Leiðsögn, fyrirlestrar og myndbandasýningar í tengslum við sýningar, auglýst sérstaklega. Sjá einnig Fræðsludagskrá
Hægt er að panta leiðsögn fyrir hópa og félagasamtök og er þá greitt fyrir leiðsögn skv. gjaldaskrá Listasafns Íslands.
Upplýsingar í síma 515 9600 / 515 9612
Fjölskyldudagskrá
Dagskrá auglýst sérstaklega í tengslum við sýningar. Aðstaða til skapandi vinnu og lestrar á Vinnustofu barna á jarðhæð
Skólahópar
Safnið býður mismunandi dagskrá og efnisnálgun fyrir nemendur á öllum skólastigum. Tekið er mið af aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla þar sem það á við. Einnig eru í boði námskeið fyrir kennara. Tekið er á móti nemendum grunn- og framhaldsskóla og börnum á forskólaaldri, virka daga eftir samkomulagi.
Pantanir og nánari upplýsingar í síma 515 9612 milli kl. 8 - 16.
Fræðsluvefir um listaverkaeign safnsins
Listavefurinn
Listavefur krakka
Norrænt samstarfsverkefni - HALLÓ LISTAVERK
Nordic Handscape er norrænt samstarfsverkefni sem hefur að markmiði að rannsaka og þróa mögulega miðlun menningararfs með farsímatækni. Verkefnið var styrkt af Norrænu ráðherranefndinni. Sjá: www.nordichandscape.net
Alþjóðatengsl og fagleg þróun
Starfsemin tekur mið af siðareglum Alþjóðaráðs safna/ICOM og fagdeildar um fræðslu og menningarmál/CECA.
Aðgengi fyrir alla
Fræðslumiðstöð á jarðhæð
Aðgangur að rafrænum gagnagrunni með ljósmyndum og heimildum um öll verk í eigu safnsins eftir íslenska listamenn. Fræðsluþættir sýndir í tengslum við yfirstandandi sýningar auk þess sem sýningaskrár og listtímarit liggja frammi.
Fullorðinsfræðsla
Dagskráin skapar tækifæri fyrir gestina til að nálgast myndlistina á margvíslegan hátt; fræðilegum forsendum eða með óformlegum hætti, bæði í safninu sjálfu og utan þess. Fræðsludeildin skipuleggur dagskrá í tenglsum við allar sýningar í safninu svo sem málþing, samtal við listamenn, fyrirlestra, hádegisleiðsögn og helgarleiðsögn auk þess að veita leiðsögn fyrir hópa á eigin vegum. Á dagskrá eru jafnframt fræðslufundir og námskeið um málefni myndlistar og afmarkaða þætti listasögunnar.
Táknmálstúlkun veitt samkvæmt samkomulagi og komið til móts við einstaklinga og hópa fólks með sérþarfir. Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott.