SUNNUDAGSLEIÐSÖGN Í LISTASAFNI SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR

13.10.2016

Sigurjón er þekktur sem myndhöggvari af gamla skólanum, sem mótaði í leir og gifs, hjó í stein og tré og sauð saman listaverk úr málmi. En stóran hluta verka hans frá sjöunda og áttunda áratug liðinnar aldar má flokka undir það sem kallað hefur verið samskeytingar„assemblage“. Þá er viðarbútum, tilsniðnum eða eins og þeir koma fyrir, skeytt utan um tiltekinn kjarna svo úr verður heildstætt listaverk. Á sýningunni gefur að líta úrval verka Sigurjóns af þessum toga. 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)