2009 Salir 1-4 |
 |
Sýning á verkum úr söfnum ríkisbankanna þriggja; Kaupþings, Landsbanka Íslands og Íslandsbanka ásamt völdum verkum úr safneign Listasafns Íslands. Safneign ríkisbankanna telur um 5.000 verk og Listasafns Íslands um 10.000 verk. Mörgum spurningum er enn ósvarað varðandi framtíð listaverkasafna bankanna en með sýningunni er reynt að varpa ljósi á mikilvægi þessara verka, í samhengi við listasögu þjóðarinnar. Á sýningunni eru 143 verk; rúmlega 90 verk úr safneign ríkisbankanna og um 50 verk úr safneign Listasafns Íslands; málverk, grafíkmyndir, ljósmyndir, teikningar, textílverk, höggmyndir og innsetningar. Elsta verkið á sýningunni er frá árinu 1881 eftir Þóru P. Thoroddsen.
GERSEMAR Í ÞJÓÐAREIGN? ENDURFUNDIR VIÐ FALINN FJÁRSJÓÐ eftir Halldór Björn Runólfsson
|
 |
 |
 |  |
HRAFNKELL SIGURÐSSON - 15.5. - 28.6. 2009
|
 |
HRAFNKELL SIGURÐSSON
Sýning Listasafns Íslands á Listahátíð í Reykjavík 2009.
Hrafnkell Sigurðsson (f. 1963) er framarlega í flokki ljósmyndalistamanna, en með því er átt við listamenn sem nota ljósmyndamiðilinn sem tjáningarform vegna inntaksins fremur en sjálfrar tækninnar.
RÖKFRÆÐIN Í VERKUM HRAFNKELS SIGURÐSSONAR eftir Halldór Björn Runólfsson safnstjóra |
 |
 |
 |  |
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON - 15.5. - 28.6. 2009 Salir 1 og 3 |
 |
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON
Sýning Listasafns Íslands á Listahátíð í Reykjavík 2009.
Kristján Guðmundsson (f. 1941) var einn af stofnendum Gallerís SÚM árið 1969 og Nýlistasafnsins tæpum tíu árum síðar. Langt er síðan hann fyllti flokk þeirra íslensku listamanna sem metnir eru erlendis enda er list hans í sérflokki hvað snerpu og tærleik myndhugsunar áhrærir.SKÁLDSKAPARMÁL KIRSTJÁNS GUÐMUNDSSONAR Grein eftir Halldór Björn Runólfsson |
 |
 |
 |  |
NOKKRIR VINIR - 13. febrúar - 3. maí 2009 Salir 1, 2, 3, 4 |
 |
Sýningin bregður ljósi á þann kapítula í íslenskri listasögu þegar formræn list lét undan síga fyrir óformrænum gildum og önnur viðhorf tóku að banka uppá með þunga uppúr miðri síðustu öld. Horft er til komu svissneska listamannsins Dieter Roths til landsins og þeirrar gerjunar er varð meðal nokkurra ungra listamanna um sama leyti sem þekktust vel og umgengust mikið. Gagnkvæm áhrif þessa fólks og áhrif á myndlistina í landinu verða í brennidepli sýningarinnar.
Verkin á sýningunni eru hátt í hundrað að tölu og á annað hundrað ef talið er eftir myndröðum undir sama númeri.
Verkin á sýningunni spanna tímabilið frá miðri síðustu öld fram á daginn í dag og eru eftir: Arnar Herbertsson, Björn Roth, Dieter Roth, Erró, Hreinn Friðfinnsson, Hörður Ágústsson, Jóhann Eyfells, Jón Gunnar Árnason, Kristján Guðmundsson, Magnús Pálsson, Magnús Tómasson, Róska, Rúrí, Sigurð Guðmundsson, Sigurjón Jóhannsson, Þórður Ben Sveinsson. Auk þess verður kvikmynd Hilmars Oddsonar um Dieter Roth sýnd í tengslum við sýninguna.
Flest verkin eru úr eigu Listasafns Íslands en drjúgur hluti kemur úr fórum Nýlistasafnsins og þakkar Listasafnið gott samstarf við aðstandendur þess.
Sýningarstjórar: Björn Roth, Halldór Björn Runólfsson og Sigríður Melrós Ólafsdóttir.
Hönnun sýningar: Ívar ValgarðssonNýlistasafnið |
 |
 |
 |  |
ÞÓRÐUR BEN SVEINSSON - 18.4. - 28.6. 2009 2. hæð |
 |
Apríl - júní 2009
Á annarri hæð má sjá nokkur af skipulags- og húsagerðarverkum Þórðar Ben Sveinssonar, en það eru verk sem kallast Borg náttúrunnar, frá 1981 til 2005. Stærst þessara verka er akrýlmálverkið, Borg náttúrunnar frá 1984, sem gefur góða mynd af útfærslu listamannsins á „garðhúsi“, sem fylgja hugmynd hans um „ylstræti“, en hvort tveggja eru grunnhugtök í húsagerðarlist hans. Þórður Ben Sveinsson er erkidæmi um listamann sem ekki verður felldur undir eina formræna né flokkunarlega skilgreiningu. |
 |
 |
 |  |
NEMENDUR NJÓTA MYNDLISTAR OG SKAPA -
|
 |
15. apríl - 3. maí
Í samstarfi við Listasafn Íslands kynntu nemendur Myndlistarskólans í Reykjavík sér verk Magnúsar Pálssonar á sýningunni Nokkrir vinir fyrir skemmstu. Eftirtalin verk voru skoðuð sérstaklega og rædd út frá sjónarhóli nemendanna. Kúplingsdiskur, Gifsbörn, Móri og Pappírsást. Verkefnið var jafnframt unnið í nánum tengslum við listamanninn sjálfan sem spjallaði við alla kennara nemenda Myndlistarskólans. Afraksturinn af þessu samstarfsverkefni fræðsludeildar Listasafnsins og Myndlistarskólans í Reykjavík má nú sjá á vinnustofu barna á jarðhæð safnbyggingarinnar við Fríkirkjuveg.
Sýningin mun standa fram til 3. maí.
Magnús Pálsson, Gifsbörn, 1971 |
 |
 |
 |  |
KÚLAN - 26. mars – 15. apríl
|
 |
Kúlan var húsgagnaverslun í Reykjavík sem var stofnuð í apríl 1962.
Kúlan hafði það að markmiði að selja ódýr og nýstárleg húsgögn og listmuni.
Stofnendur Kúlunnar voru Dieter Roth, Magnús Pálsson og Magnús Jóhannsson. Dieter Roth mun hafa verið hvatamaðurinn að stofnun Kúlunnar og hannaði hann ásamt fleiri listamönnum sem eiga verk á sýningunni Nokkrir vinir marga merka gripi fyrir hana. Fleiri komu við sögu og má þar nefna Andrés Kolbeinsson, Gunnar Malmberg, Manfreð Vilhjálmsson og Sigríði Björnsdóttur.
Í húsakynnum kaffistofu Listasafns Íslands eru til sýnis munir og myndir frá tímabilinu 1957 – 1962 er varpa ljósi á hugmyndir þeirra sem að Kúlunni stóðu um hönnun og lífsstíl.
MÁLÞING - KAOS EÐA KOSMOS Miðvikudaginn 22. apríl kl. 17.00 - 19.00 var haldið málþing um skipulag höfuðborgarsvæðisins í tengslum við verk Þórðar Ben Sveinssonar á sýningunni Nokkrir vinir sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg 7. Á málþinginu hafa framsögu þau Hjörleifur Stefánsson, arkitekt, Ágústa Kristófersdóttir, sýningarstjóri Þjóðminjasafns Íslands, Hjálmar Sveinsson, heimspekingur og þáttagerðarmaður ásamt Halldóri B. Runólfssyni, forstöðumanni Listasafns Íslands. Skipulagshugmyndir Þórðar Ben í kaffistofu safnsins og sal 1 gefa ærið tilefni til að leiða saman hesta manna sem hlotið hafa viðurkenningu fyrir umfjöllun um skipulagsmál en báðir hlutu þeir Hjálmar og Hjörleifur virðurkenningu Skipulagsfræðingafélags Íslands árið 2008 fyrir ötula viðleitni sína í ræðu og riti til að upplýsa og efla umræðu um skipulagsmál. Hjálmar hefur stjórnað útvarpsþættinum Krossgötur um alllangt skeið og Hjörleifur hefur gefið út bækur um byggða- og skipulagssögu höfuðborgarinnar, nú síðast Anda Reykjavíkur, sem út kom síðastliðið haust. Þá er Ágústa Kristófersdóttir þekkt fyrir aðkomu sína að skýrslum Árbæjarsafns um byggingasögu Reykjavíkur auk þess sem hún stjórnaði sýningum á borð við Byggt yfir hugsjónir: Breiðholt frá hugmynd að veruleika, árið 2002, í Listasafni Reykjavíkur. Þess má reyndar geta að Myndlistarskólinn í Reykjavík, sem jafnframt hlaut viðurkenningu Skipulagsfræðingafélagsins heldur nú nemendasýningu í Listasafni Íslands í tengslum við sýninguna Nokkrir vinir og þátt Magnúsar Pálssonar í henni.
|
 |
 |
 |  |
KVIKAR MYNDIR: Myndbönd í árdaga margmiðlunar -
|
 |
KVIKAR MYNDIR: Myndbönd í árdaga margmiðlunar
6.12. 2008 - 1.2 2009
SALUR 2
Opnuð hefur verið ný sýning í Listasafni Íslands þar sem tekin hafa verið til sýningar í sal 2 nokkur myndbandsverk í eigu Listasafnsins eftir þrjár íslenskar konur. Það eru þær Ásta Ólafsdóttir (f. 1948), Sigrún Harðardóttir (f. 1954) og Steina (f. 1940). Verk Ástu er frá 1983 og nefnist Það heldur áfram.Verkið er byggt á ljúfsárum hugleiðingum um tilveruna í baksýnisspegli tímans. Listasafn Íslands keypti verkið árið 1988. Verk Sigrúnar, Stafræn sjálfsmynd – Digital Self-portrait – frá 1985, er ávöxtur námskeiðs undir handleiðslu Steinu og Woody Vasulka í Monte Video margmiðlunarmiðstöðinni í Amsterdam. Stafræn sjálfsmynd Sigrúnar var sýnd á Stöð 2, ári áður en Listasafn Íslands eignaðist verkið árið 1988. Verk Steinu, Noisefields, 1974, Orbital Obsession, 1977 og Lilith, 1987 sýna vel þróunarferli Steinu. Verkið Noisefieldser af mörgum álitið ein fullkomnasta samvirkni hljóðs og myndar, sem komið hefur fram í myndbandslistinni. Orbital Obsession er svarthvítt ferðalag um tæknibúnað vinnustofu Steinu og Woody Vasulka í Buffalo. Lilith var hin kona Adams, ódæl og óræð. Hér er stafræn úrvinnsla komin til sögunnar og Listasafnið eignaðist verk Steinu árið 2007. Sýningarstjóri er Halldór Björn Runólfsson. |
 |
 |
 |  |
ÁST VIÐ FYRSTU SÝN: Nú aðföng úr Würth-safninu -
|
 |
ÁST VIÐ FYRSTU SÝN: Ný aðföng úr Würth-safninu
11.10. 2008 - 28.1. 2009
SALIR 1, 3 OG 4
Einkasafn þýska iðjuhöldsins Reinholds Würth hefur vaxið með hraði á undanförnum árum og telst nú eitt af veglegri einkasöfnum í Evrópu yfir nútíma- og samtímalist. Á sýningunni eru ný aðföng úr þessu merka einkasafni, 46 valinkunn verk, þar sem finna má verk frá tímum impressjónistanna og allt til þýskrar og alþjóðlegrar samtímalistar.
Frá því Würth-safnið varð til á 7. áratugnum hefur það vaxið og telur nú um 11.500 verk eftir viðurkennda meistara alþjóðlegrar nútíma- og samtímalistar. Í því broti af einkasafni Würth, sem nú koma fyrir sjónir Íslendinga kennir margra grasa.Wurth-safnið
Grein eftir Halldór Björn Runólfsson
Fræðsludagskrá sýningarinnar
Würth á Íslandi var aðalstyrktaraðili sýningarinnar. |
 |
 |
 |  |
SHIRIN NESHAT - 25.9. - 2.11. 2008
|
 |
Íranska listakonan Shirin Neshat hefur um árabil verið í fremstu röð listamanna sem nota myndbönd til að tjá óvenjulega gagnrýni sína á íranskt samfélag. Bann við söng kvenna og sú staðreynd að geðsjúkar konur þurfa ekki að hylja hár sitt eru dæmi um vökult auga hennar fyrir sérkennum ríkjandi skipulags, sem hún átelur fyrir tvískinnung í kynjamálum. Neshat hefur verið búsett í New York um árabil og vinnur nú að sinni fyrstu kvikmynd. Sýningin er skipulögð í nánum tengslum við Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík (RIFF).
Sýningarstjóri: Halldór Björn Runólfsson
Aðstoðarsýningarstjóri: Hulda Hlín Magnúsdóttir
Aðstoð við uppsetningu sýningar: Ólafur Ingi Jónsson, Bryndís H. Ragnarsdóttir, Olga Bergmann
Nánar |
 |
 |
 |  |
SÝNING Á VERKUM ÚR SAFNEIGN - 10.7. -28.9. 2008
|
 |
Á árlegri sumarsýningu LÍ er lögð áhersla á ólík tímabil í íslenskri nútíma- og samtímalist. Í hverjum hluta sýningarinnar er dregið fram ákveðið tímabil í stuttri sögu íslenskrar listar, frá því hún var viðurkennd sem fagleg iðja, og ljósi varpað á ýmis tilbrigði í þróun hennar út frá áhrifum samsvarandi þjóðfélagsbreytinga og stílbrigða. Sýningarstjóri er Halldór Björn Runólfsson.
P. Picasso, Jacqueline með gulan borða, 1962
Salir 1 og 2 - Hin klassísku gildi
Salur 3 - Steina
Salur 4 - Elín Hansdóttir
|
 |
 |
 |  |
LIST MÓT BYGGINARLIST - 16.5. - 29.6. 2008
|
 |
Framlag Listasafns Íslands til Listahátíðar í Reykjavík 2008
List og byggingarlist hafa löngum átt erfiða sambúð og illa skilið kröfur hvor annarrar um óskoraða athygli og áhrifastöðu, hvað varðar rými, tíma og mikilvægi. Oftast hefur listin verið í veikari stöðu sökum þess að byggingarlistin umvefur hana, veitir henni skjól og finnur henni stað. Það þýðir ekki að listin sætti sig skilyrðislaust við stöðu sína heldur heimtar hún eins hlutlaust umhverfi sér til handa og frekast er unnt, það er að segja umgjörð sem er óháð umlykjandi byggingu.
Eftir sem áður rísa söfn teiknuð af arkitektum og brýna listamenn til að halda sínu gagnvart ásókn umhverfisins. Í þessari togstreitu er listamaðurinn eins og einstaklingur, sem rís gegn óskoruðu yfirvaldi, í hvað formi sem er, í von um að bjóða því dús, eða að minnsta kosti benda á aðra möguleika í stöðunni. Í þessum skilningi opinbera allar listsýningar dulin átök milli listamanna og arkitekta, en fáar hafa þessar staðreyndir beinlínis að inntaki.
Með sínu dæmigerða póstmóderníska byggingarlagi frá ofanverðum 9. áratugnum, hvetur Listasafn Íslands til skrafs við listamenn, sem eru nægilega hugrakkir til að takast á við vandasama innviði þess. Betra teymi en Monicu Bonvicini, Elínu Hansdóttur, Finnboga Pétursson, Steinu og Franz West er vart hægt að finna.
Sýningunni mun fylgja ágrip um hugmyndir Sant’Elia og fútúríska byggingarlist hans, Nýju Babýlon hollenska listmálarans Constants, hugmyndir landa hans, sagnfræðingsins og menningarfræðingsins Johans Huizinga um hinn leikandi mann, homo ludens, gagnhönnunarstofurnar Archigram og Archizoom á 7. og 8. áratugnum, róttækar hugmyndir Rems Koolhaas um borgarskipulag og þær staðreyndir að nýlega var gerð atlaga að ósnortnu víðerni Íslands með virkjanaframkvæmdum, sem setja í uppnám stærstu óbyggðir Evrópu.
Sýningarstjóri: Halldór Björn Runólfsson
Aðstoðarsýningarstjórn: Harpa Þórsdóttir, Bryndís Ragnarsdóttir
Aðstoð við uppsetningu sýningar: Anna Hallin, Brimás ehf., Olga Bergmann, Jeannot Dupont, Ólafur Ingi Jónsson, Raaf van der Sman, Ulf Sturhann, Úlfur Grönvold
|
 |
 |
 |  |
Elín Hansdóttir -
|
 |
Elín Hansdóttir (f. 1980) er íslenskur innsetningalistamaður, sem kemur fyrir gagnvirkum miðlunar- og rýmissamstæðum sínum rétt eins og byggingum í byggingum. Þannig umbreytist raunverulegt umhverfi í sálrænan og fyrirbærafræðilegan leikvöll. Elín býr og starfar í Berlín. |
 |
 |
 |  |
Finnbogi Pétursson -
|
 |
Finnbogi Pétursson (f. 1959) er hljóð- og margmiðlunarlistamaður, sem leggur áherslu á augnablikið með því að blanda list við rafræn fyrirbrigði með háþróuðu samspili fínstillingar og hendingar á naumhugulum tæknibúnaði. |
 |
 |
 |  |
Franz West -
|
 |
Franz West (f. 1947) býr og starfar í Vínarborg þar sem hann varð þekktur snemma á 8. áratugnum fyrir sérstæðar höggmyndir sínar úr gifsi, sem vinir og vandamenn báru sem viðbætur kallaðar Adaptives. Fljótlega þróaði hann þessi líkamlegu verk yfir í þekktar húsgagnasamstæður sínar og breytti með þeim sýningarsölum, söfnum og samkomustöðum í notalega samverustaði fyrir fólk. |
 |
 |
 |  |
Monica Bonvicini -
|
 |
Monica Bonvicini (f. 1965) er verðlaunaður innsetningalistamaður, fædd í Feneyjum en býr og starfar í Berlín. Hún ræðst gegn lögmálum byggingarlistarinnar með því að nota leður og flauel sem efnivið ásamt steinsteypu og stáli, og leggur með því áherslu á líkamleg tengsl við list sína. |
 |
 |
 |  |
Steina -
|
 |
Steina (f. 1940) er frumkvöðull í myndbandslist ásamt eiginmanni sínum og samverkamanni, Woody Vasulka. Saman stofnuðu þau „The Kitchen“ í New York árið 1971, fremstu tilraunastöð í myndbands- og hljóðlist, áður en þau sökktu sér niður í tæknilegan kjarna miðilsins. Steina býr og starfar í Santa Fe, Nýja-Mexíkó. |
 |
 |
 |  |
STREYMIÐ - LA DURÉE - 23.2. - 1.5. 2008
|
 |
Sýningin STREYMIÐ er tilraun til að leiða saman hesta tveggja frábærra, íslenskra listamanna og eins erlends, og brjóta með því upp þá algengu lensku að sýnendur séu annað hvort innlendir eða erlendir. Með því telur Listasafn Íslands að best verði komið til móts listmenningu, sem í senn er staðbundin og alþjóðleg og virðir engin hugarfarsleg höft en telur sig eiga heima hvar sem er og hvenær sem er án tillits til uppruna. Inntak sýningarinnar undirstrikar svo ekki verður um villst að streymi tímans, sem franski heimspekingurinn Henri Bergson skilgreindi sem grundvöll frelsis og mótunar hvers manns er sammannlegt fyrirbæri, sem ekki virðir nein landamæri.
|
 |
 |
 |  |
EMMANUELLE ANTILLE - SALIR 1 OG 2
|
 |
Árið 2003 var Emmanuelle Antille fulltrúi heimalands síns á 50. Tvíæringnum í Feneyjum, með myndbandi sínu Angels Camp, frá 2001-2003. Antille hefur fyrir löngu áunnið sér frægð fyrir áleitin verk sín af nánasta umhverfi þar sem samspil fjölskyldu og vina tekur á sig sérstæðan svip launhelga og táknrænna athafna, eða unglingar hreiðra um sig í byggingum og mannvirkjum í úthverfum líkt og hópar af framandi ættbálkum. Verk hennar spyrja áleitinna spurninga um stöðu menningar og hversdagslegrar tilveru í nútíma samfélagi.
|
 |
 |
 |  |
GABRÍELA FRIÐRIKSDÓTTIR - SAL 3 |
 |
Gabríela Friðriksdóttir var fulltrúi Íslands á Tvíæringnum í Feneyjum árið 2005 með verki sínu Versations Tetralogia, sem vakti ómælda athygli sökum sérstæðrar samþættingar á myndmáli, tónlist og sviðslist. Íslenska skálanum í Kastalagörðunum var nánast breytt í hlöðu og gestum boðið að ganga á vit tímaflakks í óræðum ævintýraheimi, milliveröld draums og vöku, þar sem persónur og leikendur frá liðnum öldum blandast draugum og forynjum á tónrænu plani. Þannig gat áhorfandinn hvarflað frá kvikmyndalegri framvindu til tónrænnar upplifunar í táknheimi, sem nú tekur á sig nýja og umbreytta mynd. |
 |
 |
 |  |
GUÐNÝ RÓSA INGIMARSDÓTTIR -
|
 |
Árið 2005 var Guðný Rósa Ingimarsdóttir einn af fulltrúum Belgíu á sérsýningu í Madríd, á hinni þekktu liststefnu ARCO. Þar kynntust gestir hinum sérstæða heimi hennar, sem birtist gjarnan þögull og nærfærinn gegnum teikningar, sem virðast spretta fram án upphafs og endis. Efnismeðferð hennar í nýjustu verkum byggir gjarnan á mörgum ólíkum lögum áferðar, dregnum fram með skurðhníf undan mynstri nets eða möskva svo það sem undir býr kemur í ljós eins og óljósar getgátur, sem aftur hverfa inn á við til tíma og rúms, sem streyma hljóðlaust fram eins og jakaburður undir yfirborði hins sýnilega heims. |
 |
 |
 |  |
KRISTJÁN DAVÍÐSSON - 2.11.2007 - 10.2.2008 Salir 1, 2, 4 |
 |
Listasafn Íslands býður gestum sínum að gaumgæfa óbilandi sköpunargleði þessa listamanns sem aldrei lét beygja sig undir reglufestu módernismans heldur hélt áfram að tjá sig óheft og ljóðrænt, eins og andinn blés honum í brjóst. Andspænis bakgrunni, sem hleypur á þróun málarans frá öndverðu, má sjá hvernig Kristján býður aldrinum ótrauður birginn með því að leita stöðugt nýrra leiða í útfærslu myndflatarins. Dirfska hans og kraftur eru í sérflokki og sífellt birtast nýjar og óvæntar hliðar á leit hans að samhljómi. Ólýsanlegar víddir þar sem hvorki er að finna gefna leið né aðferð eru ær hans og kýr. Að því leyti má segja að hann standi á tímamótum í hvert sinn sem hann lyftir pensli. Ekkert í ferlinu er fyrirsjáanlegt nema nálgunin. Hún ber höfundinum órækt vitni. |
 |
 |
 |  |
ÚR SAFNI MARKÚSAR ÍVARSSONAR - 2.11.2007 - 10.2.2008 Salur 3 |
 |
Hefð er fyrir því að Listasafn Íslands sýni með vissu millibili úrval verka úr safni því sem Markús Ívarsson járnsmiður - Markús í Héðni eins og hann var oftast kallaður - eignaðist og fært var safninu að gjöf. Þar eru margar gersemar frá fyrri hluta liðinnar aldar, svo sem hið einstæða verk Kjarvals ÍSLENSKIR LISTAMENN VIÐ SKILNINGSTRÉÐ, frá 1918; FRÁ REYKJAVÍKURHÖFN eftir Þorvald Skúlason, frá 1931; GÖMUL KONA eftir Gunnlaug Scheving, frá 1934, og HVÍT HÚS, BLÁR HIMINN eftir Snorra Arinbjarnar, frá 1941. Skilningur Markúsar á list samtíðar sinnar var rómaður enda átti hann ófáa vini í röðum fremstu listamanna okkar. Sýningin á verkunum úr safni Markúsar vekur einnig spurningar um hlutverk og gildi einkasafna sem eru áhugaverður þáttur hvers samtíma.
Mynd: Gunnar Gunnarsson, Sjálfsmynd, 1940
|
 |
 |
 |  |
HIGH PLANE VI - 2.11.2007 - 10.2. 2008 Salur 4 |
 |
HIGH PLANE VI frá 2005 eftir Katrínu Sigurðardóttur er til sýnis í sal 4 í safninu til 10. febrúar 2008.
Sjá nánar umfjöllun Markúsar Þórs Andréssonar um verkið hér.
|
 |
 |
 |  |
Ó-NÁTTÚRA - 20.7. 21.10. 2007
|
 |
Sýningin Ó-náttúra er sumarsýning Listasafns Íslands 2007. Á sýningunni er leitast við að skoða náttúruna í öðru ljósi og frá öðrum sjónarhóli en menn eiga að venjast. Miðlægt verk á þessari sýningu er High Plane VI eftir Katrínu Sigurðardóttur en innsetning hennar hefur hvarvetna vakið verðskuldaða athygli þar sem hún hefur verið sýnd enda byggir hún á umbyltingu sjónarhorns þar sem landslagið er lagt lárétt á borð fyrir áhorfendur. Í staðinn fyrir að horfa á landslag málað á tvívíðan, lóðréttan flöt sjá gestir lárétt, þrívítt svæði með hafi, eyjum og fjöllum, rétt eins og þeir svifu í flugvél yfir vogskorinni strönd, bryddaðri ótal eyjum og skerjum. Ó-náttúra tekur mið af þessu óvænta sjónarhorni og bregður upp nýrri og framandi sýn á venjubundið umhverfi. Á sýningunni munu eru um 80 verk eftir 51 listamann.
High Plane VI, 2005:
Myndin sýnir verkið High Plane VI eftir Katrínu Sigurðardóttur sem sett var upp í Wanås í Svíþjóð árið 2005. Ingunn Wernersdóttir styrkir uppsetningu verksins.
Listamenn sem eiga verk á sýningunni:
Árni Ingólfsson (1953),Ásgrímur Jónsson (1876-1958), Ásmundur Sveinsson (1893-1982), Birgir Andrésson (1955), Bjarni H. Þórarinsson (1947), Bragi Ásgeirsson (1931), Brynhildur Þorgeirsdóttir (1955), Daníel Þ. Magnússon (1958), Dieter Roth (1930-1998), Einar Hákonarson (1945), Erró (1932), Gabríela Friðriksdóttir (1971), Georg Guðni (1961), Gjörningaklúbburinn (1996), Guðrún Einarsdóttir (1957), Gunnar Örn (1946), Gunnlaugur Scheving (1904-1972), Gylfi Gíslason (1940-2006), Hannes Lárusson (1955), Haraldur Jónsson (1961), Harpa Árnadóttir (1965), Helgi Þorgils Friðjónsson (1953), Hrafnkell Sigurðsson (1963), Hreinn Friðfinnsson (1943), Hringur Jóhannesson (1932-1996), Hulda Hákon (1956), Jóhanna Kristín Yngvadóttir (1953-1991), Jóhannes S. Kjarval (1885-1972), Jón Gunnar Árnason (1931-1989), Jón Óskar (1954), Karl Kvaran (1924-1989), Katrín Sigurðardóttir (1967), Kristinn E. Hrafnsson (1960), Magnús Kjartansson (1949-2006), Magnús Pálsson (1929), Magnús Sigurðarson (1966), Magnús Tómasson (1943), Nína Tryggvadóttir (1913-1968), Olga Bergmann (1967), Ólafur Elíasson (1998), Ólafur Lárusson (1951), Ólöf Nordal (1961), Roni Horn (1955), Róska (1940-1996), Sara Björnsdóttir (1962), Sigrid Valtingojer (1935), Sigtryggur Bjarni Baldvinsson (1966), Sigurður Árni Sigurðsson (1963), Sigurður Örlygsson (1946), Þorbjörg Höskuldsdóttir (1939), Þorvaldur Skúlason (1906-1984) |
 |
 |
 |  |
COBRA REYKJAVÍK - 10.5. - 8.7. 2007
|
 |
Framlag Listasafns Íslands til Listahátíðar árið 2007 var sýningin Cobra Reykjavík (10.5. – 8.7. 2007). Sýningin var sérstaklega sett saman fyrir Listasafn Íslands og sýningarmiðstöðina SilkeborgBad í Silkeborg með styrk frá ýmsum aðilum, hérlendum og erlendum.
Á næsta ári verða 60 ár frá því að alþjóðlegi listamannahópurinn Cobra var stofnaður, en hann var mikilvægur og nýskapandi vettvangur fyrir abstraktlistina. Sérstakur fókus verður settur á samskipti danskra og íslenskra listamanna frá þessum tíma. Á sýningunni voru verk fengin að láni frá helstu söfnum á Norðurlöndunum, m.a. verk eftir Asger Jorn, Egill Jacobsen, Ejler Bille, Carl-Henning Pedersen, Svavar Guðnason, Else Alfelt, Karel Appel, Constant, Corneille og Pierre Alechinsky. Sýningarstjóri er Per Hovdenakk.
Cobra var gjarnan ritað CoBrA sökum þess að heitið var samsett úr upphafsstöfum höfuðborganna Copenhague, Bruxelles og Amsterdam, en flestir helstu fulltrúar hreyfingarinnar voru danskir, belgískir og hollenskir. Expressjónísk abstraktlist þeirra var talin helsta mótsvar evrópskrar myndlistar við bandarískum abstrakt-expressjónisma. Þótt hreyfingin væri skammlíf voru áhrif hennar ómæld, og halda áfram að vekja undrun og aðdáun, svo sem módelborg Constants, Hin nýja Babýlon, á Documenta X í Kassel, 1997.
Sýningarstjóri var Per Hovdenakk, fyrrv. safnstjóri Heine Onstad listasafnsins í Osló.
Aðstoðarsýningarstjórar voru Harpa Þórsdóttir, Iben From og Lars Olesen.
Á sýningunni voru um 120 verk eftir 29 listamenn.
Verk eru eftir eftirtalda listamenn:
Alechinsky, Pierre (f. 1927), Alfelt, Else (1910-1974), Appel, Karel (1921-2006),
Atlan, Jean-Michel (1913-1960), Balle, Mogens (1921-1988), Bille, Ejler (1910-2004),
Brands, Eugène (1913-2002), Constant (1920-2005), Corneille (f. 1922), Dotremont, Christian (1924-1979), Doucet, Jacques (1924-1994), Ferlov Mancoba, Sonja (1911-1984), Gear, William (1915-1997), Gilbert, Stephen (1910-2007), Götz, Karl Otto (f. 1914), Heerup, Henry (1907-1993), Jacobsen, Egill (1910-1998), Jorn, Asger (1914-1973), Kemeny, Madeleine (1924-1993), Kemeny, Zoltan (1907-1965), Lucebert (1924-1994), Mancoba, Ernest (1904-2002), Ortvad, Erik (f.1917), Pedersen, Carl-Henning (1913-2007), Svanberg, Max Walter (1912-1994), Svavar Guðnason (1909-1988), Thommesen, Erik (f. 1916), Wolvecamp, Theo (1925-1992), Österlin, Anders (f. 1926)
SVAVAR GUÐNASON Í LISTASAFNI ÍSLANDS
Salur 2 var tileinkaður Svavari Guðnasyni (1909-1988). Í hópi Cobra-manna var Svavar fyrstur íslenskra listmálara til að leggja stund á frjálsa abstraktlist. Fimmtán verk eru eftir Svavar á sýningunni.
Sýningarstjóri er dr. Ólafur Kvaran.
|
 |
 |
 |  |
FRELSUN LITARINS/REGARD FAUVE - JÓN STEFÁNSSON / NEMANDI MATISSE OG KLASSÍSK MYNDHEFÐ - 15.12. 2006 - 25.2. 2007
|
 |
Sýningin Frelsun litarins / Regard Fauve kom frá Musée des Beaux-Arts í Bordeaux í Frakklandi í tengslum við menningarhátíð sem frönsk og íslensk stjórnvöld standa að, POURQUOI PAS? - FRANSKT VOR Á ÍSLANDI og markaði sýningin upphaf hátíðarinnar.
Sýningin færði okkur sérstaka sýn á fauvismann, afdrifaríkan tíma innan málaralistarinnar sem náði hámarki árið 1905 og fól í sér nýjar skilgreiningar í stefnu málverksins. Öll túlkun á viðfangsefninu og á róttækri meðferð lita einkenndist í grundvallaratriðum af þörf málarans til að nota litinn sem tjáningarleið fyrir tilfinningar og skoðanir á viðfangsefninu. Sýningin endurspeglaði markvissa söfnun Listasafnsins í Bordeaux á málverkum fauvistanna, og mátti rekja í henni upphaf og þróun þessarar uppreisnar litarins við lok 19. aldar og í byrjun 20. aldar. Verk eftir heimsþekkta málara listasögunnar voru á sýningunni, má nefna Raoul Dufy, Pierre Bonnard, Henri Matisse, Oskar Kokoschka, Auguste Renoir og Félix Vallotton. Á sýningunni voru 52 verk eftir 13 listamenn.
Listamenn:
Albert MARQUET (1875-1947)
André LHOTE (1885-1962)
Félix VALLOTTON (1865-1925)
Henri MARTIN (1860-1943)
Henri MATISSE (1869-1954)
Jean-Gabriel DOMERGUE (1889-1962)
Louis VALTAT (1869-1952)
Marie LAURENCIN (1885-1956)
Othon FRIESZ (1879-1949)
Oskar KOKOSCHKA (1886-1980)
Pierre-August RENOIR (1841-1919)
Pierre BONNARD (1867-1947)
Raoul DUFY (1877-1953)
JÓN STEFÁNSSON - NEMANDI MATISSE OG KLASSÍSK MYNDHEFÐ
Jón Stefánsson (1881-1962) var eini Íslendingurinn sem var nemandi Matisse. Jón var nemandi Matisse 1908-1911. Sýningin sýnir þau áhrif sem Jón varð fyrir hjá Matisse og þann franska skóla sem Jón innleiddi í verkum sínum eftir að hann kom heim frá námi. Sýnt verður úrval verka eftir Jón Stefánsson í eigu Listasafns Íslands.
|
 |
 |
 |  |
MÁLVERKIÐ EFTIR 1980 - 7.10. - 3.12. 2006
|
 |
Nýja málverkið stendur fyrir alþjóðlegri endurvakningu málverksins sem varð í upphafi 9. áratugar 20. aldar. Áhrif nýja málverksins bárust hingað frá Þýskalandi og einkenndust í fyrstu af nýjum expressjónisma, þar sem róttækar skoðanir, kapp og dýnamík listamannanna endurspegluðust í verkum þeirra. Hinn nýji expressjónismi reyndist í flestum tilvikum skammlífur en upp úr þessari sprengingu spruttu ýmsir forvitnilegir angar sem hafa gjörbreytt myndlistarflóru okkar síðustu tuttugu árin. Þeir listamenn sem tóku þátt í Nýja málverkinu voru allir ungir og nýkomnir úr skóla, með ferska sýn á frekari möguleika þessa miðils. Á sýningunni verður hægt að skoða þróun margra þessara málara og hvar málverkið er statt í dag.
Sýningarstjóri er Laufey Helgadóttir, listfræðingur og aðstoðarsýningarstjóri er dr.Halldór B. Runólfsson.
Sýningarskrá pdf |
 |
 |
 |  |
JÓHANN BRIEM - JÓN ENGILBERTS - 9.3. - 29.4. 2007
|
 |
Í íslenskri listasögu eru Jóhann Briem og Jón Engilberts ásamt m.a. Snorra Arinbjarnar, Gunnlaugi Scheving og Þorvaldi Skúlasyni fulltrúar þess expressjónisma sem var ríkjandi í evrópskri myndlist á millistríðsárunum. Á fjórða áratugnum má greina glögg skil milli tveggja ólíkra viðhorfa í íslenskri myndlist. Annarsvegar er það landslagsmálverkið, sem þá lifir mikið blómaskeið með þá Ásgrím Jónsson, Jón Stefánsson og Jóhannes Kjarval, og hins vegar sú kynslóð ungra listamanna, m.a. Jóhann Briem og Jón Engilberts, sem komu fram eftir 1930. Í verkum þessara ungu listamanna komu fram róttæk viðhorf, jafnt í vali á myndefni og túlkun. Ný myndefni eins og maðurinn við vinnu sína, götumyndir og nánasta umhverfi listamannsins verður meginviðfangsefnið.
Jón Engilberts naut kennslu norska málarans Axels Revolds. Hjá honum kynntist hann hinum norska expressjónisma sem annars vegar átti rætur að rekja til tilfinningarlegs expressjónisma Edvards Munch og hins vegar, hins formræna og munúðarfulla franska expressjónisma.
Jóhann Briem komst aftur á móti í kynni við hinn þýska expressjónisma á námsárunum í Þýskalandi.
Sýningarstjóri sýninganna er Harpa Þórsdóttir.
|
 |
 |
 |  |
GUNNLAUGUR BLÖNDAL - Lífsnautn og ljóðræn ásýnd - 24.2. - 30.4. 2006 Salur 3 og 4 |
 |
Með Gunnlaugi Blöndal á þriðja áratugnum, kemur inn í íslenska listasögu nýr og róttækur litaskilningur, sem birtist einkum í notkun andstæðuríks litrófs og vísar til aðferða expressjónismans í upphafi aldarinnar. Gunnlaugur fjallar í verkum sínum um ný myndefni eins og konuna og nekt hennar, en einnig um hefðbundnari viðfangsefni eins og landslagið, hafið og þorpið. Í litríkri framsetningu Gunnlaugs á þessum viðfangsefnum tvinnar hann saman upphafna sýn á myndefnið og miðlar jafnframt sterkru ljóðrænu inntaki. Í listferli hans síðar á ævinni takast oft á annars vegar rómantísk, ljóðræna túlkun og hins vegar afdráttarlaus og beinskeitt notkun litarins, þar sem pensilskriftin og rík efniskennd bera vitni um sköpunarathöfn augnabliksins. Markmiðið með þessari sýningu er að lyfta fram þessum sterku höfundareinkennum Gunnlaugs Blöndal og varpa um leið ljósi á mikilvæga stöðu hans í íslenskri listasögu. Verkin á sýningunni eru í eigu Listasafns Íslands, einstaklinga, stofnana og safna. Í tilefni sýningarinnar er gefin út bók um list Gunnlaugs Blöndal með grein eftir Hörpu Þórsdóttur, sem styrkt er af ÍAV-Íslenskum aðalverktökum. |
 |
 |
 |  |
SNORRI ARINBJARNAR - Máttur litarins og spegill tímans - 24.2. - 30.4. 2006 Salur 1 og 2 |
 |
Sögulegt hlutverk Snorra Arinbjarnar í íslenskri listasögu á fjórða áratugnum er öðru fremur að hann túlkar í verkum sínum nýjar hliðar á íslenskum veruleika; manneskjuna, ´lífið á bryggjunni, þorpsgötuna og hversdagslegt umhverfi. Verk hans eru jafnframt sem spegill tímans með sínum fíngerðu, dimmu litatónum og jafnframt áleitnar líkingar fyrir þjóðfélagslegt andrúmsloft þessara ára. Þegar rofar til í samfélaginu uppúr 1940, þá birtir einnig á litaspjaldi hans og það er nú harka birtunnar, sem umleikur myndefnið, sem hann túlkar með sterkum og afdráttarlausum litum. Merking og máttur litarins verður nú aðal listar hans. Litatóninn hækkar, fjöllin verða fjólublá, skipin sítrónugul og í harðri birtunni er liturinn eldfimari þar sem skiptast á ljós og skuggi, en samt er skugginn ávallt jafn lifandi og ljósið. Markmiðið með þessari sýningu sem ber yfirskriftina Spegill tímans og máttur litarins er að gefa yfirlit yfir listferil hans og varpa ljósi á þann sérstaka og persónulega litaskilning, sem Snorri þróaði í list sinni og veitir honum mikilvæga stöðu í íslenskri listasögu. Verkin eru bæði í eigu Listasafns Íslands, stofnana, einkaaðila og safna. Í tilefni sýningarinnar er gefin út bók um list Snorra Arinbjarnar með grein eftir Kristínu Guðnadóttur listfræðing, sem styrkt er af KB-banka. |
 |
 |
 |  |
NÝ ÍSLENSK MYNDLIST II - Um rými og frásögn - 12.11.2005 - 12.2.2006
|
 |
Sýningin er framhald þeirrar sýningar sem var haldin í Listasafni Íslands haustið 2004, Ný íslensk myndlist: um veruleikann, manninn og ímyndina, og fjallar um þá nýsköpun sem hefur átt sér stað í íslenskri myndlist á síðasta áratug. Með þessum sýningum vill Listasafn Íslands varpa ljósi á það sem einkennir verk yngstu kynslóðar íslenskra myndlistarmanna.
Verkin á sýningunni eiga það sameiginlegt að fást við rýmið á einn eða annan hátt. Ýmis mörk þess og ólíkar víddir eru skoðaðar, allt frá formrænum hliðum sjónrænnar upplifunar til huglægari þátta, til dæmis minninga og tímahugtaksins. Höfum við fyrirfram skoðun á því þegar við göngum inní hús, hvað það er sem á eftir að mæta okkur? Skilgreinum við rými sem stað þar sem hægt er að hreyfa sig? Eða skapar ekki hreyfing nýtt rými? Þarf ljós til að virkja rými eða viðveru mannsins?
Listamenn sem eiga verk á sýningunni:
Darri Lorenzen, Elín Hansdóttir, Hafdís Helgadóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Hlynur Helgason, Hulda Stefánsdóttir, Inga Þórey Jóhannsdóttir, Katrín Sigurðardóttir, Kristinn E. Hrafnsson, Ragnar Helgi Ólafsson, Sara Björnsdóttir, Unnar Örn Jónasson Auðarson og Þóra Sigurðardóttir. |
 |
 |
 |  |
BIRGIR ANDRÉSSON - 12.5. - 25.6. 2006
|
 |
Birgir Andrésson (f. 1955) kom fyrst fram á sjónarsviðið á síðari hluta áttunda áratugar 20. aldar. Verk Birgis eru oft á þjóðlegum nótum og endurspegla áhuga listamannsins á íslenskri þjóðmenningu, arfleifð hennar og veruleikanum í dag. Verkin á sýningunni spanna allan feril Birgis. |
 |
 |
 |  |
STEINGRÍMUR EYFJÖRÐ - 12.5. - 25.6. 2006
|
 |
Steingrímur Eyfjörð (f. 1954) hefur í verkum sínum farið inn á merkingarsvið heimspeki, vísinda, félags- og mannfræði þar sem viðfangsefni verkanna geta verið um jafn ólíka hluti og trúmál, pólitík, íslenska þjóðmenningu og sögu og dægurmenningu. Teikningin eru fyrirferðarmikill tjáningarmáti í verkum Steingríms og í þeim sést náinn sjónrænn skyldleiki teikningarinnar við ritlistina. Verkin á sýningunni spanna allan feril Steingríms. |
 |
 |
 |  |
LANDSLAGIÐ OG ÞJÓÐSAGAN - 8.7. - 24.9. 2006
|
 |
Fjallað er um íslenska landslagslist frá upphafi 20. aldar og einnig eru sýnd verk sem byggja á túlkun þjóðsagna m.a. úr Safni Ásgríms Jónssonar. Mörg af öndvegisverkum íslenskrar myndlistar frá fyrri hluta 20. aldar eru á sýningunni, m.a. eftir Þórarinn B. Þorláksson, Ásgrím Jónsson, Jón Stefánsson, Jóhannes Kjarval, Guðmund Thorsteinsson, Júlíönu Sveinsdóttur, Kristínu Jónsdóttir og Svein Þórarinsson. Þá eru verk eftir yngri listamenn, sem takast á við landslagið og þjóðsöguna eins og Sigurð Guðmundsson, Magnús Pálsson, Helga Þorgils, Georg Guðna, Hrafnkel Sigurðsson, Magnús Sigurðsson, Sigurð Árna, Halldór Ásgeirsson, Ólaf Elíasson, Eggert Pétursson og Ólöfu Nordal.
Alls eiga 27 listamenn 95 verk á sýningunni.
Með vaxandi togaraútgerð í upphafi 20. aldar hafði skapast grundvöllur fyrir starfandi listamenn hér á landi, sem gátu haft atvinnu af listsköpun sinni. Segja má að sú kynslóð íslenskra myndlistarmanna, sem kom fram á sjónarsviðið frá aldamótunum fram til 1930, hafi tekið virkan þátt í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar með því að dásama íslenska náttúru í verkum sínum á svipaðan hátt og þjóðskáldin. Sögurnar og sagnahefðin var eftir sem áður stolt þjóðarinnar og því var þjóðsagnamyndum Ásgríms Jónssonar,1876-1958 tekið fagnandi á sýningu hans árið 1905. Skipa þær sérstakan sess í huga þjóðarinnar, en um eiginlega vísun í þjóðsögurnar er ekki að ræða að neinu ráði, fyrr en Magnús Pálsson, f.1929 tekur þráðinn upp að nýju undir formerkjum hugmyndalistarinnar á sjöunda áratugnum. Róttæk endurnýjun í landslagsmálverkinu gerist aftur á móti ekki fyrr en með fjallamálverki Georgs Guðna, f.1961 um 1982, þar sem hann með sérstakri málunartækni hleður myndina upp, lag fyrir lag og birtan skiptir öllu. Þessi ferska sýn á íslenskt landslag, skapaði nýjan grundvöll fyrir landslagsmálverkið, þar sem æ fleiri tókust nú á við að túlka íslenska náttúru og undir lok níunda áratugarins hafði hún leyst af hólmi þá sýn, sem tilheyrði frumherjunum. Myndlist frumherjanna er eftir sem áður drjúgur þáttur í sögu og sjálfsmynd íslenskrar þjóðar. Landslagsmyndir og fantasíur Kjarvals, 1885 - 1972 hafa án efa mótað sýn núlifandi Íslendinga á land sitt. Með verkum, þar sem fléttað er saman yfirborði landsins og innra lífi með vísun í þjóðtrúna, tókst honum að gefa áhorfandanum færi á að spinna söguna áfram. Samtímalistin, eins og hún birtist í verkum yngstu kynslóðarinnar nú á dögum, speglar viðleitni sérhverrar kynslóðar til að leita nýrra leiða og skapa sína sögu út frá nýjum þjóðfélagsaðstæðum. Að færa eldfjallið inn í safnið eins og Halldór Ásgeirsson, f.1956 gerir í verkinu Endalaus fyrirbæri,1996 vísar til þeirra sterku afla sem í náttúrunni búa og einnig til sköpunarkraftsins sem í manninum býr. Þá er ekki síður áhugavert að sjá hvernig yngsta kynslóðin leitar í þjóðsögurnar út frá nýjum forsendum.
Sýningin er að mestu byggð á verkum í eigu safnsins og er ekki tilraun til að gera heildarúttekt á efninu, heldur er henni fyrst og fremst ætlað að leggja áherslu á einstök verk er fjalla um samband manns og náttúru, hvernig landslagið kveikir ímyndunaraflið, höfðar til tilfinninganna og er myndlistamönnum óþrjótandi uppspretta.
Hugtakið ,,sjálfsmynd þjóðar” hefur verið mönnum hugleikið í opinberri umræðu á sviði hugvísinda á síðastliðnum áratug. Ekki einungis hér á landi heldur um gjörvalla Evrópu. Fræðimenn, skáld og listamenn hafa reynt að kryfja málið. Að staðsetja sig í tíma og rúmi virðist vera mönnum jafnmikil nauðsyn og að aðgreina sig frá öðrum. Í þjóðsögunum segir að álfar og tröll búi í landinu. Draugar fari á stjá og kynjakvikindi búi í vötnum. Landið sjálft er jafnframt áhrifavaldur. Allir staðir verða hluti af manni, sem maður ber með sér hvert sem farið er, eins og Katrín Sigurðardóttir, f.1967 hefur bent á með verkum sínum á borð við Farmur,1999 þar sem landslag og útlendir bæir, ákveðnir staðir, sem hún hefur farið um verða hluti þess, sem hún ber með sér eins og hvern annan farangur. Georg Guðni hefur aftur á móti gert lítið úr áfangastöðunum, þar sem það eru fremur merkingarlausu staðirnir milli staðanna, sem sitja eftir í huga þess sem fer um Ísland. Gráir og brúnleitir litirnir í grárri og blautri birtunni, þar sem síbreytileiki ljóssins skapar landið. Örnefni svo sem Kögunarhóll, 1985 leiða aftur á móti hugann að lífi, sem lifað var og gefur ímyndunaraflinu byr undir báða vængi. Þjóðsaga hermir að Kögunarhóll sé haugur sem Ingólfur Arnarson hafi orpið yfir skip það, er hann sigldi á hingað til lands. Nafnið Kögunarhóll mun merkja útsýnishóll.
Landið og fornsögurnar renna saman í eitt. Íslendingasögur, þjóðsögur eða frásagnir verða stundum ekki aðgreindar. Hrafnarnir, sem Hrafna-Flóki hafði meðferðis í siglingunni norður í haf voru notaðir til að segja til um hve langt væri til lands. Hringflug hrafna kann einnig að kalla fram fyrirboða, hvað þá ef hvítan hrafn ber fyrir sjónir, með vísun í verk Ólafar Nordal, Hvítir hrafnar, 1996. Kunni viðkomandi að ráða í slíka fyrirboða verður tilveran eflaust innihaldsríkari. Ekki er víst að allir kunni að lesa úr þessum skilaboðum því að merkingin hefur glatast milli kynslóða svo eftir verður óþægilegt tómarúm. Það er í slíku tómarúmi sem tengslin við menningarlegan bakgrunn rofna og tilveran verður merkingarlaus. Með vísun í þjóðsögur og þjóðtrú í verkum sínum gerir hún á vissan hátt tilraun til að varpa ljósi á og greina sérstöðu okkar og sérkenni í samtímanum.
Menningarlegar rætur eru ekki bundnar ákveðnum stað heldur eru byggðar á tilfinningu fyrir samhengi fortíðar og nútíðar. Maðurinn er tilfinningavera og getur bundist náttúrunni sterkum böndum og í umróti samtímans er greinilegt að þangað sækja menn næringu og innblástur, sem kemur glöggt fram í samtímalistinni. Ljóshirsla, 1977 Magnúsar Pálssonar vísaði veginn á sínum tíma, en þar beinir hann sjónum að galgopalegum tilburðum Bakkabræðra, er þeir reyndu að bera sólina í bæinn, en þakka ber viðleitnina því að á móti kemur, að það kann að felast nýsköpun í þessum viðburði, þar sem hlutirnir eru settir í nýtt samhengi og fá þannig nýja merkingu.
Á tímum sjálfstæðisbaráttunnar urðu fannhvítir jöklanna tindar tákn þess göfuga og hreina. Hvort það er snjórinn á tindi Heklu eða Mýrdalsjökull í málverkum frumherjanna fer þetta samband manns og náttúru ekki milli mála. Landslagið og þjóðsagan hafa verið eitt sterkasta uppeldislega mótunaraflið í gegnum tíðina. Sögur voru sagðar mann fram af manni og jafnvel ráðnar til þess ákveðnar persónur eins og í tilfelli Guðmundar Thorsteinssonar/Muggs, 1891-1924 en faðir hans réð konu til að segja börnunum sögur; Íslendingasögur, huldufólkssögur og ævintýri.
Frá því er Ásgrímur Jónsson, á einkasýningu sinni árið 1905, sýndi myndir sem túlkuðu nokkrar þekktar þjóðsögur, svo sem Nátttröllið og Skessuna á steinnökkvanum, hefur sú mynd sem þar var dregin upp lifað með þjóðinni. Myndirnar virtust skerpa þá sýn, sem menn höfðu gert sér í hugarlund, og gera jafnvel enn þann dag í dag, þar sem speglaður klettur verður að ógurlegu trölli í ljósmynd Hrafnkels Sigurðssonar, f.1963. Hver kannast ekki við það á ferð sinni um landið að hafa séð einn og einn klett taka á sig tröllslega mynd eins og skessur úr verkum Ásgríms Jónssonar gægist yfir fjöllin.
Einar Jónsson, 1874-1954 myndhöggvari, og sveitungi Ásgríms, mun hafa lagt að honum að sækja sér myndefni í þjóðsögurnar. Ljóst er að Ásgrímur átti sér nokkrar uppáhaldssögur, sem hann sótti sér innblástur í aftur og aftur og meðal þeirra sagna var Nátttröllið. Þar má sjá unga stúlku sitja á rúmi á dimmu baðstofuloftinu við tíru frá kertaljósi. Ljósið lýsir upp ásjónu tröllsins í glugganum, sem ber nokkurn svip af listamanninum sjálfum, ef vel er að gáð. Hugrekki og staðfesta stúlkunnar verður henni til bjargar í sögunni, og að baki tröllinu má sjá bjarma fyrir degi til merkis um að stúlkan er hólpin, því það er náttúra íslenskra trölla að verða að steini, ef geislar sólar ná þeim. Túlkun Einars Jónssonar er með öðrum hætti í verkinu Dögun, 1900-1906, sem unnin er út frá sömu sögu. Þar setur listamaðurinn fram myndlíkingu, sem sýnir bergrisann, tákn gamla tímans og úreltrar forneskju. Hann er með stúlkuna, ímynd íslensku þjóðarinnar í fanginu. Tröllið steytir hnefa mót sólu í bræði sinni, er ljósgeislar hennar eru við það að umbreyta því í stein, en við fætur þess kúrir lítill torfbær eins og til að minna á þá tíð er kynslóðirnar sögðu sögur við kolu eða kertaljós. Fögur stúlkan er sigurviss þar sem hún teygir höndina mót sólu.
Rakel Pétursdóttir safnafræðingur
|
 |
 |
 |  |
Íslensk myndlist 1945 - 1960: Frá abstrakt til raunsæis - 3. september - 30. október Allt safnið |
 |
Í íslenskri listasögu er tímabilið frá 1945 til 1960 tími mikilla umbrota og nýrra viðmiða. Það markast annars vegar af tilkomu abstraktlistarinnar um miðjan fimmta áratuginn og hins vegar af þeim þáttaskilum sem verða um 1960 með þeirri kynslóð sem leitar raunsærri tilvísana í list sinni. Tímamótasýning Svavars Guðnasonar í Reykjavík árið 1945 markar upphafið að samfelldri sögu abstraktlistarinnar á Íslandsi. Með sýningum September-hópsins í Reykjavík 1947-1952 varð til breiðfylking listamanna, sem tóku skýra afstöðu gegn því að hlutverk listarinnar væri að gera mynd af veruleikanum, en ætti þess í stað að skapa nýjan veruleika sem hefði sín sérstöku lögmál. Allan sjötta áratuginn er geómetríska abstraktlistin öðru fremur stíll þeirrar kynslóðar sem þá kom fram í íslenskri myndlist. Þessi þróun var samstíg því sem var að gerast í norrænni og evrópskri myndlist. Þetta tímabil var einnig tími mikillar nýsköpunar í myndlist þeirra sem þróuðu list sína eftir hefðbundnari leiðum. Sýningin byggist einkum á verkum í eigu Listasafnsins auk valinna verka frá einstaklingum og stofnunum. |
 |
 |
 |  |
Lest - 14. maí - 21. ágúst 2005 Allt safnið |
 |
Á fimmta hundrað verka Dieters Roth verða til sýnis á sameiginlegri sýningu Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands og Gallerí 100°. Sýningin ber yfirskriftina Lest og verður opnuð laugardaginn 14. maí. Um er að ræða viðamesta sýningarverkefni sem Listasafn Reykjavíkur og Listasafn Íslands hafa ráðist í en þetta er auk þess í fyrsta sinn sem söfnin standa sameiginlega að einu sýningarverkefni. Sýningarstjóri er sonur listamannsins, Björn Roth en sýningin er þungmiðjan í þema Listahátíðar í Reykjavík þetta árið sem helguð er alþjóðlegri samtímamyndlist undir yfirskriftinni Tími, rými, tilvera. Meðal verka á sýningunni Lest eru nokkrar af þekktustu innsetningum listamannsins, bókverk, grafík og málverk en við valið á verkunum voru tengsl þeirra við Ísland sýningarstjóranum ofarlega í huga.
"Grosse Tischruine" (Stóra Borðrústin), 1976-1998,
Verkið er unnið með aðstoð Björns Roth og Eggerts Einarssonar.
Samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands og 100° - sýningarsal Orkuveitunnar.
Tenging yfir á heimasíðu MOMA, Nútímalistasafnsins í New York tileinkuð lífi og list Dieter Roth. Listahátíð í Reykjavík
|
 |
 |
 |  |
Íslensk myndlist 1930 - 1945 - 29. janúar - 24. apríl 2005
|
 |
Íslensk myndlist 1930 - 1945 - 29. janúar - 24. apríl
Íslensk myndlist 1930 - 1945
Yfirlitssýning um íslenska myndlist á þessu tímabili þegar landslagsmálverkið, frásagnarkenndur expressjónismi og abstraktlist voru í brennidepli.
|
 |
 |
 |  |
Archive- endangered waters - 29. janúar - 24. apríl 2005
|
 |
Archive- endangered waters - 29. janúar - 24. apríl
Archive - endangered waters eftir Rúrí var framlag Íslands á myndlistartvíæringnum í Feneyjum árið 2003. Verkið er gagnvirk fjöltækni innsetning, óður til náttúrunnar og hugleiðing um gildi hennar í nútímanum. Archive er leitt af gríska orðinu arkeia sem merkir gamalt eða það sem mun hverfa inn í fortíðina. Frumhvatinn að gerð verksins er sú yfirvofandi hætta að fossarnir muni hverfa og að vatni heimsins sé ógnað.
|
 |
 |
 |  |
Ný íslensk myndlist, um veruleikann, manninn og ímyndina - 12. nóvember - 16. janúar 2005
|
 |
Hver eru viðfangsefni yngstu kynslóðarinnar í íslenskri myndlist? Hvernig er upplifun hennar á umhverfinu og hvernig endurspeglast hún í listinni? Hvaða skilaboð kristallast í verkum hennar? Miðað er við að sýna verk íslenskra listamanna sem eru fæddir eftir 1964. |
 |
 |
 |  |
Ný íslensk myndlist, um veruleikann, manninn og ímyndina - 12.11.- 16.01.2005
|
 |
 HALLÓ LISTAVERK Norrænt samstarfsverkefni um miðlun menningararfs NORDIC HANDSCAPE með farsímatækni (GSM). Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni. Á sýningunni NÝ ÍSLENSK MYNDLIST er gerð tilraun með miðlun upplýsinga um verk og listamenn með farsímatækni. Með þessari tækni er hægt að hringja í símanúmer sem eiga við ákveðin verk á sýningunni og sækja upplýsingar um listaverkin og heyra frásögn listamannsins um verk sitt og einnig gefst safngestum möguleiki á að sækja myndir í farsíma sinn og tjá sig um viðkomandi verk með því að senda SMS-skilaboð. Dæmi: SMS-skilaboð: Sláðu inn: list_"númer verks"_ og skrifaðu síðan skilaboðin, númer verkanna eru frá 1-20. Sendu síðan skilaboðin í símanúmerið 1848. SJÁ SMS-skilaboð Sækja mynd: Til að sækja mynd af listaverkinu í símann þinn slærðu inn textann: list_1, list_ 2 og svo koll af kolli fyrir hverja mynd. Sendu síðan skilaboðin í númerið 8900123. SJÁ MYNDIR AF VERKUM OG SÍMANÚMER á undirsíðunni YFIRSTANDANDI SÝNINGAR.
Nokkur dæmi um SMS-skilaboð: FANTAGOTT PEPSI - List 1 = "öflug markaðssetning". LJÓS, HÖFUÐ, NORRÆNN KYNSTOFN - List 2 = "góð ádeila á ranghugmyndir Hitlers". YOU TAKE ALL MY TIME - List 4 = "you took all my time and it was fun". YOU TAKE ALL MY TIME - List 4 = "rosalega skemmtilegt verk". YOU TAKE ALL MY TIME "list 4 sa thetta verk a soutbound i berlin- en bara heimild- nuna naer thad mer alveg- ogestlega flott- carl boutard". YOU TAKE ALL MY TIME "list 4 flott verk sérstakt en flott:o)". |
 |
 |
 |  |
Ný íslensk myndlist/Halló listaverk - 12.11. - 16.01.2005
|
 |
Listaverk í beinni útsendingu:
Birgir Örn Thoroddsen (f. 1976)
ÍBÚÐIN / THE APARTMENT
(Það þarf QuickTime)
Hægt er að skoða myndablogg á ibudin.mblog.is
Verkið var unnið í tengslum við verkefnið Nordic Handscape/Halló listaverk!
|
 |
 |
 |  |
FORVARSLA - 25. september - 31. október 2004
|
 |
Sýning á starfsemi forvörsludeildar Listasafns íslands.
Sýning á forvörslu er lítur að helstu þáttum um varðveislu, viðgerðir og rannsóknir á þeim menningarverðmætum sem tilheyra safneign Listasafns Íslands. Með sýningunni vill safnið varpa ljósi á þennan mikilvæga þátt í starfsemi þess sem unnin er á forvörsludeild safnsins.
|
 |
 |
 |  |
TILBRIGÐI VIÐ STEF: Yfirlitssýning á verkum Guðmundu Andrésdóttur. - 25. september - 31. október 2004
|
 |
TILBRIGÐI VIÐ STEF
25. september - 31. október 2004
Yfirlitssýning á verkum Guðmundu Andrésdóttur.
Guðmunda Andrésdóttir (1922-2002) var einn helsti fulltrúi abstraktlistarinnar í íslenskri málaralist á 20. öld.
Guðmunda arfleiddi Listasafn Íslands að hluta þeirra verka sem hún lét eftir sig, svo og öllum teikningum sínum og skissum. Af því tilefni efnir Listasafn Íslands til yfirlitssýningar á verkum hennar.
FORVARSLA
25. september - 31. október 2004
Sýning á starfsemi forvörsludeildar Listasafns íslands.
Sýning á forvörslu er lítur að helstu þáttum um varðveislu, viðgerðir og rannsóknir á þeim menningarverðmætum sem tilheyra safneign Listasafns Íslands. Með sýningunni vill safnið varpa ljósi á þennan mikilvæga þátt í starfsemi þess sem unnin er á forvörsludeild safnsins.
|
 |
 |
 |  |
Umhverfi og náttúra – Sumarsýning - 10. júlí - 19. september 2004
|
 |
Sumar sýning safnsins hefur yfirskriftina Umhverfi og náttúra í íslenskri myndlist á 20. öld. Á sýningunni er verk sem sem vísa til náttúru landsins og umhverfis í víðum skilningi allt frá aldamótunum 1900 og fram á 21. öldina. Stillt er saman verkum frá mismunandi tímabilum í listasögunni til að skapa samtal og umræðu á milli þeirra fagurfræðilegu hugmynda og viðhorfa til myndlistarinnar sem mótað hafa sýn okkar á náttúruna og okkur sjálf. Ný viðhorf til myndlistarinnar á ólíkum tímum kallast á, allt frá náttúrurómantík til hugmyndalistar. Endurskoðun listhugtaksins og jafnframt breytt hlutverks listamannsins leiddi af sér nýja nálgun þar sem frelsi hans til að velja sér túlkunarleið hefur verið víkkað út. Á sýningunni er þessum ólíku túlkunarleiðum telft saman til að skapa nýja samræðu milli verka frá ólíkum tíma og vekja upp spurningar um stöðu okkar í umhverfinu og náttúrunni.
Á sýningunni eru um 90 verk öll í eigu Listasafns Íslands, en alls eru sýnd verk eftir 36 íslenska listamenn: Ásgerði Búadóttur, Ásgrím Jónsson, Birgi Andrésson, Braga Ásgeirsson, Brynhildi Þorgeirsdóttur, Daníel Magnússon, Eggert Pétursson, Eirík Smith, Georg Guðna, Guðrúnu Einarsdóttur, Gunnlaug Scheving, Halldór Ásgeirsson, Helga Þorgils, Hlyn Hallsson Hrafnkel Sigurðsson, Hring Jóhannesson, Jóhannes Kjarval, Jón Engilberts, Jón Gunnar Árnason, Jón Stefánsson, Júlíönu Sveinsdóttur, Jóhann Briem, Kristinn E. Hrafnsson, Kristinn G. Harðarson, Kristján Davíðsson, Magnús Tómasson, Nínu Tryggvadóttur, Ólaf Elíasson, Olgu Bergmann, Rögnu Róbertsdóttur, Sigurð Árna Sigurðsson, Sigurð Guðmundsson, Spessa, Steinu Vasulka, Svavar Guðnason og Þórarinn B. Þorláksson.
Sýningarstjórar eru Dr. Ólafur Kvaran safnstjóri og Rakel Pétursdóttir safnfræðingur.
|
 |
 |
 |  |
Í nærmynd/Close up, bandarísk samtímalist - 14. maí - 27. júní 2004
|
 |
Á sýningunni Í nærmynd/Close-up, bandarísk samtímalist eru verk 11 heimsþekktra bandarískra listamanna sem markað hafa djúp spor í alþjóðlegt listalíf undanfarna þrjá áratugi. Listamennirnir Andy Warhol, Duane Hanson, Jeff Koons, Cindy Sherman, Sherrie Levine, Felix Gonzalez-Torres, Bruce Nauman, Robert Gober, Louise Lawler, Richard Prince og Charles Ray fjalla um mikilvægar spurningar sem varða tengslin milli listarinnar og veruleikans og mætti lýsa sem fagurfræði hversdagsins. Verkin ýmist vísa til, umbreyta eða sviðsetja upp á nýtt þann veruleika sem birtist í hlutum og táknum samfélagsins eða í listasögunni.
Sýningin beinir athyglinni sérstaklega að þeirri hlutbundnu og raunsönnu list sem hefur þróast í Bandaríkjunum á síðastliðnum 30 árum. Þessi list er hluti af póstmódernísku samhengi og einkennist af yfirtöku (appropriation) og endurnýtingu á þekktum hugmyndum, fyrirmyndum og hlutum, menningarlegum og félagslegum siðvenjum. En hún endurspeglar einnig hversdagsgoðsagnir samtímans á aðgengilegan og athyglisverðan hátt, oft með kröftugri samfélagsádeilu undir niðri.
Á sýningunni Í nærmynd/Close-up, bandarísk samtímalist eru verk 11 heimsþekktra bandarískra listamanna sem markað hafa djúp spor í alþjóðlegt listalíf undanfarna þrjá áratugi. Listamennirnir Andy Warhol, Duane Hanson, Jeff Koons, Cindy Sherman, Sherrie Levine, Felix Gonzalez-Torres, Bruce Nauman, Robert Gober, Louise Lawler, Richard Prince og Charles Ray fjalla um mikilvægar spurningar sem varða tengslin milli listarinnar og veruleikans og mætti lýsa sem fagurfræði hversdagsins. Verkin ýmist vísa til, umbreyta eða sviðsetja upp á nýtt þann veruleika sem birtist í hlutum og táknum samfélagsins eða í listasögunni. Sýningin beinir athyglinni sérstaklega að þeirri hlutbundnu og raunsönnu list sem hefur þróast í Bandaríkjunum á síðastliðnum 30 árum. Þessi list er hluti af póstmódernísku samhengi og einkennist af yfirtöku (appropriation) og endurnýtingu á þekktum hugmyndum, fyrirmyndum og hlutum, menningarlegum og félagslegum siðvenjum. En hún endurspeglar einnig hversdagsgoðsagnir samtímans á aðgengilegan og athyglisverðan hátt, oft með kröftugri samfélagsádeilu undir niðri.
Listaverkin á þessari sýningu vekja óneitanlega vangaveltur um afleiðslu hins hlutlæga raunveruleika, endurnotkun og endurnýtingu. Auk þess að miðla vangaveltum um framsetningu sem byggist á yfirtöku og eftirlíkingu sem oftar en ekki beinir háðsku, óskammfeilnu og gagnrýnu auga að listrænum venjum og goðsögnum hversdagslífsins. Listamenn, sem nota eftirlíkingu, endurnýta listrænar stefnur og þekktar listrænar og menningarlegar venjur. Á þessari sýningu eru það fyrst og fremst konur sem nota eftirlíkinguna til listrænnar tjáningar. Sherrie Levine gerir til dæmis gjarnan eftirmyndir af verkum frægra karlkyns listamanna, en með endurtekningunni reynir hún að má út þá áru sem er einkennandi fyrir hið einstæða listaverk. Í list sinni smeygir hún sér inn í veldi karla og sáir efasemdum um það sem listasagan stendur fyrir. Cindy Sherman fæst einnig við það karlaveldi sem gegnsýrir listasöguna með því að bregða sjálfri sér í líki staðalímynda, sem við þekkjum úr kvikmyndum, ljósmyndum, auglýsingum og bókmenntum. Í þessum verkum afhjúpar hún það gangvirki sem leynist að baki þeim lágkúrulegu myndum sem sjá má í tímaritum (einkum fyrir karlmenn) þar sem konur eru hlutgerðar.
Yfirtökulistin, sem oft er skilgreind sem nokkurs konar ný hugmyndalist, endurnýtir gjarnan fjöldaframleiddan neysluvarning og myndir. Þó að þessi hluttengda list tengist hlutgervingum Duchamps eða readymades snýst hún ekki fyrst og fremst um skilgreiningu á list – hvað sé list – (það er nú þegar viðurkennt að listamaðurinn getur gert hversdagshluti að listaverki). Þess í stað er viðfangsefnið táknræn vídd, sem er tengd vel þekktum hlutum og myndum, sem áhorfandinn (sem yfirleitt er gagnkunnugur slíku myndefni) getur nýtt til að spegla eigin vangaveltur og hugarflug. Hér eru það hlutirnir og myndirnar, sem með undirliggjandi merkingu og hugrenningatengslum vekja frásagnir sem oftast staðfesta og afhjúpa tvíræða afstöðu okkar til raunveruleikans. Richard Prince er dæmi um yfirtökulistamann, en hann hefur meðal annars endurgert þekkta Malboro-auglýsingu. Í stað þess að beina athyglinni að sígarettuauglýsingunni, upphefur hann frásögn myndarinnar, hestinn og goðsögnina um kúrekann, kjarnann í hinni amerísku goðsögn um karlmennskuna og hinn sjálfstæða einstakling sem stendur á eigin fótum. Jeff Koons er annar listamaður sem tileinkar sér þekkta hversdagslega hluti í list sinni en meðal verka hans má finna sígarettuauglýsingar, ryksugur og stækkaða eftirgerð fjöldaframleiddra skrautmuna. Hann hefur gert lágkúruna að list með því að nýta fagurfræðilegar, markaðsfræðilegar og efnahagslegar forsendur til að skapa grundvöll listaverksins. Ásetningur sem nær hápunkti í skúlptúrnum Michael Jackson og Bubbles frá 1988 en þar blandar listamaðurinn hinum ýkta, skrautlega kitsch-stíl, sem er yfirfullur af trúarlegum tilvísunum, saman við hina vinsælu goðsögn um stórstjörnuna Michael Jackson.
Á þessari sýningu er dregin fram myndlist sem á mjög fjölbreyttan hátt má skilja sem "transfiguration of the commonplace" eða ummyndun hinna hversdagslegu hluta, sem á rætur sínar að rekja til þeirrar ætlunar popplistarinnar að færa listina og fagurfræðina niður að núllpunkti. Þessi núllstillta fagurfræði er nú skilgreind sem fagurfræði, ekki tilbúin og upphafin en yfirtekin af ráðandi og vinsælum draumsýnum, sem við þekkjum og hittum fyrir daglega í fjölmiðlum. Sýningargesturinn hittir fyrir fagurfræði hversdagslífsins, sem er ekki lengur hin hreina og upphafna formfagurfræði, heldur fagurfræði sem tengist innihaldinu sterkum böndum og vísar til tíma, minnis (einstaklingsins og samfélagsins), markaðshyggjunnar og neyslunnar og ekki síst félagslegra athugasemda. Á meðvitaðan hátt hafa hlutirnir verið hlaðnir hugmyndum og skoðunum. |
 |
 |
 |  |
Íslensk myndlist 1900-1930 - 27. mars - 2. maí 2004
|
 |
Sýningin veitir yfirlit yfir þau mörgu viðfangsefni sem íslenskir listamenn fengust við fyrstu þrjá áratugi 20. aldar. Framsetning málverksins einkenndist á þessum tíma af þróun frá natúralísma til huglægari túlkunar hvort sem fengist var við landslagið eða uppstillingar. Á sýningunni er teflt saman þeim málurum sem hafa verið nefndir Frumherjar íslenskrar myndlistar við þá sem minni athygli hafa fengið í seinni tíð.
Verk eftir eftirfarandi listamenn verða sýnd:
Þórarinn B. Þorláksson, Ásgrímur Jónsson, Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson, Júlíana Sveinsdóttir, Kristján Magnússon, Brynjólfur Þórðarson, Kristín Jónsdóttir, Finnur Jónsson, Gunnlaugur Blöndal, Guðmundur Thorsteinsson (Muggur), Nína Sæmundsson, Jón Þorleifsson, Eggert Laxdal, Einar Jónsson og Freymóður Jóhannesson.Sýningin veitir yfirlit yfir þau mörgu viðfangsefni sem íslenskir listamenn fengust við fyrstu þrjá áratugi 20. aldar. Framsetning málverksins einkenndist á þessum tíma af þróun frá natúralísma til huglægari túlkunar hvort sem fengist var við landslagið eða uppstillingar. Á sýningunni er teflt saman þeim málurum sem hafa verið nefndir Frumherjar íslenskrar myndlistar við þá sem minni athygli hafa fengið í seinni tíð.
Verk eftir eftirfarandi listamenn verða sýnd: Þórarinn B. Þorláksson, Ásgrímur Jónsson, Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson, Júlíana Sveinsdóttir, Kristján Magnússon, Brynjólfur Þórðarson, Kristín Jónsdóttir, Finnur Jónsson, Gunnlaugur Blöndal, Guðmundur Thorsteinsson (Muggur), Nína Sæmundsson, Jón Þorleifsson, Eggert Laxdal, Einar Jónsson og Freymóður Jóhannesson. |
 |
 |
 |  |
Íslensk flúxustengsl - 30. janúar - 14. mars 2004 Salur 4 |
 |
Áhrifa hinnar alþjóðlegu stefnu fór að gæta á Íslandi undir lok 7. áratugarins þegar losnaði um höftin í íslenskri myndlist. Það var ekki síst vegna náinna tengsla Dieter Roth við íslenska listsamfélagið að listamennirnir kynntust mörgum Flúxuslistamönnum sem margir sýndu hérlendis.
Sýningin hefur að leiðarljósi að sýna hina upphaflegu tengingu við Flúxushreyfinguna en einnig að sýna verk tveggja næstu kynslóða á eftir og skoða hvernig Flúxus getur tengst verkum nýliðins tíma.Áhrifa hinnar alþjóðlegu stefnu fór að gæta á Íslandi undir lok 7. áratugarins þegar losnaði um höftin í íslenskri myndlist. Það var ekki síst vegna náinna tengsla Dieter Roth við íslenska listsamfélagið að listamennirnir kynntust mörgum Flúxuslistamönnum sem margir sýndu hérlendis. Sýningin hefur að leiðarljósi að sýna hina upphaflegu tengingu við Flúxushreyfinguna en einnig að sýna verk tveggja næstu kynslóða á eftir og skoða hvernig Flúxus getur tengst verkum nýliðins tíma. |
 |
 |
 |  |
Sjónarhorn: Ragna St. Ingadóttir - 3. apríl - 2. maí 2004
|
 |
Sjónarhorni safnsins hefur verið vel tekið af gestum en markmið þess er að sýna verk starfandi listamanna. Ragna St. Ingadóttir (f. 1953) verður með ljósmyndainnsetningu og videoverk en bæði verkin vinnur hún sérstaklega fyrir þessu sýningu. Sjónarhorni safnsins hefur verið vel tekið af gestum en markmið þess er að sýna verk starfandi listamanna. Ragna St. Ingadóttir (f. 1953) verður með ljósmyndainnsetningu og videoverk en bæði verkin vinnur hún sérstaklega fyrir þessu sýningu. |
 |
 |
 |  |
Löng og margþætt saga, Flúxus í Þýskalandi 1962-1994 - 30. janúar - 14. mars 2004 Salir 1, 2, 3 og 5 |
 |
Flúxuslistamenn höfnuðu ríkjandi listhugmyndum og fengust við ýmsar tilraunir í umfjöllun um veruleikann og samfélagið.
Tjáningarformin voru fjölbreytt og eru verk Flúxuslistamanna oft ádeiluverk á umhverfið og ríkjandi menningarástand.
Verkin eru meðal annars úr einkasafni sýningarstjórans René Block, sýningin kemur hingað til lands á vegum IFA í Stuttgart.
Listamenn á sýningunni:
Joseph Beuys, George Brecht, John Cage, Henning Christiansen, Robert Filliou, Ludwig Gosewits, Al Hansen, Geoffrey Hendricks, Dick Higgins, Joe Jones, Ute Klophaus, Milan Knizak, Alison Knowles, Arthur Köpcke, Manfred Leve, George Maciunas, Nam June Paik, Benjamin Patterson, Robert Rehfeldt, Dieter Roth, Gerhard Rühm, Takako Saito, Tomas Schmit, Daniel Spoerri, Endre Tót, Ben Vautier, Wolf Vostell og Emmett Williams. Flúxuslistamenn höfnuðu ríkjandi listhugmyndum og fengust við ýmsar tilraunir í umfjöllun um veruleikann og samfélagið. Tjáningarformin voru fjölbreytt og eru verk Flúxuslistamanna oft ádeiluverk á umhverfið og ríkjandi menningarástand. Verkin eru meðal annars úr einkasafni sýningarstjórans René Block, sýningin kemur hingað til lands á vegum IFA í Stuttgart. Listamenn á sýningunni: Joseph Beuys, George Brecht, John Cage, Henning Christiansen, Robert Filliou, Ludwig Gosewits, Al Hansen, Geoffrey Hendricks, Dick Higgins, Joe Jones, Ute Klophaus, Milan Knizak, Alison Knowles, Arthur Köpcke, Manfred Leve, George Maciunas, Nam June Paik, Benjamin Patterson, Robert Rehfeldt, Dieter Roth, Gerhard Rühm, Takako Saito, Tomas Schmit, Daniel Spoerri, Endre Tót, Ben Vautier, Wolf Vostell og Emmett Williams. |
 |
 |
 | |
|