ANDRÝMI 26. ÁGÚST „SÍÐSUMAR“

25.8.2016

Íslenski flautukórinn og Listasafn Íslands standa fyrir hádegistónleikaröð í Listasafni Íslands. Síðasta föstudag hvers mánaðar er boðið upp á fjölbreytta tónlist til þess að vinda ofan af vinnuvikunni, stilla hugann af fyrir helgina og endurræsa skilningarvitin. Að tónleikunum loknum býður Kaffistofa listasafnsins upp á hádegisverðartilboð. 

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins.

1. Øistein Sommerfeldt (1919 - 1994):Lys Vårmorgen úr Vårlåter fyrir einleiksflautu op. 442. Caspar Kummer (1795 -1870)Flaututríó op. 24, Allegro moderato - Adagio sostenuto - Allegro

3. Carl Reinecke (1824 - 1910)At Twilight Útsetning Frank Erickson

Flytjendur:Hallfríður ÓlafsdóttirBerglind StefánsdóttirJón GuðmundssonMarkmið samstarfs Íslenska flautukórsins og Listasafns Íslands er að koma á samtali milli safnkostar listasafnsins og sýninga þess við tónlistarlífið í landinu. Ætlunin er að færa gesti listasafnsins og tónlistarunnendur saman í nýrri upplifun í listasafninu þar sem tónlist og myndlist kallast á. Víkka út sjónarhorn listarinnar frá myndrammanum að öllu rýminu sem býr í skynjun okkar. Íslenski flautukórinn býr yfir mikilli tónlistarlegri vídd og flytur tónlist frá öllum tímabilum tónlistarsögunnar. Með hádegistónleikaröðinni verður lögð áhersla á að nýta flautuna sem kammerhljóðfæri og má þar heyra tónlist fyrir samspil við önnur hljóðfæri og smærri hljóðfærasamsetningar, allt niður í einleiksverk. 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)