LISTAMANNASPJALL VIÐ STEINU

10.5.2017

Yfirskrift alþjóðlega safnadagsins, 18. maí, er Söfn og umdeild saga: Að segja það sem ekki má segja í söfnum.

Í tilefni af alþjóðlega safnadeginum 2017, og yfirskrift hans, býður Listasafn Íslands gestum sínum að njóta frásagnar eins fremsta listamanns landsins; Steinu (Steinunn Briem Bjarnadóttir Vasulka, f.1940), um vídeóinnsetningu hennar Eldrúnir sem sýnd er í safninu um þessar mundir.

Hér er hægt að lesa um Eldrúnir http://www.listasafn.is/syningar/nr/899

Fimmtudaginn 18. maí kl.16:30 munu Hildur og Kristín Bjarnadætur, systur Steinu og Kristín Scheving, deildarstjóri Vasulka-stofu ræða við Steinu um verk hennar og um Vasulka-stofu; sérdeild innan Listasafns Íslands, sem stofnuð var árið 2014 og er starfrækt sem sýninga- og rannsóknarými á neðri hæð safnbyggingar Listasafns Íslands.

Auk þess að bjóða gestum til samræðu við Steinu um list hennar vill Listasafn Íslands beina athygli gesta sérstaklega að verki Woody Vasulka, eiginmanns og samverkamanns Steinu, sem sýnt er í Vasulka-stofu um þessar mundir og ber heitið Art of Memory.

Vídeóverkið Art of Memory frá árinu 1987 á í beinni samræðu við yfirskrift og áherslu alþjóðlega safnadagsins en í því staðsetur listamaðurinn sálrænt áfall sögu 20. aldar í kvikmyndum af ofbeldisverkum, þar á meðal eru spænska borgarastyrjöldin, rússneska byltingin, seinni heimsstyrjöldin og tilkoma kjarnorkusprengjunnar. Undir yfirgnæfandi vængjaðri veru samviskunnar virðast sagan og minningin grátt leiknar af sögunni og myndrænum minningum. Í hrífandi sambræðslu stríðstóla og véla sögunnar og fjölmiðla tekst Vasulka að byggja upp napurt og að endingu átakanlega harmrænt minningaleikhús. 

Art of Memory er mikilfenglegt verk, frumleg og þroskuð framsetning á rannsókn Vasulka á merkingu skrásettra mynda. Með því að byggja upp reimleikaleikhús minninga úr sjónarspili kvikmynda og rafrænna mynda, fellir Vasulka saman og umbreytir sameiginlegu minni og sögu í torræðu rými og tíma. Hið stórfenglega landslag suðvesturríkja Bandaríkjanna er goðsagnakenndur vettvangur sem hann greypir í fréttakvikmyndir úr stríðinu — draugalegar myndir sem verða að sveigjanlegum, skúlptúrískum formum fyrir tilstilli stöðugra rafrænna ummyndana.

Opið er í safninu frá 10 - 17 

Frítt inn í tilefni alþjóðlega safnadagsins. 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17