TÓNLEIKAR Í LISTASAFNI ÍSLANDS

7.6.2017

Tónleikar í Listasafni Íslands, þriðjudaginn 15. ágúst kl. 15.

Ungir tónsmiðir af Norðurlöndunum koma saman í Reykjavík 14. - 19. ágúst næstkomandi í tilefni af hinni árlegu tónlistarhátíð Ung Nordisk Musik.Yfirskrift hátíðinnar verður að þessu sinni Music and Space, en alls taka 35 tónskáld þátt í hátíðinni sem færist á milli Norðurlandanna á hverju ári.Sjö tónleikar verða haldnir yfir vikuna, auk tveggja fyrirlestra á vegum tónskáldanna Önnu Þorvaldsdóttur og Raviv Ganchrow.Hátíðin sýnir þverskurð af því nýjasta sem er að gerast hjá ungum tónskáldum, og er hvert verk sérvalið af dómnefnd til þáttöku á hátíðinni. Tónleikar munu fara fram víðsvegar - í Hörpu, Fríkirkjunni, Norræna Húsinu, Húrra, Skálholtskirkju, Listasafni Íslands og Listaháskóla Íslands. Aðgangur er ókeypis á alla viðburði.

Efnisskrá:

Jesper Appelgren

Volto di pietrafyrir fiðlu, bassaklarinett og þrjár þakflísar

Bára GísladóttirSuzuki Balenofyrir sópran, þverflautu, klarinett, slagverk og fiðluSigrún JónsdóttirFluctuations - Through air, light and timefyrir fiðlu, slagverk og rafhljóð Kristin BoussardDry Your Icefyrir þurrís og málmhlutiFinnur KarlssonFrom the Filterfyrir sópran, þverflautu, klarinett, slagverk og fiðluPetter HaukaasInnesifyrir sex slagverksleikara

Björk Níelsdóttir, sópranGrímur Helgason, klarinetturMaría Ösp Ómarsdóttir, þverflautaLaufey Jensdóttir, fiðlaFrank Aarnink, slagverkÓlafur Björn Ólafsson, slagverkViktor Ingi Guðmundsson, slagverkÁrni Áskelsson, slagverkSvanhildur Lóa Bersveinsdóttir, slagverkÖrvar Erling Árnason, slagverkKristin Boussard, þurrís og málmhlutirMarta Tiesenga, sópran saxófónnAlbert Sölvi Óskarsson, altó saxófónnBjörgvin Ragnar Hjálmarsson, tenór saxófónnRósa Guðrún Sveinsdóttir, baritón saxófónnAri Hróðmarsson, stjórnandi

Nánari upplýsingar má finna á https://www.ungnordiskmusik.is/

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)